Vikan


Vikan - 30.05.1991, Síða 7

Vikan - 30.05.1991, Síða 7
HVAÐ SEGIR NYJA KONAN? Hún er um fertugt, glæsi- leg kona og vel menntuð. Fyrir rúmum tveimur árum giftist hún núver- andi eiginmanni sínum. Aðspurð um fyrstu kynni þeirra hjóna segir hún þau hafa kynnst á vinnu- stað og strax hafi mynd- ast mjög sterkt samband á milli þeirra. „Það var eins og við hefðum alltaf þekkst og einungis verið að bíða hvort eftir öðru. Við urðum mjög ástfangin og hitt- umst eins oft og við gátum." Á þessum tíma var maður- inn giftur og átti þrjú börn meö konu sinni. Stuttu eftir að hann kynntist viðmælanda okkar sagöi hann konu sinni allt af létta, fór að heiman og tók upp sambúð með nýju konunni. Þetta gerðist á afar skömmum tíma og skildi eftir sig mikil sár- indi og illindi. Vikunni lék for- vitni á að kynnast reynslu nýju konunnar og komst að því að hún hefur að eigin mati greitt samband sitt við manninn afar dýru verði, svo dýru að þaö liggur við að það hefði varla verið þess virði hefði hún vitað hvað framundan var. En við skulum heyra sögu hennar. - Var þér Ijóst í upphafi að maðurinn var giftur? „Já, hann sagði mér það strax. Hins vegar sagði hann einnig að hann sæi ekki hvern- ig hjónaband hans ætti að geta fært honum hamingju í framtíðinni. Sagðist hann oft hafa hugleitt skilnað af fullri al- vöru og þau hjónin margoft rætt um skilnað sem lausn á ff Ef einhver heldur að fil sé sá aðili sem hefur slíkt aðdráttarafl að hann geti splundrað hamingjusömu hjónabandi þá segi ég hinum sama að hann hafi rangt fyrír sér. Það fær sér enginn hamborgara niðrí í bæ ef hans bíður stórsteik heima. Svo einfalt er það. f f sínum vandamálum. Ekki höfðu þau þó látið til skarar skríða en báðum var Ijóst að hjónabandið var í raun löngu búið.“ - Hver voru viðhorf þín gagnvart því að verða viðhald mannsins? „Strax í upphafi gerði ég honum Ijóst að ég yrði aldrei viðhald hans. Hann hafði held- ur ekkert slíkt í huga enda lengi þráð samband við konu sem hann elskaði og gæti ver- ið hamingjusamur með. Ég ef- aðist aldrei um aö honum væri full alvara með mig. Stuttu eftir að við kynntumst sagði hann mér að hann væri búinn að taka þá ákvörðun að skilja við konu sína. Ég lagði á það ríka áherslu að það væri hans ákvörðun og að hann blandaði mér ekki í það enda hafði ég aldrei lagt að honum að skilja við konu sína." Frh. á næstu opnu

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.