Vikan


Vikan - 30.05.1991, Síða 61

Vikan - 30.05.1991, Síða 61
ANNA S. BJÖRNSDÓTTIR SKRIFAR TEK HUGSANLE6T FRÁFALL Min MED í REIKNINGINN Ihvert sinn sem ég legg af stað í ferðalag með flugvél finnst mér ágætt að taka hugsanlegt fráfall mitt með í reikninginn. Erfðaskráin, sem ég ætlaði að vera búin að semja fyrir óralöngu, kemur upp í huga minn og ég kveð allt og alla með söknuði innra með mér. Mest kveð ég þó sjálfa mig, þennan ævilanga vin í raun - og þakka sam- starfið. Elskan mín, segi ég við sjálfa mig, þú hlýtur að geta dáið eins og hver annar. Og ég sé mig í anda reyna að bjarga einhverjum svona rétt áður en ég gef upp öndina. Ég er nefnilega dálftið hrædd um að flugfreyjurnar reynist ekki vandanum vaxnar þegar til kemur að bjarga farþegunum en ég er auðvitað að tala um meðvitaða flughræðslu mína. Þá hef ég satt að segja meiri trú á hinni margreyndu (s- atriði þegar ég hugsa um væntanlegt fráfall mitt. Þaö er eins gott að ég láti þetta uppi f annarra áheyrn en mannsins míns því ég hef margsinnis sagt honum að hann myndi reynast stórhættulegt vitni ef nota ætti hann til að muna þýðingarmikil atriði í mínu lífi eða annarra. Örfáir dagar líða og hann man ekki leyndarmál- ið sem ég trúði honum fyrir og var eins gott að það varðaði ekki líf og dauða einhvers ná- komins. Reyndar þekkti ég eitt sinn konu með slfkt minni að hún mundi nákvæmlega hvenær hún seldi gamla græna svefn- sófann. Það var 31. mars 1978, gamla kommóðan var seld 28. september 1979 og mamma hennar rifbeinsbrotn- aði 14. nóvember 1982. Ég reyni ekkert að lýsa þessari konu nánar núna þar sem lensku húsmóður, þessari sem við lesum um í blöðum, það er að segja að henni lát- inni. Konunni sem stendur styrk hvað sem á móti blæs. Er ég kannski ekki ein af þeim? Hvað er ég annars að flakka á milli landa, gera mér upp alls kyns erindi sem að- eins varða mig eina en ekki fjölskylduna? Hvað er ég að skilja litlu börnin mín eftir í reiðileysi hjá pabba sínum? Hann gæti gleymt að taka þau inn á kvöldin, gleymt að gefa þeim að borða, gleymt aö slökkva á sjónvarpinu, gleymt... Eitt er alténd víst. Enga sálma fyrir mig. Það er lykil- þetta er útúrdúr og ég er að tala um flughræðslu mína. Flughræðslan er samt ekki meiri en svo að ég læt mig bara hafa hana og flýg á milli landa hvenær sem færi gefst. Og í hvert sinn sem ég lendi heilu og höldnu finnst mér ég hafa eignast lífið á ný. Gleði mín er ómælanleg, ég fyllist þakklæti og flýti mér á næsta kaffihús. Til að hugsa. Svo hringi ég heim. Dýrð Dýrð daganna dvöl dægranna heimur haltu mér fast í faðmi þínum. o co & o; LU o o cn O £L EINN DAGUR MEÐ JOOP! Franski dömuilmurinn JOOP! hefur notið sífellt aukinnar viröingar og vinsælda um víöa veröld á undanförnum misserum enda ætlaður konum sem kunna að njóta lystisemda lífsins. Líkt og önnur tákn glæsileika, svo sem Rolls Royce og Rolex, heldur JOOP! ímynd sinni og stöðugleika frá ári til árs. Ilmvatnið Nuit d’été minnir á himininn milli rökkurs og dögunar; ferskleikinn af hun- angsdögg, hlýleiki rósar og jasmínu blandaður möndlu- keim, en umfram allt seiðandi leyndardómar næturinnar. Eau de toilette, hreint og ferskt. Fyrsta snertingin við munúð þessa ilms lýsir upp daginn og sindrar eins og daggardropar í fyrstu geislum sólarinnar. Þessi ilmur eykur á fyrirheitin um unað dagsins. Gel douche er mjúk froða til að hreinsa líkamann og auka á þægindatilfinninguna; fljót- virkt og afslappandi. Creme pour le corps þýðir einfaldlega krem fyrir líkam- ann. Það nærir líkamann með efnum sem hafa verið valin gaumgæfilega til að vernda húðina og endurnýja hana. Það er borið létt á hana og gef- ur henni unglegan blæ. Deodorant. Það er einfald- lega spurning um sjálfsvirð- ingu hvaða lykteyðandi meðul eru notuð. Deodorant Doux lofar ferskleika og þægindatil- finningu í amstri hversdags- leikans og Deodorant Ultra Doux er milt og öruggt, sér- staklega fyrir viðkvæma húð. Joop-línan er valmöguleiki fyrir heimsmanneskjuna og konuna sem vill láta sér líöa vel og njóta athygli. Hver og ein af þeim vörum, sem hér hafa verið nefndar, þjónar sín- um tilgangi sérstaklega en auðvitað nást best áhrif með því að nota alla línuna og tengja þannig morguninn, daginn, kvöldið og nóttina með áhrifunum frá JOOP! □ ll.TBL 1991 VIKAN 61

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.