Vikan - 30.05.1991, Qupperneq 57
TEXTI: ÓMAR FRIÐLEIFSSON
Atriði úr kvikmyndinni Millers Crossing, sem gerð er af bræðrunum Joel og Ethan Cohen. Þeir hlutu verðlaun nýafstaðinnar kvikmynda-
hátíðar á Cannes í Frakklandi fyrir nýjustu mynd sína.
myndir bræöranna sem ættað-
ir eru frá New York og eru
mjög hæverskir þegar þeir
fjalla um verk sín á hvíta tjald-
inu.
Um Millers Crossing var
sagt: „Þetta verður myndin
sem menn muna eftir frá árinu
1990.“ Allir dómar voru henni
mjög hliðhollir og fólk um heim
allan hefur hrifist af henni. Hún
verður sýnd mjög fljótlega hér
á landi.
Albert Finney hefur leikið í
ýmsum vel þekktum myndum
og fengið lof fyrir, til dæmis
The Dresser en hann var út-
nefndur til óskarsverðlauna
fyrir leik sinn í henni. Auk
hennar lék hann í Lawrence of
Arabia, Under the Volcano,
Wolfen, The Dualists og fleiri
góðum myndum. Hann fædd-
ist á Norður-Englandi árið
1936 og ólst þar upp. Hann er
því 55 ára gamall en lítur út
eins og þrítugur. Hann valdi
hlutverkið af því aö hann vildi
vinna með bræðrunum sem
gerðu Raising Arizona en
hann dýrkar þá mynd.
Gabriel Byrne fæddist á ír-
i Marica Gay Harden fer með hlutverk stúlku sem veldur deilum á milli
I tveggja vina.
Millers Crossing heitir
kvikmynd sem sýnd
verður á næstunni
hérlendis. Hún er gerð af kvik-
myndasnillingunum og bræðr-
unum Joel og Ethan Cohen.
Þeir gerðu myndirnar Blood
Simple og Raising Arizona,
báðar verðlaunamyndir sem
alls staðar hafa fengið rífandi
góða dóma og aðsókn eftir
því.
Millers Crossing fjallar um
mafíumál árið 1929 í ónefndri
borg í Bandaríkjunum. Það
eru þeir Albert Finney og
Gabriel Byrne sem fara með
aðalhlutverkin. Þeir leika vold-
uga menn í þjóðfélaginu og
eru perluvinir þangað til kven-
maður kemur á milli þeirra. Þá
kemur nefnilega sitthvað fram
í dagsljósið. Millers Crossing
er fyndin mynd, full af spenn-
andi, frumlegum og skemmti-
legum tökum. Tónlistin, sem
er í höndum Carter Burwell, er
einkar viðeigandi. Myndin var
valin til að opna kvikmynda-
hátíðina í New York í október
sl. og vakti hún hrifningu og
mikla athygli eins og hinar
Albert Finney fer með eitt aðalhlutverkið í kvikmyndinni Millers
Crossing, búralegur að vanda.
landi. Þegar hann var 29 ára
lék hann í írsku leikhúsi en
vildi breyta til og fór til Eng-
lands til að leika í kvikmynd-
um. Fyrsta myndin sem hann
lék í heitir Defence of the
Realm. Síðan hefur hann leik-
ið í myndum á borð við Gothic,
Lionheart, Hello Again sem
var fyrsta mynd hans ( Banda-
ríkjunum og síðan Millers
Crossing. Hlutverk hans þar er
talið hans besta til þessa.
Stúlkan, sem veldur deilunni
á milli vinanna tveggja, er leik-
in af Marciu Gay Harden en til
þessa hefur hún aðeins leikið
á sviði. Allir aðalleikararnir
eiga það sameiginlegt að hafa
leikið mikið á sviði.
Bræðurnir Joel og Ethan
Cohen skipta með sér verkum
við að framleiða, skrifa hand-
ritið og leikstýra myndinni.
Sama verklag hafa þeir haft
við allar myndirnar sínar sem
nú eru orðnar fjórar talsins.
Þess má geta að fimmta mynd
þeirra verður frumsýnd í
Bandaríkjunum í sumar. Sú
mun heita Barton Flink. Joel
fær heiðurinn af því aö vera
leikstjóri Millers Crossing.
Hann er 35 ára gamall. Ethan
er 33 ára.
Millers Crossing var frum-
sýnd í Bandaríkjunum í haust
og hefur halað inn 15 milljónir
dollara í bíómiðasölu vestan-
hafs til þessa. Sá sem sá um
kvikmyndatökuna heitir Barry
Sonnfeld og gerði garðinn
frægan fyrir tökur sínar á
myndunum The Big, Blood
Simple, Throw Mama from the
Train og When Harry Met
Sally. Eftir að hafa unnið við
þessar myndir er hann orðinn
einn af eftirsóttustu kvik-
myndatökumönnunum í Holly-
wood.
Millers Crossing er mynd
sem vert er að taka eftir enda
telja margir, sem séð hafa,
hana eina af stórmyndum árs-
ins 1990.
11. TBL 1991 VIKAN 57