Vikan - 30.05.1991, Síða 20
finnst nafnið sitt svo fallegt, að
börnin heita eiginlega bæði í
höfuðið á honum,“ segir Jó-
hanna og hlær. „Annars er
hann yndislegur strákur, bæði
hlýr og einlægur," bætir hún
við. „Hin hliðin á honum, sem
við heimafólkið fáum að njóta,
er sú að hann yrkir Ijóð, málar
málverk og svo er hann lista-
smiður líka. Hann flísaleggur
allt hérna heima, smíðar ver-
önd og svo er bílskúrinn fullur
af flugvélamódelum sem hann
hefur smíðað frá grunni."
Handlagni Tvíburans er við-
brugðið, svo það er 1-0 fyrir
stjörnuspekina eins og vana-
lega. „Móðurafi minn var
smiöur og mikill hagsleiks-
maður svo þetta er í litningun-
um,“ er svar Arnar.
Krabbi rísandi bendir til
þess að hann sé stundum op-
inn og öruggur en eigi til að
vera hlédrægur. Einnig að
hann sé varkár í framkomu og
fari varlega f að hleypa öðrum
nálægt sér. „Þetta er kórrétt
lýsing á mér,“ segir Örn. „En
samt er mér kannski best lýst
með einu orði: lífsgleði. Mér
leiðist að leiðast og reyni að
gera allt til að láta mér ekki
leiðast. Lífsgleðin er alltaf til
staðar í kringum mig.“
EINS OG
TANNKREMSTÚPA
Auk Krabba rísandi er Örn
með Merkúr (hugsun) í
Krabba. Linda Goodman segir
í bók sinni um stjörnumerkin
að það sé óvenjulegur Krabbi
sem ekki dýrki móður sína.
Hvað hefur Örn um það að
segja?
„Ég heyrði einu sinni mjög
skemmtilega samlíkingu. Hún
var þannig að þolinmæði móð-
ur væri eins og tannkrems-
túpa. Hún er aldrei alveg búin.
Það má alltaf kreista aðeins
meira úr henni. Þetta á vel við
þær mæður sem ég þekki. Ég
þekki nefnilega öndvegis-
mæður."
Samkvæmt kortinu vill Örn
ekki fara hefðbundnar leiðir í
ástarmálum. Hann laðast að
óvenjulegu fólki en mikilvægt
er að hann umgangist þroskað
fólk þar eð sambönd hans
þurfa að byggjast á gagn-
kvæmum skilningi.
„Þetta er mjög heiðarlegt.
Það er miklu skemmtilegra að
vera innan um gáfað fólk held-
ur en eintóma vitleysinga. Það
gengur ekki upp, nema fólk fái
Örn er
dæmigerð-
ur Tvíburi
að sögn
eiginkonu
hans.
þá hreinlega borgað fyrir að
láta eins og vitleysingar."
„VEITHVAÐÉG GETOG
HVAÐ EKKI“
Mars í Ljóni skapar leikrænan
og dramatískan einstakling
sem beitir sér þannig að tekið
er eftir. Hann vill stjórna og
vera í miðju og framkvæma
með vissum stíl og glæsibrag.
Stoltiö getur þó leitt til þess að
hann sé stundum of viðkvæm-
ur fyrir sjálfum sér og eigi erfitt
meö að þola gagnrýni.
„Já, þetta kemur fyrir. Það
er engu við þetta að bæta, mér
þykir þetta mjög lipurlega að
orði komist."
„Örn er mjög rómantískur
og ef við ætlum út að borða
pantar hann borð á besta
staðnum og lætur kampavín
bíða eftir okkur við borðið,"
segir Jóhanna. Örn bætir við
að hann færi konu sinni oft
fresíur; því þær ilmi vel. „Maö-
ur þarf að rækta rómantíkina
og viðra hana eins og hverja
aðra tík,“ segir hann síðan.
Satúrnus í Steingeit bendir
til að viðkomandi hræðist
ábyrgð og sé óöruggur um
stöðu sína í þjóðfélaginu. Til
að öðlast frelsi þarf þessi sami
aðili þó að takast á við þjóðfé-
lagiö og viðurkenna metnað
sinn. Þar sem Satúrnus er [
sínu eigin merki í Steingeitinni
má búast við að viðkomandi
gangi vel að yfirstíga nei-
kvæðar hliðar hans.
„Nei, nei, nei. Langt því frá,
maður. Þó er ég nú enginn
vindgapi. Ég veit alveg hvað
ég get og hvað ekki og er ekk-
ert að takast á við það sem ég
ekki veld. En ég hræöist ekki
ábyrgð."
LÆKNINGAR ANNARS HEIMS
Frh. af bls. 17
EFTIRMÁLI
Amma þess sem þetta ritar hefur árum saman þjáðst af þrásæknum
hósta. Hún hefur leitað til lækna oa tekið inn ýmiss konar lyf án þess að
breyting hafi orðið til batnaðar. Ég spurði því Einar Bjarnason hvort
hann gæti orðið henni að einhverju liði. Einar bað mig um að hafa sam-
band við ömmu mína, sem býr á Akranesi, og biðja hana um að halda
kyrru fyrir milli klukkan átta og níu þetta sama kvöld því þá hygðist
hann senda henni heilunarorku. Til þess að kanna hvort hún yrði ein-
hvers vör, án þess að hún vissi hvað til stæði, sinnti ég ekki þessum
fyrirmælum Einars. Daginn eftir fór ég síðan til Akraness. Þegar ég hitti
ömmu mína spurði ég hana hvort hún hefði horft á sjónvarpsfréttirnar
kvöldið áður. Hún samsinnti því en sagði síðan að um það leyti sem
fréttirnar voru að hefjast hefð hún fundið fyrir sérkennilegum hitas-
traumi í brjóstholinu! Þetta hafði varað í dágóða stund og síðan er hún
allt önnur til heilsunnar. □
◄
Þessar Kirlían-ljósmyndlr sýna útgeislun á fingurgómi huglæknis fyrir og
eftir heilun. Eins og sést greinilega á myndinni til hægri hefur útstreymi
hugiæknisins aukist til muna viö heilunina.