Vikan - 26.07.1990, Side 57
TEXTI OG LJÓSM,: RAGNAR LÁR
Flestir bifreiöaeigendur
þekkja til hjólbarðaverk-
stæða og þess and-
rúmslofts sem á þeim ríkir. Oft
er handagangur í öskjunni,
enda kunna starfsmenn að
taka til hendinni. Ástæða fyrir
vinnuhraðanum er einkum sú
að viðskiptavinurinn bíður oft-
ast eftir því sem hann hefur
beðið um aö fá gert, hvort
heldur það er að gera við dekk
eða skipta um hjólbarða.
Vikan lagði leiö sína á Hjól-
barðaverkstæði Vesturbæjar
sem er til húsa við Essó-stöð-
ina við Ægisíðu og hitt þar
fyrir eigandann, Jón Ólafsson,
sem lengi hefur lagt stund á
hjólbarðaviðgerðir og þá þjón-
ustu sem þeim fylgir.
Jón var að venju í vinnugall-
anum, enda er hann ekki einn
af þeim forstjórum sem kunna
best við sig bak við palesand-
*
Jón Ólafsson við eina affelgunarvélina.
IMORGUNANDAKT
HJÁ DEKKJA-JÓNI
Rœtt við Jón Ólafsson 6 Hjólbarðaverkstœði Vesturbœjar
erskrifborð. Jón kann að taka
til hendinni og hefur gert frá
unga aldri.
LENGI UNNIÐ
VIÐ ÞETTA
Við biðjum Jón að segja okkur
frá ferli sínum við hjólbarða-
viðgerðir.
- Ég byrjaði við Gúmmí-
barðann í Brautarholti árið
1967 en hef verið hérna síðan
1970. Ég hef semsagt verið í
þessu í 23 ár eða þar um bil.
- Það hafa sjálfsagt orðið
talsverðar breytingar í þessu
fagi sem öðrum á þeim tíma?
- Já, breytingarnar hafa
orðið miklar. Nú eru komin allt
önnur og betri tæki, svo sem
lyftur á gólfi í stað gömlu tjakk-
anna og svo eru affelgunarvél-
arnar miklu fullkomnari og
betri en þær voru áður.
- Manni sýnist vinnan vera
í törnum hjá ykkur?
- Það má segja aö um tvær
aðalvertíðir sé að ræða, vor
og haust. Þann 1. júlí næst-
komandi tekur ný reglugerð
gildi varðandi skiptingu sumar-
og vetrarhjólbarða. Þessi
reglugerð felur í sér að bifreið-
ir skulu vera komnar á vetrar-
hjólabarða 1. nóvember og á
sumarhjólbarða 15. apríl.
ÍSLENSK
H JÓLBARÐ ASÓLU N
- Þið gerið fleira en að gera
við og skipta um hjólbarða?
- Já, við seljum einnig hjól-
barða bæði nýja og sólaða.
Hlutur sólaöra hjólbarða er
u.þ.b. 80 af hundraði. Það er
líka allt að helmingsmunur á
verði á nýjum dekkjum og sól-
uðum. Dekkin sem við seljum
eru öll sóluð hérlendis og er
um mjög góða vöru að ræða
sem óhætt er að mæla meö.
- Biðja viðskiptavinir um
ráð í sambandi við fleira en
það sem að hjólbörðum lýtur?
- Það kemur fyrir. Fyrst og
fremst reynum við eftir bestu
getu að leiðbeina fólki um það
sem varðar hjólbarðana. En
við erum oft beðnir að líta á
ástand bremsuborða um leið
og hjólin eru tekin undan bíln-
um og gerum við það að sjálf-
sögöu.
- Hvað gerir svo Jón Ólafs-
son í frístundum sínum?
- Fjölskyldan á sumarbú-
stað við Álftavatn í Þrasta-
skógi. Þar erum við alltaf að
byggja og gróðursetja og því
er nóg að gera. Einu sinni á ári
fer ég í laxveiði í Laxá í
Dölum. Við höfum líka farið til
útlanda einu sinni á vetri og nú
síðast fórum við til Thailands.
Áður höfðum við til dæmis far-
ið til Kína, Hong Kong og
Kanton. Það er gaman að
ferðast um þessi lönd og engu
líkara en maöur sé kominn í
annan heim. En það sama má
í raun segja um sumarbústað-
inn við Álftavatn. Það er að
mörgu leyti eins og aö koma í
annan heim aö fara þangað
austur og þar uni ég mér best.
Hins vegar er það svo með
þessa vinnu hér, sem oft er
mikil tarnavinna, að hún er
aldrei leiðinleg. Daglega hittir
maður fjölda fólks og marga
hefur maður þekkt í fjölda ára.
„JÓN ALVEG
EINSTAKUR"
[ þessum töluðum orðum Jóns
kemur maður á verkstæöiö og
heilsast þeir með virktum. Það
er upþlagt að biðja hann að
vera með Jóni á Ijósmynd.
Maðurinn heitir Guðni Friðriks-
son og er frá Stykkishólmi. Við
tökum hann tali og spyrjum:
- Ekki kemurðu þó alla leið
frá Stykkishólmi til að fá gert
við dekk, eða hvað?
- Nei, ekki er það svo,
svarar Guðni, - en þegar ég er
staddur í borginni kem ég við
hérna hjá Jóni. Það má segja
að um morgunandakt sé aö
ræða, enda er Jón einhver sá
besti maður sem ég hef
kynnst. Auðvitað nota ég tæki-
færið og læt hann skipta um
sumar- eða vetrardekk þegar
ég kem til Reykjavíkur. Jón er
alveg einstakur. □
Guðni frá Stykkishólmi i
morgunandakt hjá Jóni
Ólafssyni.
15 TBL. 1990 VIKAN 57