Vikan - 30.05.1991, Page 45
▲ Þannig leit Davíð út fyrir ódæðið.
◄ Charles .>Ég er hræddur,"
Rothenberg. segir Davíð. ►
EKKISLEPPA PABBA
ÚT ÚR FANGELSINU
Arið 1983 kveikti Charles
Rothenberg í syni sin-
um til að hefna sín á
konunni sinni. Hann er nú i
fangelsi en fjölskyldan óttast
að hann verði fljótlega látinn
laus. Ég er hræddur, segir
Davið. Ég vil aldrei sjá hann
aftur.
Vorkvöld eitt árið 1983 hellti
Charles Rothenberg bensíni
yfir Davíð son sinn sem þá var
sex ára og sofandi í rúmi á
móteli í bænum Buena Park.
Davíð var í heimsókn hjá föð-
ur sínum en foreldrar hans
voru að skilja. Charles kveikti í
og stakk síðan af. Fljótlega var
herbergið í Ijósum logum.
Davíð hlaut þriðja stigs
brunasár á allan líkamann en
lifði þetta af. Núna er hann
fjórtán ára og enn brenni-
merktur illverkum föður síns.
Hann hefur gengist undir fjöl-
margar húðágræðslur en það
vantar enn mikið á að hann líti
vel út.
Davíö og móðir hans þurfa
nú að horfast í augu við að
bráðlega veröur Charles látinn
laus fyrir góða hegðun og þau
eru hrædd. - Ég vil aldrei sjá
hann aftur, segir Davíð rólega.
- Ég er hræddur við hann.
Móðir hans tekur aftur á móti
sterkar til orða. Hún segir: -
Ég kemst aldrei yfir allar þær
þjáningar sem hann olli Davíð.
Enginn heilbrigður maður
skaðar barnið sitt viljandi,
hvað þá sofandi barn. Það er
hræðilegt þegar fólk gerir slíkt.
Hún lítur á fyrrverandi eig-
inmann sinn sem hættulegan
mann. - Ég verð að gera það.
Úr því að hann getur gert sínu
Davíð
með móður
slnni og
fósturföður.
eigin afkvæmi þetta, hvað get-
ur hann þá ekki gert ókunnug-
um? Hún er viss um aö Charl-
es mun þrátt fyrir þetta reyna
að hafa samband við Davíð.
Það er bara spurning um
hvenær.
- Þrátt fyrir þetta reyni ég
aö láta óttann ekki stjórna mér
en ég kvíði því samt hvaða
áhrif Charles getur haft á
okkur. Ég er gift aftur og reyni
að lifa sem eðlilegustu lífi.
Charles er ekki heill á geðs-
munum. Ég þekki hann vel og
veit að hann hefur ekki breyst
innan fangelsismúranna.
Og sonurinn biður til guðs
um að föður hans verði aldrei
sleppt út aftur. Það er þó ólík-
legt að honum verði að ósk
sinni, því miður. □
11.TBL.1991 VIKAN 45
LÍNEY LAXDAL PÝDDI