Vikan


Vikan - 26.07.1990, Síða 41

Vikan - 26.07.1990, Síða 41
hæröur og með grátt yfirskegg. Framkoma hans, sem var djarfleg og viðfelldin, benti til þess að hann væri skipamiðlari sem hefði dregið sig í hlé með laglegan skilding í handr- aðanum. Kona hans var há, kraftalega vaxin og harðleg á svipinn. Hún var munnstór og nefstór, hafði gróft Ijóst hár og veðurbitið andlit. Hún var ekki aðeins hversdagsleg held- ur Ijót. Dýru, fínu fötin fóru henni illa og hefðu hentað betur átján ára gamalli stúlku en frú Craig sem var um fertugt. - Þeim þykir svo vænt um hvort annað, sagði ungfrú Gray, - og þau dýrka barnið sitt. Þau áttu eins árs gamalt barn og af því réð ungfrú Gray að þau væru ekki búin að vera gift lengi. Hún naut þess að sitja og horfa á þau leika sér við barnið. Á hverjum morgni ók barn- fóstran út með það en fyrst höfðu foreldrarnir leikið sér að því frá sér numin að kenna því að ganga. Þau stóðu nokkur skref hvort frá öðru og lokkuðu barnið til sín. Þegar það datt var því lyft upp og faðmað. Að lokum stóðu þau við vagninn, gældu við það og töluðu við það á barnamáli eins og þau gætu ekki afborið að skilja við það. Þar sem ungfrú Gray vissi ekki skírnarnöfn þeirra kallaði hún þau Edwin og Angelfnu og bjó til eftirfarandi sögu um þau: Fyrir mörgum árum, já kannski tuttugu, höfðu þau verið ást- fangin hvort af ööru. Þá hafði Angelína verið yndisleg, ung stúlka og Edwin myndarlegur, ungur maður sem leit björtum augum á fram- tíðina. Þau voru bláfátæk og gátu ekki gift sig. Edwin ákvað að fara til Suður-Ameríku, freista gæfunnar og koma auðugur aftur til stúlkunnar sem skyldi bíða hans þolinmóð. Það tæki ekki nema tvö til þrjú ár, í hæsta lagi fimm ár. Hvað var það fyrir tvítugar manneskjur sem höfðu allt lífið framundan sér? Á meðan átti Angelína auðvitað að búa hjá móður sinni. En það fór öðruvísi en til var ætlast. Aö fimm árum liðnum var Edwin jafnbláfátækur og áður. En ást Angelínu og kærleiksrík bréf hennar veittu honum hugrekki til að halda bar- áttunni áfram. Hún hefði gjarnan viljað komatil hans og heyja baráttuna við hlið hans, en hvernig gat hún farið frá móður sinni? Þannig liðu árin. Hár Edwins gránaði og Angelína varð mögur og Ijót. Dag nokkurn sá hún að æskan hafði brosað háðslega við henni, hneigt sig og kvatt. Hún sþurði sjálfa sig hvort Edwin elskaði sig enn og hvort hann kæmi nokkurntíma aftur. Þannig liðu tíu ár, fimmtán, tuttugu. Loks skrif- aði Edwin að nú ætti hann næga peninga til að þau gætu lifað áhyggjulausu lífi til æviloka. Ef hún væri fús til að giftast honum kæmi hann undir eins. Þegar þau hittust sá hún sér til skelfingar að Edwin leit enn út eins og ungur maöur. Þó hár hans væri orðið grátt fór það honum aðeins vel. Sjálfri fannst henni hún vera jafngömul og Metúsalem og bauð honum að leysa hann undan heiti sínu. Þá fölnaði hann og sagði: Viltu mig ekki lengur? Þá skildi hún - ó, hvílíkur fögnuður - að í hans augum hafði hún heldur ekki breyst. Og svo giftust þau. - Ég er viss um að þetta er rétt, var ungfrú Gray vön að Ijúka máli síriu. - Og nú lifa þau hamingjusöm til æviloka. Meðan ég var að rifja þetta upp hafði hún gengið út að glugganum. - Nú sé ég, hvers vegna Craighjónin koma svona seint, sagði hún allt í einu. - Þau hafa viljað bíða eftir að barnið kæmi heim. Ég leit í sömu átt og sá hvar barnfóstran kom akandi meö vagninn. Craig tók barnið upp og lyfti því hátt á loft. Frúin horfði hrifin á hvernig það reyndi að ná i yfirskeggið á hon- um og brosið gerði ófrítt andlit hennar næstum fallegt. Þegar þau komu inn kynnti ungfrú Gray mig fyrir þeim og sneri sér svo að dómaranum: - Þetta er Edward Landon - Craighjónin. Ég hafði vænst þess að dómarinn kæmi á móti þeim með útrétta höndina en í þess stað lyfti hann einglyrninu, sem ég hafði svo oft séð hann nota í réttinum með góðum árangri, og virti þau vandlega fyrir sér. Svo lét hann ein- glyrnið falla og sagði: - Góðan daginn. Höfum við ekki sést áður? Ég leit á Craighjónin. Þau höfðu fært sig nær hvort öðru. Þau sögðu ekkert. Frúin virtist W. SOMERSET MAUGHAM Þessi enski rithöfundur fæddist i Paris áriö 1874 og dó í Frakklandi 1965. Hann varö munaöarlaus tíu ára gamall en ólst upp hjá frænda sínum sem sendi hann til mennta í læknisfræði. Verk Maug- hams einkennast fyrst og fremst af fyrirmannlegu umhverfi, skilningi á mannlegu eðli og stíl sem er mjög blátt áfram. Hann starfaði um skeið sem njósnari í fyrri heimsstyrjöldinni og hefur það líklega haft nokkur áhrif á heimspekilegar skoðanir hans. Hann þótti jafnvígur á leikrit og skáldsögur. skelfingu lostin. Maður hennar var eldrauður í framan og það var engu líkara en augun ætl- uðu út úr höfðinu á honum: - Það held ég ekki, sagði hann, - en auðvitað hef ég heyrt yðar getið. Ungfrú Gray hafði verið önnum kafin við að hrista kokkteilinn og ekki veitt þessu neina at- hygli. Ég vissi ekki hvað það táknaði - ef það þá táknaði nokkuð. Atvikið hafði gerst svo fljótt að ég hélt jafnvel að það stafaði af augnabliks feimni hjónanna við aö vera kynnt fyrir svo frægum manni. Svo ég ákvað að reyna að hjálpa þeim. Við ræddum um hitt og þetta en dómarinn tók engan þátt í umræðunum heldur starði niður á tærnar á sér eins og hann hefði enga hugmynd um nærveru okkar. Þegar við komum að öðrum réttinum voru Craighjónin farin að tala frjálsmannlega við okkur en þau virtust ekki hafa áhuga fyrir öðru en barninu sínu og útsláttarsemi þjónustu- stúlkunnar sinnar. Þá gerðist nokkuð óvænt. Craig reis skyndi- lega á fætur og féll meðvitundarlaus á gólfið. Frúin kastaði sér yfir hann, tók höfuð hans milli handa sinna og hrópaði: - Vertu ekki hræddur George. Þaö er allt í lagi. Craig opnaði augun og starði á okkur. Þegar hann skildi hvað hafði komið fyrir reyndi hann að rísa á fætur. Við vildum að hann legði sig á legubekkinn og hvíldi sig en hann vildi fara heim. Hann reikaði út úr stofunni og studdi sig við konu sína. Við vorum að Ijúka morgunverðinum daginn eftir þegar siminn hringdi. Það var ungfrú Gray sem sagði að Craighjónin væru horfin. Þau höfðu tekið barnið og farangur sinn en skilið eftir peninga á borðinu fyrir húsaleigunni, laun- um stúlkunnar og reikningnum hjá kaup- manninum. Þegar ég kom inn og sagði dómaranum þessar fréttir svaraði hann engu. Hann tók vindil, skoðaði hann vandlega og kveikti í honum. - Hvað segið þér um þetta? gat ég ekki stillt mig um að spyrja. Munið þér eftir Wingfordmorðinu? spurði hann. - Ekki það. Þér hafið kannski ekki verið í Englandi þá. Það var leiðinlegt, þér hefðuð haft gaman af að fylgjast með því. Ungfrú Wingford var gömul piparmey sem bjó uppi í sveit með lagskonu sinni, ungfrú Sterling. Hún virtist vera við bestu heilsu svo það kom vinum hennar mjög á óvart þegar hún dó skyndilega. Heimil- islæknirinn, Brandon að nafni, skrifaði undir dánarvottorðið og síðan var hún jarðsett. Þeg- ar erfðaskráin var lesin kom í Ijós að hún hafði arfleitt lagskonu sína að öllum eigum sínum, sem voru talsvert miklar. Ættingjunum gramd- ist það en gátu ekkert gert. Herbergisþerna ungfrú Wingford, sem var búin að þjóna henni í þrjátíu ár og þóttist viss um að hennar yrði minnst í erfðaskránni, hélt því fram að hús- móður sinni hefði verið byrlað eitur. Hún hótaði að fara sjálf til lögreglunnar ef ættingjarnir gerðu það ekki. í stað þess að leita til lögreglunnar sneru þeir sér til dr. Brandons. Hann sagði að gamla konan hefði lengi þjáðst af hjartasjúkdómi og að þjónustustúlkan hefði alltaf verið afbrýði- söm út (lagskonuna. En stúlkan sat fast við sinn keip og að lokum neyddist lögreglan til að taka málið fyrir. Það kom í Ijós að gamla konan hafði dáið af of stór- um skammti af eiturlyfi. Ungfrú Sterling hafði gefið henni það. Leynilögreglumaður nokkur komst að því að í þorpinu var almennt álitið að læknirinn og lagskonan biðu aðeins eftir því að gamla konan dæi svo að þau gætu gift sig. Þegar svo var komið tók málið aöra stefnu og læknirinn var líka handtekinn. Ég dæmdi í málinu. Þau voru ákærð fyrir að vera elskendur og að hafa gefið gömlu kon- unni eitur til þess að ná í peningana sem ungfrú Sterling hafði fengið húsmóður sína til að ánafna sér. Þau stóðu sig illa við yfirheyrsl- una og þó þau hefðu sést kyssast sóru þau bæði tvö að þau væru bara vinir. Og þó merki- legt megi viröast kom það líka í Ijós við læknis- skoðun að ungfrú Sterling var hrein mey. Brandon sagðist hafa gefið ungfrú Wingford eiturlyfjatöflurnar en varað hana við að taka of margar. Verjandinn reyndi að sanna að hún hefði tekið þær í misgripum eða til að fremja sjálfsmorð en ég er í engum vafa um að læknirinn og lagskonan áttu sök á dauða hennar. En kviðdómur er alltaf óútreiknanleg- ur. Eftir þriggja tíma umhugsun kvað þessi upp þann úrskurð að þau væru saklaus. Craighjón- in heita því réttu nafni Brandon læknir og frú Brandon. Ég er eins viss um það og ég sit hérna að þau frömdu miskunnarlaust morð og hefðu átt skilið að vera hengd fyrir vikið. - Hvers vegna haldið þér að kviðdómurinn hafi úrskurðað þau saklaus? - Eina skýringin, sem ég get fundið, er sú að þau höfðu aldrei verið saman sem elskend- ur. Og þegar maður hugsar um það er það merkilegasta atriði málsins. Konan var fús til að fremja morð til að fá manninn sem hún elsk- aði - en hún vildi ekki eiga með honum það sem í margra augum er ósæmilegt ástarævin- týri. - Mannlegt eðli er ákaflega undarlegt, er það ekki? 15TBL1990 VIKAN 41

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.