Vikan - 30.05.1991, Qupperneq 9
ekki hvað síst viðhaldið.
Við skulum nú kynnast
viðhorfum og reynslu
ungrar konu sem var í
nánu sambandi við gift-
an mann í tvö ár, mann
sem samkvæmt hennar
frásögn hefur ekki verið
við eina fjölina felldur í
kvennamálum þrátt fyrir
að hafa verið giftur sömu
konunni í áratugi.
framferðið eða lokar aug-
unum fyrir staðreyndun-
um þar sem þær gætu
reynst of sárar til að horf-
ast í augu við þær. Fórn-
arlömbin í slíkum sam-
böndum eru mörg, börn-
in, makinn og kannski
á samband ykkar?
„Það hefur frekar fært okkur
nær hvorf öðru ef eitthvað er.
Aftur á móti hefur faðir þeirra
tekið þetta mjög nærri sér sem
er eölilegt og allir foreldrar
myndu gera.“
- Hvað um þína nánustu?
Mættir þú hneykslun frá þeim
þegar samband ykkar varð
lýðum Ijóst?
„Þeir sem hneyksluðust
voru ekki ættingjar mínir né
vinir heldur ýmsir karlmenn
sem í mörg ár höfðu reynt að
gera mig að viðhaldi sínu. Það
voru mennirnir sem varla
héldu vatni vegna hneykslunar
á sambandi okkar og síðar
hjónabandi. Þaö sýnir best
hvað mórallinn er tvöfaldur í
þessu þjóðfélagi. Það að
ganga hreint til verks getur
þýtt gapastokkinn en þeir sem
fela sleppa.“
- Nú eru liðin tæp þrjú ár
frá þvi að þið hittust fyrst. Þeg-
ar þú lítur til baka yfir þetta
tímabil er þá eitthvað sem þú
myndir gera öðruvísi ef þú
stæðir í sömu sporum aftur?
„Þegar ég lít til baka finn ég
einna mest fyrir þreytu og sár-
indum. Þetta hefur verið ótrú-
lega erfitt. Það eina sem ég
gerði var að elska þennan
mann og langa til að eyða líf-
inu meö honum. Allar sögurn-
ar sem sagðar hafa verið um
okkur, allt sem hefur verið gert
til að reyna að eyðileggja sam-
band okkar, allir draugarnir
sem dregist hafa inn í hjóna-
band okkar úr fortíðinni, þeir
rísa upp og öskra framan í
okkur þegar við eigum síst von
á. Það er eins og viö fáum
aldrei friö til að vera saman og
njóta hvors annars því það er
alltaf eitthvað annað sem
verður að sinna, eitthvað sem
var til löngu áöur en ég kom til
sögunnar. Mér finnst stundum
ótrúlegt hvað geta orðið mikil
sárindi og vandamál til við slit
á annars óhamingjusömu
hjónabandi, hvers vegna fólk
getur ekki tekið hlutunum eins
og þeir eru, sætt sig við þá og
lifað eftir því. Mér hefur vita-
skuld oft liðið illa yfir að vera
úthrópuð sem vonda konan
sem eyðilagði hjónaband og
svipti börn föður sínum. Verst
hefur mér liðið vegna þess að
þetta er svo rangt. Ég eyði-
lagði ekki neitt sem ekki var
þegar eyðilagt. Skilnaður er
ekki eitthvað sem skellur á
eins og óveður að nóttu.
Undanfarinn á ekki aö dyljast
neinum hvort sem hann vill
horfast í augu við staðreyndir
eöa ekki.“
- Hvað um framtíðina?
„Umhverfið hefur gert okkur
mjög erfitt fyrir alveg frá
byrjun. Það er ekki réttlátt að
ástin þurfi að kosta svona mik-
ið en við höfum staðið allt af
okkur hingað til og ég vona að
við getum haldið því áfram. □
„Ég var nítján ára gömul
þegar ég hitti manninn fyrst.
Við skulum kalla hann Jón
vegna þess hversu algengt
það nafn er. Þegar við hittumst
fyrst fór ekki fram hjá neinum
að hann fékk mikinn áhuga á
mér. Aftur á móti fannst mér
hann ekkert sérstaklega
myndarlegur og alls ekki sú
manngerð sem ég var vön að
verða hrifin af. Einnig var hann
miklu eldri en ég og á þeim
árum var maður ekkert
spenntur fyrir slíkum sam-
böndum. En hann gafst ekki
upp, í rúmt ár gekk hann á eftir
mér með grasið í skónum og
þar kom að ég gat ekki staðist
hann lengur.
Ég vissi frá byrjun að mað-
urinn var giftur og slíkt sam-
band kom aldrei til greina frá
minni hálfu. Þá trúði ég á
hjónaband og fannst það vera
endanlegt og að sá sem var
giftur ætti ekki að láta sér til
hugar koma að líta á annan en
maka sinn. Ég held varla að
ég hafi vitað að það tíðkaðist
að fólk héldi fram hjá. Ég hafði
aldrei kynnst slíku í uppeldi
mínu eða umhverfi. Ég var alin
upp á trúuðu heimili og var
trúuð sjálf og framhjáhald
samrýmdist ekki mínum Iffs-
skoðunum. Þegar Jón áttaði
sig á þessu skipti hann um að-
ferðir við mig. Hann sagði mér
að hann væri skilinn við konu
sína og lagði fast að mér að
hefja samband með sér.
Þegar þarna var komið sögu
var ég orðin mjög ástfangin af
honum enda hefur hann
óvenju mikla persónutöfra og
hefur mikil áhrif á fólk. Frá
upphafi hefur það verið þannig
Frh. á næstu opnu
VERTU RATVÍS FARÞEGI í SUMAR
Hjá okkur getur þú valið úr ferðum
Flug, bíll og sumarhús. Ferðir
til Möltu. iþróttaskóli Bobby
Charlton. Erum með yfir 200
málaskóla í rúmlega 20 lönd-
um. Mauritius, Mexíkó,
Bandaríkin. Ferðir með er-
lendum ferðaskrifstofum.
Vertu ratvís farþegi í sumar,
það getur borgað sig.
RATVÍS
Travel
Hamraborg 1-3, sfmi 641522
11.TBL1991 VIKAN 9