Vikan - 28.06.1990, Blaðsíða 51
km frá sjó sem hefur sett svip
sinn á afkomu hennar og
sögu. Áriö 418 var Sevilla
höfuðborg þess konungsríkis
sem Vestgotar stofnuðu, 300
árum síðar náðu múslimar
yfirráðum í borginni og skírðu
hana Izvilla. Eftir að Fernando
þriðji vann frækinn sigur og
náði yfirráðum Sevilla 1248
upplifði borgin enn á ný glæsta
tíma og var þá þegar hafin
bygging skipasmíðastöðvar.
En þrátt fyrir allt þetta var það
fundur Ameríku og stofnun
verslunarráðs sem sá til þess
að Sevilla skaust upp á
stjörnuhimininn, ekki aðeins
frá fjárhagslegu sjónarmiði,
sem mikilvægasta hafnarborg
heimsins á sextándu og sautj-
ándu öld, heldur einnig sem
listamiðstöð þar sem dýrkuð
var höggmyndalist og málara-
list og fór þar fremstur í flokki
Velázquez. Þarna á einkar vel
við að taka með sér eintak af
Don Kíkóta því Cervantes
setti þetta hugverk sitt á blað
meðan hann sat ( fangelsi (
Sevilla. Það er ekki nokkur vafi
á því að tónverkin Carmen eft-
ir Bizet og Rakarinn í Sevilla
verða endurvakin í einhverri
mynd þegar haldið verður upp
á 500 ára afmæli fundar Amer-
íku í Sevilla 1992 því sögusvið
þessara ástkæru ópera er ein-
mitt Sevilla.
HINIR RÍKU,
UNGU OG FÖGRU
Um hálftíma akstur frá Torre-
molinos er svo sumardvalar-
staður þeirra „ríku, ungu og
fögru", Marbella og lysti-
snekkjuhöfnin Puerto Banús.
Marbella er nokkurs konar
Cannes Costa del Sol, þarna
hafa árum saman safnast
saman frægustu kvikmynda-
stjörnur heims og margar
þeirra eiga hús í Marbella og
má þar meðal annars nefna
Elizabeth Taylor. Hér eru ný-
leg hús sem hönnuð eru svo
heildarmyndin verði eins og af
gamalli hafnarborg. Glæsileg-
ustu snekkjur sem um getur í
einkaeign liggja þarna við
landfestar og mikið er um dýr-
ar tískuverslanir og veitinga-
staði.
LIFANDI HEFÐIR LANDS
Þegar komið er heim á hótel
að kvöldi dags er um ýmsa
Framhald á bls. 54
A6 kvöldlagi bera söguminjar
um trú og hefðir rómantískan
blæ á torgum I þorpum á Spánl.
minnismerki um arabalist á
öllum Spáni. Alhambra er
byggö á hæð og er furðuleg
blanda af höll og virki og aö
heimsækja hana er eins og að
fara í ferð inn í fjórtándu öld-
ina. Beint fyrir ofan höllina eru
svo Generalife-garðarnir sem
hannaðir voru sem hvíldar-
staður fyrir forna gyðingakon-
unga. Granada er skemmti-
lega blönduð borg því
minningar úr sögu borgarinnar
blasa hvarvetna við. Vissulega
ber mest á arabaáhrifunum en
einnig má greina áhrif frá
endurreisnar- og barokktíma-
bilinu. _______________
Næst er tilvalið að heimsækja
Cordoba og byrja þar á því að
leita uppi Aljama-moskuna. í
henni má sjá upprunalegan
kalífa-stíl og fyrir nokkrum
árum var moskan friðuð sem
minnismerki. Það var kalífinn
Abd al-Rahman sem lét hefja
byggingu hennar árið 785 og
Almanzor sem lauk við hana
árið 987. Þegar kristnir menn
fengu yfirráð yfir moskunni var
síðan byggð við hana dóm-
kirkja á miðöldum. [ fornminja-
safni Cordoba er að finna
menjar úr litríkri sögu borgar-
innar undir yfirráðum fbera,
Rómverja, Vestgota og músl-
ima auk muna frá endurreisn-
artímabilinu. í næsta húsi er
listasafn borgarinnar, þar
sem meðal annars gefur að
líta málverk eftir þá Goya og
Murillo.
500 ÁRA FUNDUR
AMERÍKU
Sevilla er staðsett aðeins 60
Spánn býður upp á mjög fallegt landslag í skjóli gamalla hefða og
húsa.
AÐBRÆÐAAFSÉR
GRÝLUKERTIN
Um 500 km fyrir sunnan Mad-
rid liggur vinsælasta sólar-
strönd Evrópu - Costa del Sol.
Ströndin teygir sig í báðar áttir
frá Malaga sem liggur fyrir
miðri strönd. Næsti bær við
Malaga er Torremolinos sem
(slendingum er að góðu kunn-
ur úr óteljandi sólarlandaferð-
um síðastliðin 20 ár. Torre-
molinos er sambland gamalla
hefða og nýrra siða og þar eru
búðirnar, krárnar, diskótekin
og galleríin á sínum stað en
alið síðan Balenciaga var og
hét og fyrirtækið Cibo, sem
stendur á bak við Jean Paul
Gaultier, fjöldaframleiðir hönn-
un hennar og selur - eins og
heitar lummur-til Ameríku og
Italíu. Nú nýverið fór japanskt
fyrirtæki að leita samninga við
hana og lofaði gulli og græn-
um skógum.
í fötum hennar endurspegl-
ast einhvers konar tímalaust
sakleysi og henni er oft líkt við
Romeo Gigli í Mílanó. Víst er
að hönnun hennar er afar ólík
þeirri voldugu siðfágun og
borgarbrag sem birtist í fötum
þeirra Armani og Yves Saint
Laurent og þeir sem best
þekkja til verka Sybillu segja
þau minna sig á goðsagnir og
ævintýri.
Sybilla komst að sem lærl-
ingur hjá Yves Saint Laurent
og þó hún staldraði ekki lengi
við, lærði hún þar að meta fal-
leg efni. „Með nál og þráð og
fallegt efni er hægt að gera
hvað sem er,“ segir hún.
færri gera sér kannski grein
fyrir því að í innan við tveggja
tíma keyrslu er að finna sumar
stórkostlegustu söguminjar
Evrópu.
STÓRKOSTLEGAR
SÖGUMINJAR
[ rúmlega 100 km fjarlægð frá
Torremolinos liggur borgin
Granada sem skáldin hafa
lofsungið gegnum aldirnar.
Það væri ómögulegt að ætla
að draga sögu Granada sam-
an ( stutt mál en látum nægja
að nefna að hún var síðasta
vígi Máranna á Spáni. Þeir
reistu þar hina ægifögru Al-
hambrahöll sem er glæstasta
13, TBL. 1990 VIKAN 51