Vikan - 11.07.1991, Blaðsíða 58
NÝTT TYGGIGÚMMÍ
C-VÍTAMÍNI
Þaö er löngu orðin þekkt
staöreynd aö C-vítamín
er eitt af þeim efnum
sem eru líkamanum nauðsyn-
leg. Meginhlutverk þess er aö
taka þátt f myndun ýmissa
efna innan frumanna, þar á
meðal collagens, eins af þátt-
um bandvefs sem finnst á
flestum stöðum í líkamanum, í
beinum, sinum, húö, æöum og
vöðvum svo einhverjir séu
nefndir.
Alþjóða heilbrigöisstofnanir
mæla meö því að fullorðnir fái
aö minnsta kosti 60 mg af C-
vítamfni daglega. Innbyrði þeir
meira en líkaminn hefur þörf
fyrir skilst það út með þvagi.
Áhrif C-vítamfns á nær alla
starfsemi líkamans hafa verið
rannsökuð og má nefna
nokkra þætti:
Skortur á C-vítamíni getur
haft víðtæk áhrif á ónæmis-
kerfið, sérstaklega þann hluta
þess sem fæst við smitsjúk-
dóma.
Næg C-vítamíninntaka
minnkar Ifkurnar á að fá kvef,
styttir þann tíma sem fólk hef-
ur þann krankleika ef það á
annað borð hefur fengið hann
og minnkar einkenni hans
verulega.
Rannsóknarniðurstöður
hafa sýnt að þörf reykingafólks
fyrir þetta ákveðna vítamín er
mun meira en annarra því það
hefur töluvert minna af C-víta-
míni í blóðvökva og einnig
minna af hvítum blóðkornum
en þeir sem ekki reykja. Hlut-
verk hvítu blóðkornanna er
meðal annars að vinna gegn
smitsjúkdómum.
Járn er einnig nauðsynlegt
fyrir eðlilega starfsemi líkam-
ans. Það er meðal annars
staðsett í rauðu blóðkornun-
um og tekur þar þátt í að binda
súrefni við þau. Flestir ná ekki
að vinna nægjanlegt magn
járns úr fæðunni. Vísinda-
menn halda því fram að sé C-
vítamíni bætt í fæðuna aukist
upptaka líkamans á járni tífalt.
C-vítamín gegnir sömuleið-
is mikilvægu hlutverki í með-
ferð sjúklinga eftir aðgerðir.
Það á að minnka líkurnar á að
fólk fái blóðtappa og er einnig
mikilvægt í krabbameinsmeð-
ferð.
C-vítamín er vanalega tekið
inn sem töflur og eru þær ann-
aðhvort gleyptar eða tuggðar
eða það er drukkið í saft. Öll
þessi meðalaform eru bragð-
bætt með einhvers konar
sykurefnum til að vega upp á
móti sýrueiginleikum C-víta-
mínsins sem er sýruafbrigði
O
cn
co
o
ji
co
C'
2
eins og erlenda heitið ber með
sér, „Ascorbic sýra“. En eins
og alkunna er auka sykurefni
verulega hættuna á tann-
skemmdum.
VANDI LEYSTUR MEÐ
TYGGIGÚMMÍI
Með því að koma C-vítamíni
fyrir í tyggigúmmii .vinnst
margt. Tyggigúmmí er vinsælt
meðal fólks og það tekur ekki
nema um fimm mínútur að
tyggja 90 prósent af vítamín-
inu úr því og segir bragðið til
um hvernær það er búið.
Þegar vítamínið kemur í
munninn lækkar sýrustigið þar
nokkuð, sem er slæmt fyrir
tennurnar, en við tygginguna
myndast mikið munnvatn sem
kemur sýrustiginu í samt lag á
skammri stundu. Vítamínið er
því oröið sýrulega hlutlaust
þegar það kemur í magann og
er það mikill kostur fyrir þá
sem þjást af of háum magasýr-
um, jafnvel magabólgum eða
sári.
Samkvæmt rannsóknum
hefur einnig komið í Ijós að C-
vítamínið í tyggjóinu nær mun
fyrr og betur til frumanna en
það sem er fengið með til
dæmis tuggutöflum.
Aðrir kostir eru að með
tyggigúmmíinu getur fólk tekið
vítamínið sitt á ánægjulegan
hátt, ekkert þarf aö drekka
með því og engra afsakana er
þörf, hvorki fyrir börn né full-
orðna, að vera með tyggi-
gúmmí.
Þarna er komin góð lausn
fyrir foreldra að gefa börnum
sínum vítamín og þeir sem
eru mikið fyrir sælgæti slá
tvær flugur í einu höggi.
Þaö er því full ástæða fyrir
fólk að prófa nýja C-vítamín
tyggigúmmíið.
NEPAL
Frh. af bls. 57
tepptir vegna mikillar snjó-
komu og ekki um annað aö
ræða en að gleyma sér með
nepalska hernum í söng og
spilamennsku. Að morgni
næsta dags glampaði sólin á
heiðskírum himni og voru
menn því fegnir að geta haldið
á tind Kalapatar. Gangan upp
sóttist seint sökum hæðarveiki
en við komumst þó á tindinn
eftir rúmlega tíu tíma erfiða
göngu. Var þá sem allt erfiðið
væri margfalt launað því allt
um kring blöstu við okkur
tindar, snjóþungir og töfrandi í
hrikaleika sínum. Hæst bar
tind hinnar heilögu móður sem
skartaði sínu ægifegursta í
þunnu en tæru háfjallaloftinu.
Þarna vorum við félagarnir
staddir í sex þúsund og tvö
hundruð metra hæð, eitt þús-
und og fjögur hundruð metrum
ofar Everest Base búðunum.
Að loknum nepölskum gleði-
söng okkar til lotningar hæsta
tindi veraldar, Everest, var
haldið niður enda farið að
rökkva.
Sólin gekk niður fyrir tind-
ana og algjört myrkur skall
skyndilega á. Vlð hinkruðum í
skamma stund meðan fullt
tungl gekk upp í stað sólar.
Um miðnætti náðum við til
„Vfir skýja kofans“ og var
ánægjulegt að sjá glaðleg
andlit hermannanna eftir fjór-
tán tíma erfiða göngu. Hvildin
var kærkominn en við sólar-
upprás næsta morgun kvödd-
um við hermennina og héldum
niður í Tengboche.
Það er siður fjallamanna að
kasta kveðju á serbana. Nam-
aste þýðir komdu heill, vinur.
Því er svarað með breiðu brosi
sem yljar manni um hjartaræt-
ur.
Á fertugasta og fyrsta degi
yfirgáfum við Namche Bazar í
annað sinn og var stefnan tek-
in á Lukla. Það tók okkur viku
að komast til Lukla en þaðan
ætluðum við að fljúga yfir Him-
alaja til Katmandu. Lukla er í
brattri fjallshlíð og malarflug-
völlurinn þar í bæ er í brattara
og styttra lagi. Þegar vélar
koma inn til lendingar verða
þær að steypa sér niður á völl-
inn á töluverðum hraða og láta
brattann þar draga úr ferðinni
þangað til komið er á móts við
flöt í fjallshlíðinni. Þá verður
flugmaðurinn að snarbeygja
vélinni af bröttum vellinum inn
á flötina. Ljúft var að komast í
bað og hrein föt í Katmandu
eftir svo langa útiveru.
58 VIKAN 14. TBL1991