Vikan - 11.07.1991, Síða 4
11. JULI 1991
14. TBL. 53. ÁRG
VERÐ KR. 325
í áskritt kostar VIKAN kr. 247
eintakið ef greitt er með gíró en kr.
211 ef greitt er með VISA eða
EURO. Áskriftargjaldið er innheimt
fjórum sinnum á ári, sex blöð í
senn. Athygli skal vakin á því að
greiða má áskriftina með EURO
eða VISA og er það raunar
æskilegasti greiðslumátinn.
Aðrir fá senda gíróseðla.
VIKAN kemur út aðra hverja viku.
Tekið er á móti áskriftarbeiðnum
í síma 91-813122.
Útgefandi:
SAM-útgáfan.
Framkvæmdastjóri:
Sigurður Fossan Þorleifsson
Markaðsstjóri:
Pétur Steinn Guðmundsson
Ritstjóri og ábm.:
Þórarinn Jón Magnússon
Auglýsingastjóri:
Helga Benediktsdóttir
Flöfundar efnis í þessu tölublaði:
Þórdís Bachmann
Hjalti Jón Sveinsson
Þorsteinn Eggertsson
Lína Rut Karlsdóttir
Helga Möller
Guðný Þ. Magnúsdóttir
Björg Sveinsdóttir
Líney Laxdal
Anna S. Björnsdóttir
Stephen King
Gísli Ólafsson
Katrín Elvarsdóttir
Jóna Rúna Kvaran
Þórarinn Jón Magnússon
Pétur Valgeirsson
Þorsteinn Erlingsson
Halla Nikulásdóttir
Hólmfríður Sigurðardóttir
Christof Wehmeier
Martin Luther
Guðjón Baldvinsson
Myndir í þessu tölublaði:
Magnús Hjörleifsson
Pétur Valgeirsson
Sigurður Stefán Jónsson
Björg Sveinsdóttir
Robert Mapplethorpe
Bragi Þ. Jósefsson
Binni o.m.fl.
Útlitsteikning:
Þórarinn Jón Magnússon og
Auglýsingastofa
Brynjars Ragnarssonar.
Setning og umbrot:
SAM-setning:
Árni Pétursson, Pála Klein
og Sigríður Friðjónsdóttir
Filmuvinna, prentun, bókband:
Oddi hf.
Forsíðumyndina tók
Magnús Hjörleifsson af
Önnu Rún Atladóttur.
Förðun: Kristín Stefánsdóttir
með No Name Cosmetics.
HAFT EFTIR HEIMSPEKINGUNUM
MARTIN LUTHER
Afimmtándu og sex-
tándu öld var fariö að
bera svo mikið á spill-
ingu innan rómversk katólsku
kirkjunnar að mörgum fannst
nóg um. Stórbófinn Roderico
Borgia haföi keypt sér páfatign
og börnin hans, Cesare og
Lucrecia, voru fræg fyrir sukk
og svínarí. Ekki bætti úr skák
að ráðamenn kirkjunnar fóru
að selja syndaaflausnir fyrir
morð fjár til að byggja Péturs-
kirkjuna og Vatíkanið. Harð-
asti mótmælandinn gegn
þessu óréttlæti var Martin
Luther (f. 1483, d. 1546).
Hann var sonur námuverka-
manns, hafði gerst munkur
árið 1506 og prestur ári
seinna. Hann var mikill tungu-
málamaður og fór að kenna
trúfræði við háskólann í Witt-
enburg árið 1512. Hann var
gerður að doktor í greininni og
það hafði mikil áhrif á hann.
Að kvöldi allra heilagra messu
árið 1517 hengdi hann upþ
heilmikið bréf í 95 liðum þar
sem hann gagnrýndi páfastól
og þær villigötur sem kirkjan
var komin á. Þetta bréf átti eftir
að draga dilk á eftir sér og
varð kveikjan að lútersku kirkj-
unni sem er orðin næst fjöl-
mennasta trúfélag heimsins á
eftir rómversk katólskunni.
Luther réðst í það stórvirki að
þýða Biblíuna yfir á þýsku en
um það leyti var hún aðeins
fáanleg á latínu. Aö visu
sleppti hann nokkrum bókum
úr og hafa þær aldrei sést í lút-
erskum Biblíum þótt katólskir
haldi þeim.
Smám saman tók katólska
kirkjan margt úr gagnrýni Luth-
ers til greina og er nú gjör-
breytt frá því sem hún var fyrir
fimm hundruð árum, eins og
nærri má geta. Lúterskan hef-
ur líka breyst mikið og eðli
sínu samkvæmt hefur hún
stöðugt klofnað niður í fleiri og
fleiri sértrúarflokka, svo sem
hvítasunnusöfnuðinn, babt-
ista, hjálpræðisherinn, Ku Kux
Klan og svo mætti lengi telja.
Lúterskan hefur náð mikilli út-
breiðslu í Norður-Evrópu,
Bandaríkjunum og Suður-Afr-
íku. Á Norður-lrlandi eru þeir
líka fjölmennari en katólskir
sem vilja sameinast írska lýð-
veldinu þar sem katólikkar eru
í meirihluta. Það vilja mótmæl-
jjGób verk geta aldrei skapað
góðan mann en góóur maÓur
gerír góÓ verk. Slæm verk geta
aldrei skapaÓ slæman mann en
slæmur maÓur gerír slæm verk.ÆÆ
o
co
&
o;
i—i—i
O
O
co
Od
O
rL
Ö
'I
o
o
S5
endur (lúterstrúarmenn) hins
vegar ekki heyra nefnt því að i
sameinuðu írlandi yrðu þeir í
miklum minnihluta. En hvernig
var svo þessi Luther? Hann
skrifaði einhver lifandis býsn
og virtist baráttuglaður. Eftir-
farandi setningar eru meðal
þeirra frægustu sem hafðar
eru eftir honum og lýsa honum
kannski svolítið.
Hér stend ég. Ég get ekki
annaö.
Samviska mín er fönguð í
orði Guðs. Ég get hvorki né vil
draga neitt af þvi sem ég hef
sagt til baka, þar sem hvorki er
öruggt né ráðlegt að haga sér
gagnstætt sinni eigin sannfær-
ingu. Guð hjálpi mér. Amen.
Ég giftist nunnu til að bjóða
djöflinum og hyski hans
birginn. Sömuleiðis þjóðhöfð-
ingjum og biskupum, fyrst þeir
voru svo heimskir að banna
prestum að giftast.
Maður sem verður fundinn
sekur um þann glæp að gera
uppreisn á skilið bannfæringu
Guðs og keisarans. Hverkrist-
inn maður getur því drepið
hann og á að gera það. Þannig
gerir hann góðverk.
Ef nokkur maður kemst til
himins með munklegri hlýðni
hef ég sannarlega unnið fyrir
því að komast þangað.
Aðeins með því að efast um
okkur sjálf getum við fundið
frið.
Náðu kjarnanum í hnetunni,
korninu úr hveitinu og mergn-
um úr beininu.
Góð verk geta aldrei skapað
góðan mann en góður maður
gerir góð verk. Slæm verk
geta aldrei skapað slæman
mann en slæmur maður gerir
slæm verk.
Traust virki er Guð okkar;
góður skjöldur og vopn.
Hugsanir eru tollfrjálsar.
Vertu syndari og sterkur í
syndum þínum en vertu sterk-
ari í trú þinni og fagnaðu í
Kristi.
Sá sem vill ei elska konur,
vín og söng, verður æ að fífli,
ævidægrin löng.
Auðæfi gefur herra vor
venjulega mestu ösnunum
sem hann unnir einskis
annars.
4 VIKAN 14. TBL. 1991