Vikan - 30.05.1991, Síða 37
Johnny. Eins og þú segir bregðast handleggirnir'
ótrúlega vel við. En það hefurátt sér stað hrörnun.
Meðferð þín verður löng og ... ætti ég aö Ijúga að
þér? Nei, það held ég ekki. Hún verður löng og
sársaukafull. Þú munt fella þín tár. Þú gætir farið
að hata sjúkraþjálfarann. Þú gætir orðið ástfang-
inn af rúminu þínu. Og það þarf að gera aðgerðir
- aðeins eina ef þú ert mjög heppinn, en kannski
allt að fjórar - til að lengja liðböndin. Þessar að-
gerðir eru nýjar ennþá. Þær gætu heppnast full-
komlega, að hluta eða alls ekki. En þó, ef Guð
lofar, trúi ég því að þú eigir eftir að ganga aftur. Ég
held ekki að þú farir nokkurn tíma á skíði eða í
hindrunarhlaup en þú gætir hlaupið og þú munt
áreiðanlega synda.“
„Þakka þér fyrir," sagði Johnny. Hann fann til
skyndilegrar væntumþykju til þessa manns með
hreiminn og skrítnu klippinguna. Hann langaði að
gera eitthvað fyrir Weizak í staðinn - og með
þeirri tilfinningu kom hvötin, næstum þörfin, fyrir
að snerta hann.
Hann teygði sig og tók hönd Weizaks í báðar
sínar. Hönd læknisins var stór, með djúpum
línum, hlý.
„Já?“ sagði Weizak góðlega. „Og hvað er nú
þetta?“
Og allt í einu breyttist allt. Það var ómögulegt
að útskýra hvernig. Nema allt í einu fannst honum
Weizak mjög skýr. Weizak virtist... skaga út, út-
línur hans baðaðar i fallegri, tærri birtu. Hann fór
aö skilja.
„Fáðu mér veskið þitt,“ sagði Johnny.
„Vesk ... ?“ Weizak og Brown litu hvor á ann-
an og var brugðið.
„Það er mynd af móður þinni í veskinu þínu og
hana þarf ég að fá,“ sagði Johnny. „Geröuþaö. “
„Hvernig vissirðu það?“
„Gerðu það!"
Weizak horfði á Johnny andartak, fór síðan
hægt undir sloppinn og kom fram með úttroðið og
þvælt seðlaveski.
„Hvernig vissirðu að ég væri með mynd af móð-
ur minni? Hún er dáin, hún dó þegar nasistar her-
námu Varsjá..."
Johnny þreif veskið úr hendi Weizaks. Bæði
hann og Brown virtust agndofa. Johnny opnaði
veskið og eftir að hafa leitað á milli gamalla nafn-
spjalda og miða fann hann litla Ijósmynd sem búið
var að plasthúða. Á myndinni var ung kona með
hárið undir skuplu. Bros hennar var geislandi og
unglegt. Hún hélt í höndina á ungum dreng. Við
hlið hennar var maður í einkennisbúningi pólska
hersins.
Johnny hélt myndinni þétt milli handa sér og
lokaði augunum. Andartak var myrkur og svo kom
vagn þjótandi út úr myrkrinu ... nei, ekki vagn,
likvagn. Líkvagn með hestum fyrir. Búið var að
deyfa Ijósin á honum með svörtu klæði. Vitan-
lega var þetta líkvagn vegna þess að þeir voru
(deyjandi í hundraðatali, já, í þúsundatali, réðu
ekkert við skriðdrekana, þýska herinn, nítjándu
aidar riddaralið gegn skriðdrekum og vélbyssum.
sþrengingar. öskur, deyjandi menn, hestur með
innyflin úti og tryllt augnaráð svo hvítan sást, fyrir
aftan hann fallþyssa á hvolfi og enn sækja þeirað.
Weizak kemur, stendur i istöðunum með sverðið
hátt á lofti í síðsumarsrigningunni 1939, menn
hans fylgja honum, hrasandi í leðjunni, byssuturn-
inn á nasistaskriðdrekanum fylgir honum eftir,
finnur rétt mið, skýtur og skyndilega er hann horf-
inn fyrir neðan mitti, sverðið flýgur úr höndum
hans; og rétt hjá er varsjá. nasistaúlfurinn gengur
laus í evrópu).
„Við verðum að stöðva þetta,“ sagði Brown,
rödd hans áhyggjufull og fjarlæg. „Þú æsir þig of
mikið, Johnny."
„Hann er búinn að setja sig í einhvers konar
leiðslu," sagði Weizak.
Heitt hérna. Hann svitnaði. Hann svitnaði
vegna þess að (borgin brennur, þúsundir flýja,
trukkur þýtur niður grjótlagða götu og á pallinum á
trukknum standa veifandi þýskir hermenn með
hjálma og unga konan er ekki brosandi núna, hún
er að flýja, engin ástæða til að flýja ekki. barnið
hefur verið sent á öruggan stað og nú geysist
trukkurínn upp á gangstétt, aurhlífin lendir á
henni, brýtur mjöðm hennar og sendir hana fljúg-
andi gegnum búðarglugga og inn í úraverslun og
allt ferað klingja. klingja vegna þess hvað klukkan
er. klukkan er)
„Sex,“ sagði Johnny óskýrt. Augu hans höfðu
ranghvolfst svo aðeins sást í þanda hvítuna.
„Annar september 1939 og allir gaukarnir kvaka."
„Guð minn góður, hvað á sér stað hér?“ hvísl-
aði Weizak. Hjúkrunarkonan var komin upp að
stjórnborðinu, andlit hennar fölt og hræðslulegt.
Allir eru hræddir núna því dauðinn er í loftinu.
Hann er alltaf í loftinu á þessum stað, þessum
(spítala. lyktin af eter. þeir hrópa á dauðastaðn-
um. pólland er dáið, pólland er fallið fyrir elding-
arhraðri árás þýska hersins. brotin mjöðm. mað-
urinn í næsta rúmi kallar eftir vatni, kallar, kallar,
kallar. hún minnist þess að „DRENGURINN ER
ÓHULTUR." hvaða drengur? hún veit það ekki.
hvaða drengur? hvað heitir hún? hún man það
ekki. aðeins að)
„Drengurinn er óhultur," sagði Johnny loðmælt-
ur. „A-ha. A-ha.“
„Við verðum að stöðva þetta,“ endurtók Brown.
„Hvernig leggurðu til að við gerum það?" spurði
Weizak, rödd hans við það að bresta. „Það er of
langt gengið til að ... “
Raddir dvínuðu. Raddirnar eru undir skýjunum.
Allt er undir skýjunum. Evrópa er undir stríðsskýj-
um. Allt er undir skýjunum nema tindarnir, fjalls-
tindar (sviss, sviss og nú heitir hún BORENTZ.
hún heitir JOHANNA BORENTZ og maður henn-
STIÖRNUSPÁ
HRÚTURINN
21. mars - 19. apríl
Gæfan brosir við þér.
Rómantískir eldar loga glatt og þú
getur aukið þá með því að sýna
frumkvæði. Þetta er góður tími til
ferðalaga og mannlegra sam-
skipta. Hámark þessa góða tíma
næst daginn eftir sumarsólstöður.
NAUTIÐ
20. apríl - 20. maí
Rómantíkin verður djúp
og kraftmikil, sérstaklega 23.-25.
júní. Þótt bjartsýnin sé almennt
ekki þín sterka hlið má leysa
vandamál með skilningi og þolin-
mæði. Láttu ekki stjórnast af hvik-
lyndi en hafðu reglu á hlutunum.
TVfBURARNIR
21. maí - 21. júní
Sköpunarhæfni þin fer aö
ná hámarki. Rómantíkin blómstr-
ar hjá óbundnum tvíburum þar
sem ný kynni eru líkleg. Vertu
samt elskuleg(ur) við þína nán-
ustu og þú færð umbun fyrir.
Mundu að leikir hafa stundum
jafnmikla þýðingu og störf.
/MA. KRABBINN
22. júní - 22. júlí
• Fjármálaáhyggjur þínar
endast fram yfir 19. júní en málin
eru ekki eins slæm og á horfist.
Heppnin verður jafnvel með þér
um miðjan mánuð eins og síðar
mun koma í Ijós. Nánustu vinir
þínir vilja fá að vita hvernig þér
líður.
UÓNIÐ
23. júlí - 23. ágúst
Þú ert hlaðin(n) krafti um
þessar mundir en reyndu samt að
vera svolítið sveigjanleg(ur). Þér
er til dæmis alveg óhætt að
skemmta þér svolítið og sinna
öðru sem þér finnst skemmtilegt.
Svolítið ferðalag gæti verið upp-
lagt núna.
MEYJAN
24. ágúst - 23. sept.
Síðari hluti mánaðarins
er upplagður til að eyða í róleg-
heitum og hugsa hlutina. Marg-
menni gæti haft truflandi áhrif á
þig og þú færð meira út úr þvi að
vera út af fyrir þig. Þú átt eftir að
fá fullt af hugmyndum.
VOGIN
24. sept. - 23. október
Ef þú átt þess kost að
ferðast núna skaltu ekki sleppa
tækifærinu. Skemmtileg atvikfara
að gera vart við sig þegar líða
tekur á mánuðinn. Forðastu samt
freistingar og vertu ekki að hnýs-
ast í annarra manna mál.
SPORÐDREKINN
24. október - 21 nóv.
Þú getur aukið við þekk-
ingu þína seinni hluta mánaðar-
ins. Gríptu gott tækifæri því að
bið gæti orðið á öðru eins.
Skemmtanir verða kannski svolít-
ið yfirborðskenndar kringum miðj-
an mánuð en þú verður í sól-
skinsskapi og líður vel.
BOGMAÐURINN
22. nóvember - 21. des.
Nýtt fólk, ný reynsla og
ferðalög örva huga þinn. Nú er
mikils virði að skiptast á skoðun-
um við fólk því að aðlögunar-
hæfni þín reynist þér einkar vel
um þessar mundir. Það er heil-
mikið að gerast hjá þér núna -
hvað viltu hafa það betra?
STEINGEITIN
22. desember - 19. jan.
Gott tímabil. Þú græðir
meira en þú tapar en vertu samt
örugg(ur) um stöðu þína. Þér er
óhætt að skemmta þér og taka
upp á einhverju óvenjulegu en
eftir 19. júní truflar náið samband
við einhverja manneskju dóm-
greind þína svolítið.
VATNSBERINN
20. janúar -18. febrúar
Nú ríður á að þú anir ekki
út í einhverja vitleysu. Þú kynnist
mörgu fólki og sumt af því kemur
róti á tilfinningar þínar, jafnvel svo
að rótgróin kynni gætu riðlast.
Hafðu hugfast að aðdráttarafl þitt
er sterkt um þessar mundir.
FISKARNIR
19. febrúar- 20. mars
Gæði vinnu þinnar knýja
framför þína áfram. Hikaðu ekki
við að skipta um umhverfi um
stund því það sem þú gerir óund-
irbúið á vel við þig og gefur þér
nýja innsýn í eitthvert leiðinda-
mál. Þú ert í ágætis formi núna og
til í allt.
11.TBL.1991 VIKAN 37