Vikan - 26.07.1990, Síða 14
Sebastian Kruger, 27 ára gamall mynd-
listarmaður frá Hannover í Þýskalandi,
var pönkari fyrir sex árum eða svo og
hlustaði mikið á Sex Pistols. Svo leið
pönkið undir lok og hann fór að veita The
Rolling Stones athygli. Ekki bara vegna
tónlistar heldur fyrst og fremst vegna út-
litsins. Síðan hefur hann málað risastórar
myndir af þeim, hverja á fætur annarri.
„Mér finnst skemmtilegast að fást við
Keith Richards," segir hann. „Mér líkar
ekki alveg eins vel við hina. Til dæmis
finnst mér Mick allt of uppskafningslegur."
Kruger hefur málað myndir af Keith,
eða „Keef“ eins og hann kallar hann, í
fjölda blæbrigða og stíltegunda og virðist
aldrei fá nóg af honum. Reyndar hefur
hann málað margar myndir af hinum Roll-
ingunum líka. Hingað til hefur hann þurft
að styðjast við Ijósmyndir af þeim en þær
notar hann fyrst og fremst til hliðsjónar og
andagiftar. Hann á sér því þá ósk heitasta
að fá að sjá þessi átrúnaðargoð sín augliti
til auglitis einn góðan veðurdag.
„Ég myndi þá biðja þá um að sitja fyrir
hjá mér,“ hefur hann sagt. „Og síðan
myndi ég bara teikna þá í rólegheitum."
Yngsti rollingurinn, Ron Wood.
ROLLING STONES AÐ UUKA HEIMSREISU:
EFTIR AÐSÓKNAR-
METALLRATIMA
■ að er ekki nóg með að The Rolling
( Stones sé einhver frægasta rokk-
I M hljómsveit allra tíma heldur er hún
líka sú óútreiknanlegasta. Árið
B 1965 reyndu framtakssamir menn að fá
hana til hingað til lands en fengu svohljóðandi
skeyti frá henni: „Höfum hvorki tíma né áhuga
á að koma til íslands. The Rolling Stones." En
tímarnir breytast og mennirnir með. Árið 1972
sagði Mick Jagger, sem nú er 47 ára, að hann
ætlaði að hætta í bransanum þegar hann yrði
33 ára og hann hefur líka lýst því yfir að hann
gæti ekki ímyndað sér sjálfan sig í rokkinu um
fimmtugt. Fyrir nokkrum misserum var ósætti
svo mikið milli höfuðpóla Rollinganna, Keiths
og Micks, að allt útlit var fyrir að hljómsveitin
væri endanlega búin að leggja upp laupana og
spilaði aldrei framar. Um svipað leyti var rætt
um að Bítlarnir kæmu aftur fram opinberlega
með Julian Lennon í stað Johns heitins. Sá
möguleiki þótti jafnvel líklegri en að Rollingarn-
ir yrðu endurreistir. En svo gerðist það í fyrra,
GÖMLU MENNIRNIR SKJÓTA ÖLLUM YNGRI STÓR-
14 VIKAN 15TBL1990
PJM OG PORSTEINN EGGERTSSON TÓKU SAMAN