Vikan


Vikan - 30.05.1991, Blaðsíða 28

Vikan - 30.05.1991, Blaðsíða 28
TEXTI: GUÐRÚN BERGMANN RITHÖFUNDURINN FRANK WATERS: Hann svipti hulunni af leyndardóm um Hopi-indíánanna Við vorum varla búin að heilsa vini okkar David Car- son á heimili hans í Taos í september þegar hann sagði: „Á fimmtudaginn er dagur Franks Waters hér í Taos og hann og Barbara kona hans hafa boðið okkur í te. Hafið þið áhuga á að koma með?“ Ég var fljót aö svara játandi fyrir hönd allra. Nafnið eitt var nóg til aö gera mig spennta. Það var stórkostlegt að fá tækifæri til að heimsækja mann sem hafði skrifað ótal margar bækur um indíána og menningu þeirra og meðal annars verið fyrsti maðurinn sem fékk Hopi-indíánana til að tjá sig um spádóma sína og trúarbragðaiðkun. Af öllum indíánum í Bandaríkjunum hefur Hopi-ættflokkurinn hald- ið einna lengst í fornar hefðir í lifnaðarháttum og siðum. Þeir halda því reyndar fram að þeir séu fyrsti þjóðflokkurinn sem tók sér búsetu í Bandaríkjun- um. Frank bjó meðal þeirra í þrjú ár meðan hann var að safna efni f bók sína The Book of the Hopi en hann er einmitt þekktur fyrir vönduð vinnu- brögð við bækur sínar og fyrir að leggja mikla undirbúnings- vinnu í þær. Venjulega vinnur hann að hverri bók í tvö til þrjú ár áður en hún fer í útgáfu. Þegar ég spurði hann hvort hann hefði lært að tala mál Hopi-indíánanna á meðan hann dvaldi meðal þeirra sagði hann: „Nei, ég notaði túlk allan tímann. Indíánar hafa mjög sérkennilegan framburð. Það er eins og allt sem þeir segja komi neðan úr koki og þegar þeir tala saman hreyfa þeir varla varirnar.“ Daginn sem teboðið var keyrðum við frá heimili Davids upp til Arroyo Seco þar sem Frank býr. Arroyo Seco er nafn á smáþyrpingu húsa í dalnum upp af Taos, á mörk- um friðarsvæðis indíána. Raunar lenti húsið hans Franks inn á friðarsvæðinu þegar það var stækkað. Á leiðinni til hans ókum við eftir örmjóum hlykkj- óttum vegi. Það lá við að mað- ur þyrfti að flauta fyrir horn því gróðurinn og trén byrgðu allt útsýni. Eftir um tuttugu mín- útna akstur beygöi David skyndilega til vinstri, að því er virtist beint inn í trjáþykkni. Við nánari athugun kom inn- keyrsla í Ijós undir þéttum Greinar- höfundur ásamt rit- höfundin- um Frank Waters. trjágróðrinum og við vorum komin á leiðarenda. Barbara kom til dyra og tók á móti okkur. Við höfðum búist við að við værum að fara í stórt hóf, en við vorum einu gestirnir. Það var okkur mikill heiður. Frank sagði þegar við komum inn í stofuna: „David talaði svo mikið um íslandsferðina sína að ég mátti til með að hitta vini hans þegar ég frétti að þeir væru hér á ferð.“ Heyrnin er aðeins farin að gefa sig hjá þessum aldna heiðursmanni, en hann er kominn yfir áttrætt. Við feng- um okkur sæti þeim megin sem „góða eyrað" sneri og ósk- uðum honum til hamingju með daginn. Hann brosti við og sýndi okkur heiðursskjalið sem honum hafði verið afhent þegar 13. september var gerð- ur að degi Franks Waters. „Borgarstjórinn bauð mér í mat,“ sagði hann „og ég mátti bjóða vinum mínum með en ég er orðinn svo gamall að allir vinir mínir eru dánir.“ Og svo hló hann við. Hann býr í húsi sínu í Arro- yo Seco á sumrin en á veturna flýr hann kuldann til Arizona þar sem hann á einnig hús. Stærsti hluti hússins í Arroyo Seco er 150-200 ára gamall og telst frekar gamalt á þessu svæði. Það er byggt sam- kvæmt byggingarlagi ná- grennisins, með þykkum leir- veggjum, litlum gluggum og viðarbitum í lofti. Að innan er húsið eins og safn. Allt í kring- um mann getur að líta muni sem Frank hefur viðað að sér víða um Bandaríkin og Suður- Ameríku. „Evrópa hefur aldrei heillað mig enda hef ég aldrei farið þangað. Aftur á móti 28 VIKAN 11.TBL1991
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.