Vikan - 26.07.1990, Page 10
TEXTI: GUÐRÚN BERGMANN
◄ Skreyttur heilögum fjöðrum, með stóran
fjaðurstaf og arnarhöfuð á stöng mun þessi
ungi stríðsdansari vekja upp kraft arnarins
með dansi sínum.
Taktfastur trumbusláttur fyllir
salinn. Við hverja trumbu sitja
nokkrir menn og slá taktinn.
Stundum syngja þeir með en
orð þeirra eru torskilin. Þeir eru
að syngja um ástríður, vonir,
baráttu og sigra. Hljóðin frá
trumbunum minna á forna tfma
og eru dálítið hrá. Orð kynnisins
rjúfa trumbusláttinn og manni
finnst einhvern veginn að þau
trufli andrúmsloftið. í framhaldi
af kynningu hans birtast á
hringsviðinu fyrstu dansandi
indíánarnir í fullum skrúða.
Fremstir í flokki ellefu hundruð
indíána sem opnuðu Red Earth
'90 hátíðina í Oklahoma City í
júní.
Vikan á ólympíu-
leikum indíána
FRÁ NÝAFSTAÐINNI HÁTÍÐ í OKLAHOMA: RED EARTH ’ 9 0
Hátíðin var fyrst haldin
1987 og hefur verið
haldin árlega síðan.
„Þetta eru okkar ólympíuleik-
ar,“ sagði einn indíáninn við
mig. „Við hittumst hér til aö
keppa í þjóðaríþróttum okkar, 2
dansi, hlaupum og öðrum <
keppnisgreinum sem hafa ver- g
ið stundaðar meðal þjóðflokka “
okkar frá örófi alda.“ Um leið 1
og þeir keppa innbyrðis hver §
við annan kynna indíánarnir ^
menningu sína og listir fyriro
hinum vestræna heimi. Menn-
ingarsamfélög þeirra hafa
verið undirokuð af hvíta
manninum og því hafa margir
siðir, næstum eða jafnvel
alveg, fallið í gleymskunnardá
en það er mikil vakning meðal
þeirra um að viðhalda og
endurvekja gömlu hefðirnar.
Þarna hittast yfir hundrað
þjóðflokkar indíana Norður-
Ameríku og Kanada í sátt og
samlyndi og koma fram sem
ein heild, „innfæddir" Norður-
Ameríkubúar.
Víðs vegar um Bandaríkin
hafa verið stofnuð samtök
sem stuðla að því að viðhalda
menningararfleifðinni. Lögð
hefur verið rækt við að skrá
munnmælasögur indíánanna,
sem gengu mann fram af
manni í gegnum „sögumenn",
karla eða konur í hópunum
sem kunnu dæmisögurnar og
Frh. á næstu opnu
◄ Þessi ungi indíáni er 6 ára
og heitir Danny.
10 VIKAN
15TBL 1990