Vikan - 28.06.1990, Blaðsíða 52
NATURNER
Framhald af bls. 49
inni með okkur maður sem var
mjög andlega þenkjandi og
stundaði jóga. Hann passaði
ekki vel inn í hljómsveitina
enda var hann aðeins í sex
mánuði. Hann hætti vegna
þess hvernig Ike kom fram við
mig. Ef ég mætti á sviðið með
áverka eftir Ike lagði hann nið-
ur hljóðfærið og hvarf af svið-
inu. Hann kom mér til að trúa á
sjálfa mig.
Svo var það Mick Jagger
sem sagði: „Heyrðu, þú gætir
verið hirðulaus og villt í útliti."
Þá hugsaði ég með mér: Ekk-
ert mál, af hverju ekki að líkj-
ast Mick að einhverju leyti.
Hvaða kona hefur haft
mest áhrif á þig?
Jacqueline Kennedy Onas-
sis er sú kona sem ég hefði
helst kosið mér að vera. Ég
hitti hana einu sinni og drakk [
mig alla hennar tilburði og
framkomu'. Ég hef alltaf reynt
að verða betri miðað við það
uppeldi sem ég fékk.
Einhvern veginn virðist
óhugsandi að Tina Turnar
mæti á sviðið vel til höfð f
kvöldkjól með Proud Mary á
söngskránni.
Ef ég sýndi mannasiði á
sviðinu og væri ekki svona villt
hefði ég ekki þessi seiðmögn-
uðu áhrif. Þetta er leyndar-
dómurinn. Þegar ég er á svið-
inu get ég sagt: „Ég veit hvað
þið haldið um mig en það er
ekki rétt.“ Þetta gerir mig
sterka. Ég get ekki ásakað fólk
fyrir að halda að ég sé villt
svört kona en þetta er ekki hin
raunverulega ég. Ég hef aldrei
talið mig vera kynæsandi, ég
hef bara dansað og ég nýt
þess að leika með áhorfend-
um.
Mín hugmynd um kyn-
þokkafulla konu er Marilyn
Monroe. Hér áður fyrr fannst
mér ég alltaf vera of mjó og
hafði því lítið sjálfstraust. Það
er ekki fyrr en nú seinni árin
þegar líkami minn fór að
þroskast og ég hafði skapað
mér mína eigin ímynd með til-
heyrandi hjálpargögnum að ég
varð ánægð með sjálfa mig.
Þú hefur talað um að
hætta hljómleikahaldi og
færa þig yfir í kvikmyndir.
Getur orðið af því?
Ég held að ég eigi alltaf eftir
að koma fram en ekki eins
mikið. Hljómleikaferðir eru
mjög erfiöar og þeim fylgir
mikið álag. Núna verð ég að
finna mér stað á hvíta tjaldinu.
En það verður að vera eðlilegt
hlutverk, eitthvað sem hæfir
mér. Ég hef ekki fundið mig í
þeim hlutverkum sem ég hef
leikið hingað til. Ég hef talað
við marga leikstjóra og fram-
leiðendur en ég enda með því
að skapa mína eigin ímynd.
Ég hef náð nýjum áfanga í lífi
mínu. Hérna er ég. Tilbúin að
gerast leikkona. Tilbúin að búa
í Evrópu. Og ég hlakka til að
verða gömul. Við erum að tala
um gamla, heilbrigða konu. Ég
á enn eftir að koma fólki á
óvart.
Svo mörg voru þau orð
þessarar rafmögnuðu konu
sem heillað hefur nokkrar kyn-
slóðir áhorfenda. Við eigum
enn eftir að njóta hennar - þó
kannski á öðrum sviðum en í
rokkinu. Hvað sem á bjátar
lætur hún ekki deigan síga en
heldur ótrauð áfram inn í fram-
tíðina.
Þeir sem hafa áhuga á að
sjá hana á hljómleikum eiga
enn kost á því. í sumar verður
hún með hljómleika í Evrópu,
þar á meðal í London í júnílok
og fram í júlí.
Lausnarorö í síðasta blaöi 1-6: SMALAR
52 VIKAN 13. TBL. 1990