Vikan - 26.07.1990, Side 65
s
^Jtjörnuspá-
Hrúturinn
21. mars - 19. apríl
Lífskrafturinn er hreint
aö drepa þig og ef þú ferö ekki
varlega er hætt við aö þú hristir
af þér flesta vinina. Reyndu aö
fá útrás meö útivist eöa erfiö-
isvinnu.
Nautið
20. apríl - 20. maí
Samviska þín er ekki í
fullkomnu lagi um þessar mund-
ir og ef þú hefur möguleika á aö
gera hreint fyrir þínum dyrum
ættirðu endilega aö nota tæki-
færið.
Tvíburarnir
21. maí - 21. júní
Þú er í draumaskapi
þessa dagana en ekki eru allir
þínir draumar jafnraunhæfir.
Reyndu aö velja og hafna í
draumamálum og vinna mark-
visst aö því að láta suma
drauma rætast og fórna öðrum.
Krabbinn
22. júní - 22. júlí
Láttu eitthvað eftir þér
sem þig hefur lengi langað,
segöu meiningu þína eða geröu
eitthvaö sem þú hefur ekki haft
tíma til aö gera. Þaö léttir á
þreytu eöa spennu sem er aö
safnast fyrir í huga þínum.
Ljónið
23. júlí - 23. ágúst
Taktu ekki meira aö þér
en þú ræöur viö. Jafnvel Ijón
geta orðið þreytt. Þú elskar aö
vera miðpunkturinn en eitthvaö
verður nú undan aö láta. Veröu
frítímanum vel.
Meyjan
24. ágúst - 23. sept.
Vertu ekki ósanngjarn,
aðrir geta líka haft á réttu að
standa og því er ekki endilega
beint gegn þér. Þú verður fyrir
happi og þarft ef til vill aö þakka
einhverjum sem lítið ber á. Láttu
það ekki bregðast.
Vogin
24. sept. - 23. okt.
Sólin skín á þig og þú
ert með mörg járn í eldinum um
þessar mundir. Eitthvaö eitt
mun reynast þér tímafrekara en
annað og þú skalt ekki láta á þig
fá þó einhverjar tafir verði.
Sporðdrekinn
24. okt. - 21. nóv.
Ef þú ert í hefndarhug, i
guðanna bænum bíddu við.
Hætt er við aö þú hafir einhvern
fyrir rangri sök. Afstaða stjarn-
anna er þannig að þú gætir reitt
mann til réttlátrar reiði.
Bogmaðurinn
22. nóv. - 21. des.
Leitaðu ekki langt yfir
skammt. Þaö sem þú vilt helst
er ef til vill skammt undan en þú
verður aö leita þess. Þú mátt
búast við óvæntum tíðindum, ef
til vill úr fjarlægð.
Steingeitin
22. des. - 19. janúar
Þig dreymir stundum um
það sem þú ekki færð og sérð
ekki alltaf björtu hliðarnar á mál-
unum. Þér verður sýnt vinar-
bragð og ættir ekki að slá á út-
rétta sáttahönd. Málin eru í hnút
hjá þér og þú verður sjálfur að
greiða úr.
Vatnsberinn
20. janúar - 18. febrúar
Þú ert kominn út á hálan
ís og nú er tími til kominn að
doka við og athuga hvar þú
stendur. Margt hefur breyst í lífi
þínu á skömmum tíma og þú
þarft að taka tillit til annarra.
Fiskarnir
19. febrúar - 20. mars
Óvenjuhressileg vika
hjá fiskunum. Þeir gætu jafnvel
átt það til að taka ákvörðun í
einhverju máli og það eru stór-
tíðindi þegar fiskur á í hlut.
Dómgreindin er með besta móti.
Rómantíkin ekki langt undan.
NVALDARHREYFINGIN
Frh. af bls. 61
þroska innsæi“ þátttakenda. Leifur Leopolds-
son hefur jafnframt kynnt sér kristalheilun, það
er notkun steina og kristalla, einkum kvarts-
kristalla, til lækninga. Leifur Leopoldsson rekur
Nándar- og næmiþjónustuna.
LÍFSAFL - ÍSLANDSKLÚBBUR
Friðrik Páll Ágústsson er forstöðumaður Lífs-
afls - íslandsklúbbs. Takmark klúbbsins er aö
„efla mannrækt og kryfja dulrænar hliðar á líf-
inu“. Friðrik Páll Ágústsson hefur haldið nám-
skeið í „hugrækt, heilunog líföndun". Líföndun
(rebirthing) er áhrifarík öndunartækni sem
byggist á samfelldri og inn- og útöndun. Upp-
hafsmaður hennar er Bandaríkjamaðurinn
Leonard Orr. Hann notaði þessa öndunar-
tækni fyrst með öndunarpípu undir vatni, í
baðkeri eða í heitum potti. Leonard Orr fullyrti
að þessi tækni gerði fólki mögulegt að endur-
lifa fæðingarreynsluna. Öndunarferlið, sem
Leonard Orr uppgötvaði, er í reynd ævaforn
öndunaraðferð úr Kriya-yoga.
NUDDSKÓLINN - RAFN GEIRDAL
Rafn Geirdal er löggiltur sjúkranuddari og
skólastjóri Nuddskólans. Rafn Geirdal rak áður
Nuddmiðstöðina og hefur á undanförnum
árum haldið fjölmörg námskeið á sviði nudds
og heilsufræðslu. Nuddskólinn býður upp á
tveggja ára nám í slökunarnuddi, heildrænu
nuddi og partanuddi. „Þetta er forvarnastarf,"
sagði Rafn Geirdal, „til þess að menn öðlist
líkamlega, hugræna og andlega heilsu. Það er
ótrúlegt hve íslendingar þjást af alls kyns kvill-
um og streitu sem er ein helsta orsök vöðva-
bólgu. Þessar aðferðir eru frábrugönar þessu
sígilda sænska nuddi, þar sem tæknin skiptir
mestu máli, strokurnar í þessum aðferðum eru
mýkri. Djúpslökun gerir það að verkum að til-
finningar róast og hugurinn verður skýrari.
Nudd er ein öflugasta aðferðin til þess að
halda heilbrigði og erlendis er farið að leggja æ
meiri áherslu á nudd til almennrar heilsu-
gæslu."
BETRA LÍF
Betra líf er verslun í anda nýrrar aldar. Versl-
unin hefur á boðstólum vandaðar bækur um
allt hugsanlegt efni sem snertir mannrækt og
dulræna eða yfirskilvitlega vitundarreynslu. (
versluninni fæst á kassettum mikið úrval slök-
unartónlistar og tónlistar til hugleiðslu. Enn-
fremur kristalkúlur, pendúlar, ilmolíur, reykelsi
og margar gerðir tarotspila. Hálsmen með
stjörnumerkjum og sérstæðar styttur og
veggspjöld. Einnig seguljöfnunararmbönd sem
hönnuð eru eftir ævafornum austurlenskum
fyrirmyndum og margir telja að bæti andlega
og líkamlega líðan. Verslunin Betra líf hefur
sömuleiðis á boðstólum kristalla og orkusteina
og ýmislegt er varöar frumspeki indíána Norð-
ur-Ameríku og þekkingarleit seiðmannna.
HUGRÆKTARHÚSIÐ
Hugræktarhúsið er fræðslu- og þjónustumið-
stöð sem byggir starfsemi sína á heildrænum
aðferðum. Á næstu mánuðum verður Hug-
ræktarhúsið með námskeið í sjálfstyrkingu
karla, Mikailfræðum, fornri töfralist seiðmanna,
reiki og dulskynjunum Erlu Stefánsdóttur, svo
að einhver dæmi séu nefnd um þá fjölbreyttu
starfsemi sem Hugræktarhúsið hyggst hafa á
dagskrá sinni. Forstöðumaður Hugræktar-
hússins er Helga Ágústsdóttir.
ÁSKRIFTAR-
SÍMI 83122
15TBL.1990 VIKAN 65