Vikan - 26.07.1990, Side 9
LJÓSM.: GUNNLAUGUR RÖGNVALDSSON
C\oc»i*77
þjóðsöguna um að Akureyr-
ingar séu lokaðir og erfitt fyrir
aðkomufólk að kynnast þeim?
„Ég mótmæli þessari sögu
harðlega. Hvað gerum við
þegar utanbæjarfólk kemur í
bæinn? Hópumst við að því og
bjóðum það velkomið? Nei, og
auðvitað er það heldur ekki
gert þegar við komum til Akur-
eyrar. Mér finnst afskaplega
gott fólk hérna á Akureyri og
ekkert erfiðara aö kynnast því
en öðru fólki. Ég hef alltaf mót-
mælt þeim orðrómi."
- Saknarðu einhvers úr
Reykjavík?
„Auðvitað vina og vanda-
manna, annars aðallega þess
sem flokkast undir skemmtan-
ir. Sérstaklega sakna ég
leikhúsanna og einnig má
nefna kvikmyndahúsin og
ýmsar uppákomur. Það er ekki
eins mikið í boði á Akureyri.“
- Að lokum, Kristín, þú tal-
ar um að það sé gott aö búa á
Akureyri, fólkið sé gott, en er
ekki eitthvað sem betur mætti
fara?
„Jú, auðvitað gildir það á
Akureyri eins og annars
staðar. Ég get nefnt að mér
finnst gæta lítils frumkvæðis
hjá Akureyringum. Það er eins
og þeir séu alltaf að bíða eftir
því að eitthvað komi til þeirra.
Þeir hugsa ekki mikið um hvaö
þeir sjálfir geta gert til að bæta
bæjarfélagið og atvinnulífið
heldur bíða eftir að þetta komi
frá einhverjum öðrum. Frum-
kvæðið vantar hjá Akureyring-
um.“
góðir þegar hann fór að kynn-
ast þeim.
„Ég kynntist náttúrlega
minni konu hér og ég get ekki
kvartað!"
- Hvað um ókostina?
Skortir eitthvað á Akureyri
sem þú getur fengið í Reykja-
vík?
„Jú, sýningarsali og söfn.
Það vantar þetta sem maður
var búinn að lifa við. ( Reykja-
vík er nokkuð fjörugt myndlist-
arlíf og enn fjörugra þar sem
ég var úti. Síðan kem ég hing- '
að heim og fæ þá hálfgert
menningarsjokk. Ég var við
kennslu og umgekkst áhuga-
myndlistarmenn á Akureyri.
Það var ansi skemmtilegur
tími að mörgu leyti og sjálfsagt
hef ég sett mig í einhvers kon-
ar trúboðsstellingar þegar ég
kom. Maður vildi útbreiða
fagnaðarboðskapinn, bæði í
þessu og öðru.“
- Pólitíkinni?
„Það var ekki laust við að ég
væri upptekinn af pólitíkinni og
kannski uppteknari af henni en
listinni á tímabili. Ég fór til
dæmis að vinna í Slippstöð-
inni til að setja mig í spor
fólksins."
En Akureyri er ekki alveg
menningarsnauður bær þrátt
fyrir skort á sýningarsölum
fyrir myndlistina og nefnir
Guðmundur Menningarsam-
tök Norðlendinga sem lyfti-
stöng i menningarlífinu. Sjálf-
ur hefur Guðmundur innréttaö
vinnustofu fyrir sig í gömlu
verksmiðjuhúsi baka til við
Kaupvangsstræti.
Guömundur Ármann er
kunnur myndlistar-
maður hér á landi,
ekki síst fyrir grafíkverk sín.
Hann hefur búið lengi á Akur-
eyri og ekki víst að allir af yngri
kynslóðinni geri sér grein fyrir
að Guðmundur er ekki inn-
fæddur heldur aðfluttur úr
Reykjavík.
- Þú fluttist til Akureyrar
haustið 1971. Eru Akureyringar
ekki löngu búnir að taka þig í
sína tölu?
„Nei, ég held ekki. Maður
finnur enn dálítið fyrir því að
vera utanbæjarmaður. Ég
meina ekki dags daglega en oft
hittir maður innfædda Akureyr-
inga sem láta í það skína að
það sé nú munur á mér og
þeim. Þetta er yfirleitt sagt í
og þegar maður er ekki innan
um sfna eigin fjölskyldu gæti
þetta komið svona út.“
- Má vera. En hvernig er
svo að búa á Akureyri?
„Mér finnst það alveg Ijóm-
andi gott og mér líkar vel að
vera hér. Veðursældin er stór
kostur, stillurnar og hlýindin. (
Reykjavík er alltaf gola og oft
rigning, loftið miklu rakara. Ég
er ekki hissa á því að sjá
gamlar, fallegar garðmyndir frá
Akureyri þar sem fólk er úti að
borða. Þetta er sjaldgæft I
Reykjavík. Þegar sólin skín þar
híma menn sunnan undir vegg
I skjóli fyrir norðanáttinni."
MENNINGARSJOKK
Guðmundur segir að Akureyr-
ingar hafi reynst traustir og
MYNDLISTARMAÐUR:
AKUREYRINGAR ANSI
ÍHALDSSAMIR OG FASTHELDNIR
gríni og er mér aldrei til ama en
það þykir sjálfsagt að minna
mig á upprunann."
- Hvernig komu Akureyring-
ar þér fyrst fyrir sjónir? Var erfitt
að kynnast þeim?
„Ég er ekki frá því að þeir
séu ansi íhaldssamir og fast-
heldnir. Þetta fann maður fljótt.
Það þarf dálítinn tíma til að
kynnast þeim og ég held að
þjóðsagan, sem kveður á um
þetta atriði, sé sönn. Við erum
náttúrlega mikil fjölskylduþjóð
GUÐMUNDUR ÁRMANN SIGURJÓNSSON
15TBL. 1990 VIKAN 9
TEXÍIOG MYNDIR: STEFAN SÆMUNDSSON