Vikan - 28.06.1990, Page 20
í PERSÓNULEGU VIÐTALI GÍSLA ÞÓRS GUNNARSSONAR
ÞANN 14. MARS SÍÐASTLIÐINN
KLUKKAN 10 ÁRDEGIS ÁTTI GÍSLI
ÞÓR GUNNARSSON ÞVÍ LÁNI AÐ
FAGNA AÐ HITTA AÐ MÁLI DALAI
LAMA XIV, FJÓRTÁNDU VIÐUR-
KENNDU HOLDTEKJU VERNDAR-
DÝRLINGS TÍBETA SEM FARIÐ f
HEFUR MEÐ ÆÐSTU VERALDLEG 1
OG ANDLEG VÖLD í TÍBET SÍÐAN |
Á 15. ÖLD. ÞAÐ VÆRI SYND AÐ
SEGJA AÐ DALAILAMA HEFÐI EKKI
ÁTT SKILIÐ AÐ FÁ FRIÐAR-
VERÐLAUN NÓBELS 1989, EFIR 40
ÁRA FRIÐSAMLEGT ANDÓF GEGN
HERSETU KÍNVERJA í TÍBET. ENGU
AÐ SÍÐUR BRUGÐUST KÍNVERSK
STJÓRNVÖLD ÓKVÆÐA VIÐ
ÞESSARI ÚTNEFNINGU OG
TALSMENN STJÓRNARINNAR, SEM
SÝNDI SITT RÉTTA ANDLIT Á TORGI
HINS HIMNESKA FRIÐAR Á MEÐAN
STÚDENTASLÁTRUN STÓÐ YFIR AÐ
VORLAGI 1989, LÝSTU ÞVÍ
HÁTÍÐLEGA YFIR AÐ DALAI LAMA
VÆRI EKKI EINUNGIS TRÚARLEIÐ-
TOGI HELDUR LÍKA STJÓRNMÁLA-
MAÐUR SEM YNNI LEYNT OG
LJÓST AÐ ÞVÍ AÐ SUNDRA EIN-
INGU KÍNVERSKU ÞJÓÐARINNAR.
▲ Það var þröngt á þingi í musteri Namgyal Dratsang þegar Dalai
Lama XIV lét ijós sitt skína. Þeir sem ekki fundu sæti innandyra
komu sér fyrir í forgarðinum.
Æk meöan búddisminn var leiðandi afl í
Æ\ Kína, Mongólíu og Tíbet var Dalai
Lama tilbeöinn af leikum jafnt sem
læröum í þessum þjóölöndum sem
# % alvitur, óskeikull og miskunn-
samur guð. Þessi alþýðutrú átti undir högg aö
sækja eftir aö „Frelsisher alþýöunnar" (PLA
People’s Liberation Army) undir stjórn Maó
Tse Tung haföi flætt yfir þessi fornu þjóðlönd
eins og engisprettufaraldur.
„Trúarbrögö eru auðvitað eitur,“ sagöi Maó
Tse Tung við Dalai Lama 1954. „Þau hafa tvo
galla. Þau draga mátt úr þjóöinni og þau
standa í vegi fyrir framförum. Tíbet og Mongól-
ía hafa bæöi orðið fyrir eitrun."
Þessi svokallaða „eitrun" geröi Tíbeta lítt
ginnkeypta fyrir fagurgala kínverskra komm-
únista. Fyrstu tíu ár hersetunnar fengu Tíbetar
strax aö súpa seyöiö af stjórnvisku kínverskra
kommúnista sem töldu sér fært aö miöstýra
allri þjóðarframleiðslu kinverska alþýðulýö-
veldisins frá Peking. Tíbet breiðir sig yfir land-
svæöi á Himalajafjallgaröinum sem jafnast á
viö alla Austur-Evrópu hvað stærð varöar. Þar
var að finna dýrmæta málma í jöröu, stærstu
úraníumnámur veraldarinnar og andlega auö-
legð sem ekki er hægt aö meta til fjár. Tíbetar
höfðu lifað í friði og spekt öldum saman án
þess aö abbast upp á nágranna sína, hinar
mannmörgu þjóöir Kínverja og Indverja, er
þeim var skyndilega kippt inn í glundroða tutt-
ugustu aldarinnar sem einkenndist af hat-
römmum heitum og köldum stríöum. Kínversk-
ir kommúnistar hugðu á frekari landvinninga
þannig að hafist var handa viö að hervæða
ista í Peking
þonræðuhöld
Tíbet meö þaö fyrir augum aö
geta beint kjarnorkueldflaug-
um frá hásléttum Himalaja-
fjallgarösins að öllum helstu
stórborgum Miöaustur-Asíu.
Til að hraða umbótum var
bannaö meö lögum aö
ástunda trúarbrögö, tala tíb-
etsku og drekka smjörte,
þjóðardrykk Tíbeta. Sam-
kvæmt fornum hefðum sungu
Tíbetar söngva viö vinnu sína
á ökrunum. Slíkt var bannað
eftir aö fyrstu vatnsaflsvirkj-
anirnar höföu veriö byggðar
í þegnskylduvinnu því nú
gátu Tíbetar notið góðs af
andagift kínverskra kommún-
með því aö hlýöa á mara-
gegnum voldug hátalarakerfi
sem alls staöar voru til staðar.
Alþjóöanefnd dómara (International Com-
mission of Jurists) birti niðurstöður úr hlutlausri
rannsókn sinni á réttarstööu Tíbets og þeim
mannréttindabrotum sem framin höföu veriö í
nafni kommúnismans 1960. Nefndin komst aö
þeirri niðurstööu að Kínverjar væru sekir um
þjóðarmorö í Tíbet. Sá glæpurfelst í skipulegri
aöför aö ákveðnum þjóöflokki meö það fyrir
augum að þurrka út þjóðareinkenni á borð við
tungumál, trúar-
brögö og önnur sér-
stæð menningarleg
verömæti. Þar að
auki kom á daginn
að þessi aðför kín-
___________________verskra kommúnista
hafði kostað 1.200.000 Tíbeta lífið. Tugþús-
undir voru teknar af lífi án dóms og laga vegna
trúarskoðana, stöðu sinnar í þjóðfélaginu og
án nokkurrar sýnilegrar ástæðu. Aftökuaðferð-
ir Kínverja voru forkastanlegar. Fólk var ekki
bara skotið. Það var barið til dauða, krossfest,
brennt lifandi, drekkt í jökulám, rist á hol, svelt
til bana, kyrkt, hengt, soðið iifandi, kviksett og
hálshöggvið. Öll þessi manndráp fóru fram
fyrir opnum tjöldum og ættingjar og vinir þess
dauðadæmda voru neyddir til að fylgjast með
grimmdarlegri aftöku ástvinar síns. í sumum
tilvikum voru börn neydd til að skjóta sína eigin
foreldra og öfugt.
Andlegir fræðarar eða lamar urðu sérstak-
lega fyrir barðinu á kommúnistum. Þeir höfðu
framið glægi gegn byltingunni með þvi að lifa
sem afætur á hinum vinnandi stéttum. Kínverj-,
20 VIKAN 13. TBL.1990