Vikan


Vikan - 30.05.1991, Side 53

Vikan - 30.05.1991, Side 53
Peter Coyote (The Man In- side) engan fyrirmyndarföður. Myndin er leikstýrð af hand- ritahöfundinum Michael Bortman sem skrifaði handrit- ið að The Good Mother þar sem Diane Keaton var í aðal- hlutverki. Hangin with the Home- boys býður upp á forvitnilegan söguþráð. Myndin greinir frá fjórum vinum sem eiga það sameiginlegt að vera búnir með menntaskólann en eru óákveðnir hvað snertir fram- tíðaráform. Föstudagskvöld nokkurt ákveða þeir að fara út á lífið. Þetta kvöld á síðan eftir að breyta lífi þeirra. Best að segja ekki meira að svo stöddu. Truly, Madly Deeply er innileg ástarmynd sem fjallar um ástir og endurfundi. Leikar- inn Alan Rickman leikur í henni en hann lék mikið ill- menni í fyrstu Die Hard mynd- inni. í Suburbian Commando leikur hinn frækni glfmukappi Hulk Hogan (Gremlins 2) málaliða sem kemur frá ann- arri plánetu. Hann flýr til jarð- arinnar og fer í felur. Hvað veldur? Jú, hausaveiðarar, sem eru ekki heldur frá þess- um heimi, eru á hælum hans. A Kiss Before Dying er byggð á skáldsögu eftir Ira Levin. Meðal leikara eru Matt Dillon, Sean Young (The Boost, Firebirds, No Way out og Cousins), Max Von Sydow og Diane Ladd. Matt Dillon leikur ungan mann, Jonathan Corliss. Hann giftist inn í vell- auðuga fjölskyldu og leynir á sér. Hann er hinn vænsti mað- ur- eða þannig. Hann er allt í senn, fyrirmyndar tengdason- ur, hinn fullkomni elskhugi, mömmustrákur hinn besti og fjöldamorðingi hinn mesti. í raun er þessi kvikmyndaút- listun bara forsmekkur af því sem koma skal. Framtíðin ber margt í skauti sér. Nú er ævintýrakvikmyndin Hook í mótun hjá Steven Spielberg. Nú lætur hann sem sé aftur til sín taka. Þetta er sígilda ævintýrið um Pétur Pan. Ein- valalið leikara er í þessari ævintýramynd Spielbergs, leikarar á borð víð Dustin Hoffman, Robin Williams, Julia Roberts, Maggie Smith (A Room with a View) og Bob Hoskins (Mermaids og Heart Condition). Kanadíski leikstjórinn David Cronenberg (The Fly I, Dead Ringers) er að gera kvikmynd sem heitir Naked Lunch. Myndin er byggð á erfiðu bók- menntaverki en Cronenberg er búinn að sýna hversu fjöl- hæfur hann er, sbr. meistara- stykkið Dead Ringers. Leikar- arnir í myndinni eru ekki af verra taginu, Peter Weller (Robocop I og II og Video- drome), lan Holm (Chariots of Fire og Henry V), Judy Davis (Who Dares Wins), Roy Scheider (Jaws I og II og Blue Thunder) og Julian Sands (Room with a View og Tenn- essee Nights). Leikstjórinn Jim Abrahams er að gera grátbroslega kvikmynd. [ henni er gert ó- spart grín að metsölumyndinni Top Gun. Myndin heitir Hot Shots! An Important Movie og Charlie Sheen og Jon Cryer (Pretty in Pink) leika í henni. Lloyd Bridges fer líka með hlutverk í myndinni. Upp- hafsatriðið þykir drepfyndið og vel heppnaö. Þar er Charlie Frh. á næstu opnu ▲ Bruce Willis í myndinni Hudson Hawke þar sem flogiö er hátt. A Bruce Willis slær á létta strengi. Matt Dillon er alvarlegur ásýndum í myndinni A Kiss Before Dying. 11.TBL1991 VIKAN 53

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.