Vikan - 11.07.1991, Blaðsíða 23
TEXTI: GUÐNÝ P. MAGNÚSDÓTTIR / LJÓSMBINNI
hlutinn er settur í hreina grisju
og í plastpoka. Plastpokinn er
síöan settur í annan plastpoka
með ísmolum (. Læknishjálp
er nauðsynleg eins fljótt og
auðið er. Þess misskilnings
hefur gætt að það eigi að setja
afklippta hluta, til dæmis
fingur, í munn sér og geyma
þannig þar til læknishjálp fæst
en það er alrangt. Slíkt má
aldrei gerast.
Fær opið sár á höfuðið?
Svar: Setja hreina grisju á
sárið og þrýsta þétt að. Hraða
sér á slysamóttöku eða til
næsta læknis.
Kastar upp eftir að hafa
fengið höfuðhögg?
Svar: Rétt er að fara strax
með barnið til læknis og fylgj-
ast vel með meðvitundarstigi á
leið þangað.
Nær ekki að anda vegna
þess að aðskotahlutur
stendur fastur t hálsi þess?
Svar: Fyrst skal slá hressi-
lega í bak barnsins en ef það
dugar ekki þá leggja barnið yfir
stólbak og halla því fram. Ung-
barni á að snúa við og banka í
bak þess. Ef ekkert af þessu
dugar er ekki um annað að
ræða en aö fara með fingur
ofan í kok og sækja aðskota-
hlutinn þannig.
Fær krampa?
Svar: Hlúa að barninu og
setja eitthvað upp ( þaö svo
það bíti ekki í tunguna. Gott er
að nota einhvers konar vefn-
aðarvöru eða svamp en varast
skal að nota harða hluti.
Handleggs- eða fótbrotnar?
Svar: Það er mjög gott að
setja spelkur við brotið því
hversu einföld sem spelkunin
er þá minnkar hún sársaukann
þegar búið er að koma henni
á. Það má nota ýmislegt sem
spelkur, til dæmis fjöl eða ann-
að álíka. Spelkun er nauðsyn-
leg ef flytja þarf barnið ein-
hverja vegalengd. Ef barn fót-
brotnar á skíðum er ágætt að
nota skíðin sem spelkur. Ef
ekkert er við höndina á að
binda saman fæturna. Allt
hnjask er mjög sársaukafullt
og því mikilvægt að búa um
barnið þannig að það verði fyr-
ir sem minnstu hnjaski á leið til
læknis.
Missir meðvitund, til dæmis
eftir fail?
Svar: Þá er nauðsynlegt að
koma barninu til læknis eins
fljótt og unnt er. Ef flytja þarf
barnið einhverja vegalengd til
læknis er rétt að láta það liggja
í læstri hliðarlegu. Þá liggur
barnið á hliðinni með annan
fótinn beinan en hinn boginn.
Gott er að fylgjast með púlsi
og öndun á leiðinni og skrifa
niður til að afhenda lækninum
þegar til hans er komið. (Þá er
talið hversu oft púls slær á
mínútu og hversu oft er andað
á mínútu.)
Kvartar um eymsli í kviði
eftir fall?
Svar: Slíkt krefst samstund-
is læknisskoöunar vegna
hættu á innvortis blæðingu.
Innri blæðingar, svo sem frá
milta eða lifur, geta verið mjög
lúmskar og byrja oft sem
smávægilegur verkur sem síð-
an eykst.
Kvartar um stirðleika og
sársauka í hálsi eftirfall eða
högg?
Svar: Þá þarf barnið að
komast strax til læknis. Gott er
aö vefja handklæði um hálsinn
og halda honum stööugum
með því. Handklæðinu skal
vefja undir kjálkabörð og niður
á brjóst. Það er mikilvægt að
hálsinn sé vafinn (þeirri stöðu
sem hann er í jafnvel þó hann
sé skakkur. Utan um hand-
klæðið á síðan að hnýta
teygjubindi svo handklæðið
haldist stöðugt meðan á flutn-
ingi stendur.
Sker sig? Hvernig er hægt
að vita hvenær er nauðsyn-
legt að sauma skrurð?
Svar: Ef um er að ræða
skurð á höfði þarf í flestum til-
fellum að sauma hann.
Strangt tiltekið þarf að sauma
flest þau sár sem gapa, eink-
um ef þau eru stór og ekki er
hægt að plástra þau. Það fer
einnig eftir því hvar sárið er
hvort þarf að sauma. Sem
dæmi má nefna að eins og
hálfs sentímetra skurð á höfði
þarf að sauma en svipaðan
skurð á fingri handarbaksmeg-
in er hægt að plástra saman
og vefja utan um. Slík sár er
ekki nauðsynlegt að sauma.
Snýr sig um ökkla?
Svar: Setja þrýstingsum-
búðir á sem allra fyrst. Halda
síðan fætinum í hálegu með
þvi að setja eitthvað undir
hann en með því minnkar
blæöing og bólgumyndun.
Vikan þakkar Gunnari Þór
Jónssyni greinargóð svör og
vonar að þau komi lesendum
að gagni.
VIÐSKIPTAKORT LESENDA VIKUNNAR:
SvARTA
RANNAIN
Hraðrétta veitingastaður
í hjarta borgarinnar
, O
Tryggvagötu og Pósthússtrætis
Sími 16480
/slenskir sjéverréttir
kjöt- og focistciréttir
p>izzur og ex/oressokoffi
S 13340
Það er margt Kveðja frá
gómsœtt í pottunum ^Meitingahus'ó^
hjá okhur
Laugarásvegi 1 Simi 31620
REYKJAVIKURVEGI 64 - HAFNARFIRÐI • SIMI 652620 • HEIMASIMI 52030
Höfum opnað nýja fatahreinsun með öllum nýjustu og bestu
vélum sem fáanlegar eru í dag. Hreinsum allan venjulegan
fatnað. Tökum í þvott fyrir fyrirtæki. Hreinsum einnig gluggatjöld,
sængur, kodda, svefnpoka, gólfmottur, tjöld o.fl.
S 676330
HVERAFOLD 1-3
GRAFARVOGI
*
HOFU DLAUSNIR
HÁRSNYRTISTOFA
14. TBL. 1991 VIKAN 23