Vikan


Vikan - 30.05.1991, Síða 40

Vikan - 30.05.1991, Síða 40
Hlær? Nei. Hann hlær ekki. Hann gerir gys aö því.“ „Og þú gerir það ekki?“ „Ég hugsa um Edgar Cayce. Og Peter Hurkos. Ég reyndi aö segja Brown frá Hurkos og hann gerði gys aö mér. Hann vill ekki tala um þetta; hann vill ekkert af þessu vita.“ Johnny sagði ekkert. „Og hvað eigum við að gera við þig?“ „Þarf að gera eitthvað?" „Ég held það,“ sagði Weizak. Hann stóð upp. „Ég læt þér eftir að íhuga það. En haföu þetta hugfast: sumt er betra að sjá ekki og sumt er betur týnt en fundið." Hann bauð Johnny góða nótt og fór hljóðlega. Johnny var orðinn örþreyttur en þrátt fyrir það heimsótti svefninn hann ekki um langa hríð. 9. KAFLI . | . Johnny átti að fara í fyrstu skurðaðgerðina 28. maí. Bæði Weizak og Brown höfðu útskýrt að- gerðina vandlega fyrir honum. Hann fengi stað- deyfingu - hvorugum fannst óhætt að svæfa hann. Fyrsta aðgerðin yrði á hnjám og ökklum. Hans eigin liðbönd, sem höfðu styst meðan hann svaf þessum langa svefni, yrðu lengd með undra- trefjum úr plasti. Plastið, sem átti að nota var einn- ig notað við hjartalokuaðgerðir. Spurningin var ekki hvort líkami hans myndi hafna eða taka við gerviliðböndunum, sagði Brown honum, heldur hve vel fótleggir hans tækju breytingunni. Ef þeim gengi vel með hnén og ökklana voru þrjár aðgerð- ir í viðbót fyrirhugaðar: ein á löngu liðböndunum í lærunum, ein á olnbogaliðböndunum og ein á hálsinum sem hann gat varla hreyft. Raymond Ruopp, sem var upphafsmaður þessarar tækni, átti að framkvæma aðgerðina. Hann var á leiðinni frá San Francisco. „Hvað vill þessi Ruopp með mig hafa ef hann er svona mikil súperstjarna?" spurði Johnny. Súp- erstjarna var orð sem hann hafði lært af Marie. Hún hafði notað það í sambandi við sköllóttan söngvara með gleraugu sem hét því ólíklega nafni Elton John. „Þú vanmetur þína eigin súperstjörnuhæfi- leika," svaraði Brown. „Það er aðeins til handfylli af fólki í Bandaríkjunum sem vaknað hefur úr jafn- löngu dái og þú varst í. Og af þeirri handfylli hefur bati þinn af heilaskemmdunum verið róttækastur og ánægjulegastur." Sam Weizak var berorðari. „Þú ert tilraunadýr, ekki satt?“ „Hvað?“ „Já. Viltu líta upp í ljósið.“ Weizak beindi Ijósi að vinstra augasteini Johnnys. „Veistu að ég get litið beint á sjóntaugina með þessu? Já. Augun eru meira en speglar sálarinnar. Þau hafa úrslita- þýðingu fyrir viðhald heilans.“ „Tilraunadýr,“ sagði Johnny önugur og starði inn í grimmiiegt Ijósið. „Já.“ Ljósið slokknaði. „Ekki vorkenna þér svona. Margar þeirra aðferða sem verður beitt á þig voru notaðar í Víetnamstríðinu. Það er enginn hörgull á tilraunadýrum á hersjúkrahúsunum. Ru- opp hefur áhuga á þér vegna þess að þú ert ein- stæður. Hér er maður sem hefur sofið í fjögur og hálft ár. Getur hann gengið á ný? Áhugavert úr- lausnarefni. Hann sér fyrir sér greinina sem hann mun skrifa um þetta í Læknatíðindi Nýja Englands. Hann hlakkar til þess á sama hátt og barn hlakkar til að fá nýju leikföngin undir jóla- trénu. Hann sér þig ekki, hann sér ekki Johnny Smith og sársauka hans, Johnny Smith sem þarf að fá bekken og kalla á hjúkrunarkonuna ef hann klæjar á bakinu. Það er gott. Hendur hans verða styrkar. Brostu, Johnny. Þessi Ruopp minnir á bankagjaldkera en hann er hugsanlega besti skurðlæknir Norður- Ameríku." En Johnny veittist erfitt að brosa. Skyldurækinn hafði hann lesið alla bæklingana sem móðir hans hafði skilið eftir. Þeir ollu honum þunglyndi og á ný fór hann að óttast um geðheilsu hennar. Sumir virtust skrifaðir af heiðingjum, aðrir minntu á fjölleikahús brjálæðisins: Kristur bjó und- ir Suðurpólnum, Guð ók um á fljúgandi diskum, New York var Sódóma, Los Angeles var Góm- orra. Honum var ómögulegt að tengja bæklingana við hina trúuðu en þó jarðbundnu konu sem hann hafði þekkt fyrir dauðadáið. Þremur dögum eftir atvikið með myndina af móður Weizaks kom grannur, dökkhærður blaða- maður að nafni David Bright frá Fréttablaðinu í Bangor í heimsókn til Johnnys og spurði hvort hann mætti eiga við hann stutt viðtal. „Ertu búinn að spyrja læknana?" spurði Johnny. Bright glotti. „Reyndar ekki.“ „Allt í lagi,“ sagði Johnny. „Fyrst svo er væri mér ánægja að því að ræða við þig.“ „Þú ert maður að mínu skapi,“ sagði Bright. Fyrstu spurningar hans voru um slysið og um hugsanir Johnnys og tilfinningar við að vakna úr dauðadái og uppgötva að hann var búinn að týna næstum hálfum áratug. Johnny svaraði þessum spurningum af heiðarleik og hreinskilni. Síðan sagði Bright honum að hann hefði heyrt frá „heim- ildarmanni" að Johnny hefði hlotnast einhvers konar skyggnigáfa sem afleiðing af slysinu. „Ertu að spyrja mig hvort ég hafi yfirnáttúrlega hæfileika?" Bright brosti og yppti öxlum. „Það er ágætt til að byrja með.“ Johnny hafði hugsað vel og vandlega um það sem Weizak hafði sagt. Því meira sem hann hugsaði um það þeim mun réttara fannst honum af Weizak að leggja símann á án þess að segja nokkuð. Eins og Weizak hafði sagt voru sumir hlutir kannski betur geymdir týndir en fundnir. „Nei,“ sagði hann. „Ég hef þá ekki frekar en þú.“ „Samkvæmt mínum heimildum þá ... “ „Nei, það er ekki satt.“ Bright brosti kaldhæðnislega, virtist velta fyrir sér hvort hann ætti að þrýsta frekar á málið en fór síðan að spyrja Johnny um framtíðarhorfur hans, hvernig honum litist á leiðina til baka. Johnny svaraði þeim spurningum einnig eins heiðarlega og hann gat. „Og hvað ætlarðu svo að gera þegar þú losnar héðan?“ spurði Bright. „Ég er ekki farinn að íhuga það. Ég er enn að reyna að venjast þeirri hugmynd að Gerald Ford sé forseti." Bright hló. „Þú ert ekki einn um það, vinur rninn." „Líklega fer ég aftur að kenna. Það er það eina sem ég kann. En eins og er er of langt í það til að hugsa um það.“ Bright þakkaði honum fyrir viðtalið og fór. Greinin birtist í blaðinu tveimur dögum síðar, dag- inn fyrir skurðaðgerðina. Hún var neðst á forsíð- unni og fyrirsögnin var: LANGT í AÐ JOHN SMITH NÁI FULLUM BATA. Það voru þrjár myndir, ein þeirra tekin viku fyrir slysið, mynd af Johnny í sjúkrarúmi sínu, horuðum og skældum, með handleggi og fætur kengbogna. Milli þeirra var mynd af gjörónýtum leigubílnum, liggjandi á hliðinni eins og dauöur hundur. I grein Brights var hvergi minnst á sjötta skilningarvitið eða spá- dómsgáfu. „Hvernig fórstu að því að snúa þig út úr því yfir- skilvitlega?" spurði Weizak hann það kvöld. Johnny yppti öxlum. „Hann virtist ágætis náungi. Kannski vildi hann ekki gera mér það.“ „Kannski ekki,“ sagði Weizak. „En hann gleym- ir því ekki. Ekki ef hann er góður blaðamaður - sem mér skilst að hann sé.“ „Skilst?" „Ég spurðist fyrir.“ „Ertu að gæta hagsmuna minna?" „Við gerum hvað við getum. Ertu kvíðinn vegna morgundagsins?“ „Ekki kvíðinn, nei. Hræddur er nákvæmara orð.“ „Já, vitanlega ertu það. Það væri ég.“ „Verður þú þar?“ „Já, á áhorfendapöllum skurðstofunnar. Þú þekkir mig ekki úr í græna sloppnum en ég verð þar.“ „Vertu með eitthvað," sagði Johnny. „Vertu með eitthvað svo ég þekki þig úr.“ Weizak leit á hann og brosti. „Allt í lagi. Ég skal festa úrið mitt við sloppinn." „Gott,“ sagði Johnny. „Hvað um Brown? Verð- ur hann þarna?“ „Brown er í Washington. Á morgun mun hann kynna þig fyrir Taugasérfræðingafélagi Bandaríkj- anna. Ég er búinn að lesa greinargerðina. Hún er góð.“ „Var þér ekki boðið?" Weizak yppti öxlum. „Ég er hræddur við að fljúga." „Og kannski langaði þig að vera hér?“ Weizak brosti og sagði ekkert. „Hann kann ekki sérlega vel við mig, er það?“ spurði Johnny. „Brown?“ 40 VIKAN 11.TBL.1991

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.