Vikan - 11.07.1991, Blaðsíða 64
TEXTI: CHRISTOF WEHMEIER
EVMPSKU KVIKMYNMR
Að undanförnu höfum
viö aðallega fjallað um
ameríska kvikmynda-
framleiðslu. Hvernig væri nú
að forvitnast svolítið um evr-
ópska kvikmyndagerð:
Sænski leikstjórinn Lasse
Hallström gerði hér um árið
hjartnæma mynd sem bar titil-
inn Mit Liv som Hund. Svíinn
hefur nú gert nýja mynd sem
heitir Once Around og er með
úrvals leikaraliði eins og
Richard Dreyfuss (Moon
over Parador), Holly Hunter
(Broadcast News), Danny
Aiello (Do the Right Thing),
Gena Rowlands (Another
Woman) og Griffin Dunne
(After Hours).
sen. Nú er hann að gera nýja
mynd sem er í anda Hitch-
cocks og heitir Shattered og
hefur myndin á að skipa stór-
stjörnum eins og Tom Ber-
enger (Platoon, Someone to
Watch over Me, Love at
Large), Greta Scacchi (Pre-
sumed Innocent), Bob Hosk-
ins (Mermaids), Joanne
Whalley-Kilmer (Scandal og
Navy Seals) og Corbin Bern-
sen (Major League og LA
sjónvarpsþættirnir).
Þetta er sálfræðilegur
spennutryllir. Tom Berenger
leikur mann sem lendir í
hræðilegu bílslysi. Andlit hans
skaddast og hann missir
minnið. En smátt og smátt
▲ Mel
Gibson
ríðandi
sem
Hamlet.
Rómantískur kvöldverður og lokkandi hlátur. Svipmynd úr myndinni Once Around.
Söguþráðurinn er raunsær
og í takt við það sem gæti
gerst i sambúð tveggja per-
sóna. Holly Hunter leikur unga
konu, einlæga og barnalega.
Hún kynnist eldri manni og
verður ástfangin upp fyrir
haus. Richard Dreyfuss leikur
eldri manninn. Hins vegar geta
foreldrar stúlkunnar, sem eru
leikin af Danny Aiello og Gena
Rowlands, ekki sætt sig við
þetta samband vegna mikils
aldursmunar. Þetta er fjöl-
skyldudrama eins og best ger-
ist eða verst.
Man einhver eftir stórmynd-
unum Das Boot, Neverend-
ing Story I og Enemy Mine?
Sá sem stýrði myndunum og
sat í leikstjórasætinu var þýski
leikstjórinn Wolfgang Peter-
kemur minnið aftur og þá kem-
ur ýmislegt í Ijós. Myndin er
byggð á sögu Richards Neely
sem heitir The Plastic Night-
mare.
ítalski leikstjórinn Franco
Zeffirelli gerði kvikmyndina
Hamlet í fyrra. Hún er byggð á
því sígilda verki Williams
Shakespeare. Og hver leikur
Hamlet? Haldið ykkur! Harð-
jaxlinn Mel Gibson. Engin
áhætta var tekin með því að
velja þennan „hasarmynda-
leikara". Mel Gibson hefur
nefnilega áður leikið í leikriti
sem byggt er á verki eftir
William Shakespeare, Rómeó
og Júlíu. Háskólabíó mun
sýna myndina þegar haust-
rökkrið skellur yfir landsmenn.
Þýðverski leikstjórinn Volk-
er Schlöndorff er nýbúinn að
kvikmynda skáldsögu Max
Frisch sem heitir Homo
Faber. Myndin heitir á frum-
málinu Passagier Faber eða
Farþeginn Faber. í henni leik-
ur ameríska leikritaskáldið
Sam Shephard og þýska
öndvegisleikkonan Barbara
Sukowa sem meðal annars
lék í myndinni Lola undir leik-
stjórn Rainers Werner Fass-
binder.
Myndin er þrungin tilfinningu
og persónur eru margbrotnar.
Hún fjallar um verkfræðing
sem leikinn er af Sam
Shephard. Hann sér heiminn í
fastmótuðu samhengi, er
raunsæismaður og því enginn
draumóramaður. Verkfræð-
ingurinn telur sig hafa taum-
hald á tilfinningum sínum en
reiknaði aldrei með ástinni.
Þetta er manneskjuleg mynd
og vonandi sjá bíóstjórar sér
fært að taka hana til sýninga
því hún á erindi til allra. Ekki
bara verkfræðinga.
Þýski leikstjórinn Wim
◄ Rómantík-
in liggur í
loftinu hjá
þeim Sam
Shephard og
Barbara
Sukowa.
Svipmynd úr
Passagier
Faber.
Wenders (Paris, Texas) lumar
líka á góðri kvikmynd. Hann
leikstýrir nú mynd sem hlotið
hefur titilinn Bis ans Ende der
Welt eða Að endamörkum
heimsins í íslenskri þýðingu. í
þessari mynd leikur líka amer-
ísk stórstjarna, William Hurt
(The Big Chill, Accidental
Tourist, Broadcast News, I
love You to Death). Auk hans
leika alþjóðlegir leikarar á borð
við Sam Neill (Dead Calm,
The Hunt for Red October),
Max Von Sydow (Pelle sigur-
vegari), Solveig Dommartin
(Himmel uber Berlin) og
Jeanne Moreau.
Söguþráðurinn er marg-
slunginn. Myndin er í senn
framtíðartryllir og ástarmynd.
Hún gerist árið 1999 og fjallar
um vansæla franska eigin-
konu sem hittir leyndardóms-
fullan Ameríkana á ferðalagi.
Frh. á bls. 66
A Foreldrar
Holly Hunter
funda á
veröndinni
i myndinni
Once
Around.
◄ Wolfgang
Petersen
og lelkkonan
Greta
Scacchi
við tökur
myndarinnar
Shattered.
64 VIKAN 14. TBL. 1991