Vikan - 28.06.1990, Side 41
rv«™°/7
sem best skilyrði til að gera
slíkt mögulegt er eitt og annað
sem hafa þarf í huga. Vegna
þess sem við töluðum um fyrr í
þessu bréfi og tengist reiðinni
er sú orka sem myndast við
reiði af sömu uppsprettu og
önnur sálræn innri orka. Ef þú
notar hugann rétt, það er að
segja ert jákvæð, sem þú
greinilega ert, og biður góðan
Guð um að leiðbeina þér og
ert ekki sjálf að ákvarða hvern-
ig sú þjónusta virkaði sem í
gegnum þinn sálræna kraft
kæmi til með að nýtast öðrum
- heldur biður um að mega
verða verkfæri í þjónustu
kærleikans og lætur í öllum
tilvikum vilja Guðs verða af-
dráttarlausan - er öruggt að
þú færð innan frá alla þá leið-
sögn og uppörvun sem þú
þarft á að halda. Að þú sért
haldin einhverjum óþarfa
metnaði vísa ég frá á þeirri
forsendu. Það kemur skýrt
fram í skriftinni þinni að ef eitt-
hvað er vantar þig meiri metn-
að og trú á sjálfa þig. Það
kemur líka fram að þú ert við-
kvæm og auðsæranleg, auk
þess að vera hrekklaus mann-
eskja. Kostir þínir eru greini-
lega meiri en gallar og þeir eru
þess eðlis að enginn vafi er á
að þú getur látið feikilega gott
af þér leiða.
Bænin er eitt dásamlegasta
form kærleikans og kostar
ekkert nema einlægan vilja til
að beita henni öðrum til bless-
unar og sjálfum sér til uppörv-
unar og aukins innra lífs. Út-
búðu þér lítið afdrep og finndu
góðan stól að sitja í. Gefðu þér
þrjár til fimm mínútur á hverj-
um degi til að biðja fyrir öllum
þeim sem þrautir og vonbrigði
þjaka. Ekki væri verra að biðja
góðan Guð um betri og jafnari
hlutskipti í skiptingu auðlinda
heimsins og að þjáning þeirra
sem ekki geta borið hönd fyrir
höfuð sér tæki enda.
ATVIK ÚR FORTÍÐINNI
Ef við að lokum skoðum það
sem þú upplifðir sem ung kona
í heimsókninni á spítalann er
ágætt að gera sér grein fyrir
aðalatriðum en láta öll auka-
atriði lönd og leið. Á þessum
árum ert þú ung og óþroskuð
eins og gengur, með takmark-
aða reynslu í andlegum efnum
þó kærleiksrík og leitandi sért.
Þegar þú verður vör við þá
óbærilegu liðan, sem sjúkl-
ingurinn á við að stríða, fyllist
þú óstöðvandi löngun til að
hjálpa honum og velur einfald-
lega þá leið sem þér finnst sú
eina rétta í þessari annars
aumkunarverðu stöðu. Lái þér
hver sem vill. Þú fannst að
ástand viðkomandi sjúklings
var sársaukafullt, ekki einung-
is fyrir hann heldur konuna
hans líka sem vakti yfir honum
dag og nótt. Þú einfaldlega
baðst um hvíld fyrir hann. Ekki
er ástæða að ætla að þú hafir
flýtt fyrir láti mannsins vegna
þess að slíkt væri vanmat á
Guði. Hann er almáttugur og
hlýtur að velja okkur rétt
skapadægur. Vegna þess að
maðurinn dó daginn eftir hefur
þetta kvalið þig. Ef við íhugum
hvað raunverulega gerðist er
aðalatriðið að á þessu erfiða
augnabliki á leiðarlokum
mannsins var ókunnug ung
kona fyrir tilviljun stödd í sama
herbergi og þau hjónin; og það
sem meira er og mikilvægara
en allt annað er að þessi
elskulega kona átti í hjarta
sínu nógan kærleika til að
biðja um hvíld fyrir manninn.
Ekki er vafi á því að þú hefur
með þessum tyrirbænum gert
óhemjumikið gagn og örugg-
lega átt þátt í því beint og
óbeint að umskiptin urðu
sennilega mun léttari mannin-
um og eftirstöðvarnar konunni.
Það eru ekki endilega þau orð
sem við notum sem skipta
máli heldur hugurinn, sem í
þínu tilviki var bæði óeigin-
gjarn og elskurikur og það er
aðalatriði þessa máls, kæra
Þóranna.
Eða eins og hugprúða
hárgreiðslukonan sagði fyr-
ir stuttu að gefnu tilefni:
„Elskurnar mínar, þó hárið
sé farið að þynnast og grána
er ekkert víst að við séum
endilega vitrari. Við verðum
bara að vera sjálfum okkur
samkvæm og kærleiksrík.
Þá verða allar athafnir okkar
og hugsanir einhvers virði,
hver svo sem þiggur þær og
á hvaða aldri sem við erum.“
Kærleikur og vilji Guðs verði
styrkur þinn á þroskabrautinni.
Með vinsemd,
Jóna Rúna.
Vinsamlega handskrifið bréf til Jónu Rúnu og látið tylgja fullt nafn
og kennitölu, ásamt dulnefni. Svörin byggjast á innsæi Jónu
Rúnu og rithandarlestri og því miður er alls ekki hægt að fá þau
í einkabréfi.
Utanáskriftin er:
VIKAN - Jóna Rúna Kvaran - Háaleitisbraut 1, 105 Reykjavík
SELMA HRÖNN GEFUR ÚT PLÖTU
MEÐ EIGIN LÖGUM;
ÚR RAFEINDANÁMI
í SALTFISKINN
- TIL AÐ BORGA EINKAMÁL
Það hefur verið hljótt um
tyrstu íslensku plötuna
sem út kom á þessu
ári. Kannski það sé vegna
þess að platan ber heitið
Einkamál að lög af henni hafa
ekki náð eyrum plötusnúða út-
varpsstöðvanna.
Einkamál hefur að geyma
tiu lög eftir unga stúlku sem
heitir Selma Hrönn Maríudóttir
og hún hefur einnig samið
texta við öll lögin nema þá tvo
sem eru á ensku. Selma
Hrönn fékk til liðs við sig
marga kunna hljóðfæraleikara
og söngvara til að flytja lögin
og textana og gaf plötuna út
sjálf. Við spurðum Selmu
Hrönn hvort hún væri lengi
búin að stunda lagasmíðar.
- Ég byrjaði að semja lög
fyrir þremur árum eða svo, þá
sautján ára gömul. Ég safnaði
þessum lögum inn á band og
valdi svo tfu lög til útgáfu.
Rokkið hefur alltaf verið (
uppáhaldi hjá mér, sérstak-
lega þetta gamla góða eins og
Elvis túlkaði það. Þegar ég
ákvað að gefa út plötuna var
ég með ákveðna hugmynd um
hvernig hún ætti að vera og
vildi þvi sjálf standa að útgáf-
unni. Hins vegar er ég enginn
söngvari og um þá hlið sjá þau
Jóhannes Eiðsson, Pétur
Hrafnsson, Ruth Reginalds,
Sigríður Guðnadóttir, Sigurður
Dagbjartsson, Sólveig Guðna-
dóttir og Þorsteinn Lýðsson.
Svo eru margir góðir hljóð-
færaleikarar sem spila undir -
eins og Friðrik Karlsson, Jón
Ólafsson og Birgir Jóhann
Birgisson.
- Er ekki dýrt að gefa út
plötu?
- Jú, þetta kostaði mig um
eina og hálfa milljón og ég
skulda enn nærri milljón. Enda
varð ég að gera hlé á skólan-
um þar sem ég er að læra raf-
eindavirkjun og fara að vinna í
saltfiski til að geta borgað
skuldir. Skífan dreifir plötunni
og svo er óg að reyna að selja
hana sjálf en það gengur
hægt. Rás 2 og Aðalstöðin eru
einu útvarpsstöðvarnar sem
hafa sýnt mér velvild og kynnt
mig og plötuna en það þarf
víst meira til að koma sér á
framfæri. Ég hef hins vegar
ekki efni á auglýsingum, segir
Selma Hrönn og brosir afsak-
andi.
Þeir sem vilja kynna sér lög-
in hennar Selmu Hrannar ættu
því að verða sér úti um eintak
af Einkamálum á plötu, geisla-
diski eða kassettu. Það er ekki
á hverjum degi sem ungar
stúlkur fara f saltfiskvinnu til
þess eins að borga fyrir lögin
sín.
13.TBL. 1990 VIKAN 41