Vikan - 28.06.1990, Side 68
mimmim
HANNSKAUTÁ
OKKURBÁÐAR
Kœri draumráðandi!
Míg dreymdi draum sem mér
fannst svolítið skrítinn þvt ég er
ekki ván að muna hvað mig
dreymir.
Mig dreymdi að það var
hringt í mig og sagt að ég œtti
að fá mikinn arf frá einhveijum í
Ijölskyldu pabba míns og eftir
það var alltaf einhver maður að
elta mig. Hann var svona 25 ára
(ég hef aldrei séð hann), með
kolsvart hár, dökkur í framan og
meðalstór. Hann etti mig út um
allt og ég komst að því að hann
vildi líka fá arfinn. Svo náði hann
mér og annam stelpu sem ég
hef aldrei séð og þekki ekki.
Hann náði okkur í stóru húsi og
skauf fyrst stelpuna og svo á mig.
Hann hitti mig ekki en hin dó. Ég
hélf niðri í mér andanum
þangað til hann fór.
Hann komst að því að ég
hefði ekki dáið og bað mig um
að koma og hitta sig og ég
gerði það. Þá sagðisf hann vilja
fá allan arfinn. Ég sagðist vilja
halda lífinu frekar en að fá arfinn.
Svo sagði hann að ef ég
eignaðist einhvem tíma tvíbura
fengi ég allan arfinn og húsið. Ég
var ólétt en það vissi enginn,
Síðan eignaðist ég Ivíbura, strák
og stelpu. Þegar ég eignaðist
þau sagði ég að fyrst ég œtti
ekki tvo stráka yrði ég aflur að
eignast bam,
Svo fékk ég arfinn og flutti í
húsið (það var sama húsið og
hann skaut á okkur 0. Þar vooj
bðmin bcBði í hvítum
rimlarúmum hlið við hlið, Þau
voru í bláum og bleikum
froftégölium.
í þessu húsi bjó líka þessi
maður og fullt af öðru fólki sem
ég hef aldrei séð. Þetta hús var
allt voðalega dökkt að innan en
hvítt að utan.
Ég vona að þú getir ráðið
þetta fyrir mig.
Dísa.
RÁÐNING
Draumar um ofsóknir og morð
á manni sjálfum stafa oft af því
að í vökulífinu hafi maður brotið
einhverja reglu sem maður hef-
ur sett sér (bannað að hata,
öfunda, reiðast o.s.frv.). Sá eða
sú sem eltir mann, ofsækir,
drepur mann, er skuggahliðin.
Við viljum helst lítið vita um
verri hliðar okkar, hvað þá
viðurkenna þær og þykja vænt
um þær og fyrirgefa sjálfum
okkur. Því minna sem maður
gefur skugganum gaum því
óviðráðanlegri verður hann.
Mér sýnist sem þú hafir ekki
horfst í augu við raunverulegar
tilfinningar þínar gagnvart föður
þínum. Þar af leiðir að ef þú
hefur haft hugsanir eða talað
um hann á þann hátt sem brýt-
ur í bága við einhverjar reglur,
sem þú eða mamma þín hafið
sett, jafnvel í æsku, þá kemur
draumurinn til þess að refsa
þér. Ég er þar með ekki að
segja að þú eigir að forðast nei-
kvæðar hugsanir um hann
heldur hafa hugrekki til þess að
horfast í augu við allar tilfinning-
arnar sem þú hefur gagnvart
honum og sýna sjálfri þér
skilning. Þá hættir þú að þurfa
að refsa sjálfri þér.
Skuggalegi ungi maðurinn er
þarna til þess að sýna þér að
hluti af þér hefur ákveðið að þú
eigir ekkert skilið frá föður
þínum. Sem sjálfsvörn býrðu til
aðra stelpu sem er drepin í þinn
stað í húsinu. Ég sé það á sk-
riftinni að þetta augnablik í
draumnum hefur verið skelfilegt
fyrir þig. Það er verk þessa
hluta í þér sem vill refsa þér.
Síðan kemur þetta skref sem
við tökum svo oft í lífinu, við
semjum. Við semjum oft við
Guð, sérstaklega í miklum veik-
indum og hörmungum, en það
gerist líka að við semjum við
sjálf okkur.
Þú heldur lífi, þú missir af
föðurnum, en ef þú fæðir tví-
bura færðu arfinn. Já, það er
ekki einu sinni nóg að eiga eitt
barn heldur þarftu að gefa tvö
og í draumnum viltu meira að
segja eignast drengi og ert
hrædd um að stelpan spilli fyrir
þér. En það er óþarfi, þú færð
arfinn.
En það er eins og þú hafir
gert samning við heldur nei-
kvæð öfl því þótt þú virðist hafa
borið sigur úr býtum að lokum
er húsið drungalegt og í kaup-
bæti fylgir skuggalegi ungi
maðurinn og fleira ókunnugt
fólk.
Slíkir samningar eru oftast til
lítils og leiða ekki gott afsér. Þú
getur ekki ætlast til að efþú gef-
ur eða gerir eitthvað stórkost-
legt, endurheimtir þú föður þinn
(föðurarfinn). Sá sigur yrði þér
innantómur því það er margt
ósagt og óleyst sem ekki
hverfur.
KETTIR, MIKILL
SNJÓR, RIFRILDI,
UÓTIR LITIR
Kœri draumráðandi
Mig langartil að biðja þig að
ráða fyrir mig tjóra drauma sem
mig dreymdi nýlega og man
vel. Ætla ég að biðja þig að
sleppa öllum nöfnum.
Þá koma draumarnir í þeirri
röð sem mig dreymdi þá.
Mér fannst ég ganga upp
fyrir hlöðu í snjó og sá inn í
hana því það vantaði aðra
hurðina fyrir. Þar voru kettir inni,
þrír eða fjórir spakir og góðir. Ég
fer inn og það er hey inn að
miðju, svo er fé í stíum. Það er
allt mórautt og svart og búið að
rýja það. Ullin var undir þeim og
ég fór að taka hana saman,
Draumur 2,
Það er allt hvítt og mjög
fallegt og bjart yfir. Mikill snjór
fyllir öll gil og skorninga og
harðfenni, Ég og sambýlismaður
minn áttum Ivo jeppa, pikk-
uppa. Við vorum eitthvað að
rífast. Hann fór og hleypti
vatninu af óðrum bílnum en fór
í fússi á hinum upp fjall. Fannst
mér að hann hleypti vatninu af
svo ég gœti ekki elt hann. Ég
kalla á bróður minn og bið
hann að hjálpa mér að finna
vatnskassann, Hann var undir
sílsalistanum. Setti ég vatn á
bílinn en œtlaði ekki að elta
manninn.
Draumur 3.
Ég og fleira fólk vorum stödd
á nœsta bœ. Allir voru sparibún-
ir. Vorum við að horfa út um
gluggann og sáum að bœjar-
gilið var alveg fullt af snjó og
veggur af snjó þar sem er bratt.
Ég opna útidyrnar og það eru
tvœr til þrjár tröppur niður og
þar var líka snjór. Mér fannst
fólkið koma út á pallinn og líka
sá sem býr þama,
Draumur 4.
Ég og systir mín vorum að
fara á Selfoss á bíl. Ég aetla að
taka mynd af brúnni og láta
sjást undir hana. Svo fórum við
inn í verslun. Systir mín vildi
endilega láta mig kaupa
grœnt flauelspils en mér fannst
það Ijótt og keypti ekki. Ég sá
kjól sem var síður, fleginn í
bakið, hvítur og Ijósbleikur með
gylltu undir brjóstunum. Hann
var úr einhverju mjög léttu og
var ofsalega fallegur. Hann átti
að kosta 176.804 kr. Fannst mér
hann dýr en svo fallegur að ég
œtlaði að kaupa hann. Nú var
draumurinn ekki lengri og man
ég þetta mjög vel.
Vonast effir ráðningu á öllum
draumunum. Þá þrjá fyrstu
dreymdi mig þrjár nœtur í rðð
og svo þann síðasta nokkrum
dögum síðar.
Með þökk fyrir gott blað
Dísa
P.S. Mig langar tíl að bœta
við einum stuttum sem mig
dreymdi núna síðast. Hann er
svona, Ég var stödd í verslun og
œtiaði að kaupa mér kuldaskó
en það fengust bara lágir skór.
Ég vildi háa og keypti því enga,
aetiaði að leita betur. Svo var
ég komin inn í bíl systur minnar
og hún sýndi mér tvœr peysur.
Aðra hafði hún prjónað og
fannst mér hún Ijót en hitt var
Ijósblá herra peysa, mjög
falleg. Ætlaði ég að fá hana
eða aðra eins. Ég hafði séð
svona peysu áður en ekki í vöku.
Með fyriífram þökk fyrir birting-
una.
RÁÐNING
Það er auðséð á draumunum
að þú ert ekki sérlega ánægð
með þinn hlut. Landslag og
aðstæður tengjast því um-
hverfi sem þú býrð í og þeim
aðstæðum sem þú lifir við.
Snjórinn í draumnum þínum
er annað tveggja eðlilegt fyrir-
bæri, sem þú ert vön, eða tákn
um erfiðleika, misklíð. Þú ert
ekki sátt við hlutverkið sem
þér er ætlað og þér finnst verið
að neyða upp á þig hlutverkinu
en sjálf sértu allt öðruvísi en
aðrir ætla. Þitt sanna sjálf á í
stöðugri baráttu við þá aðila
sem vilja hafa þig öðruvísi en
þú ert. Ekki veit ég hvort þessi
barátta þín kemurfram í vöku-
lífinu en í draumnum kemur
oft fram það sem við horfumst
ekki í augu við dags daglega.
68 VIKAN 13.TBL. 1990