Vikan - 11.07.1991, Síða 24
M
01
':Ɯ&
PAULINA
PORIZKOVA
Estée Lauder hefur valiö 24
ára ára stúlku, Pauline Porizk-
ovu að nafni, til aö kynna vörur
sínar. Pauline er núna ein af
dýrustu fyrirsætum heimsins,
en hvað gerir hana svona
sérstaka?
Hún var ekki uppgötvuð [
frægum háskóla og kemur
heldur ekki frá miðstéttar-
heimili í suðurríkjum Banda-
ríkjanna heldur er hún tékkn-
esk og ólst upp hjá ömmu
sinni eftir að foreldrar hennar
flúðu til Svíþjóðar þegar Rúss-
ar réðust inn í Tékkóslóvakíu
árið 1968. Nokkrum árum
seinna ætluðu foreldrarnir að
smygla henni og bróður henn-
ar úr landi á fölskum vegabréf-
um en höfðu ekki erindi sem
erfiði og voru fangelsuð. En
þegar Pauline varfimmtán ára
fór aö örla á þíðu í kalda stríð-
inu og hún var uppgötvuð.
Samanborið við ameriskar
og vestur-evrópskar fyrirsætur
er hún svolítið framandi. Hún
er barnslega sakleysisleg og
þá eiginleika vilja þeir hjá
Estée Lauder einmitt undir-
strika í fari hennar. Að vísu
ræður hún ekki sjálf hvenær
og hvernig hár hennar er klippt
en hún er þannig gerð frá nátt-
◄ Rosemary
McGrotha er
orðin hluti af
ímynd
Helenu
Rubinstein.
úrunnar hendi að hún þarf ekki
að fara í megrunarkúra eða
lýtaaðgerðir. Og hún má vel
við una því hún er farin að
hafa í árslaun meiri peninga
en flestar stúlkur getur dreymt
um að afla sér á allri ævinni.
CINDY
CRAWFORD
Sveitastúlkan Cindy Crawford
er líklega ein þekktasta fyrir-
sæta heimsins um þessar
mundir. Hún hefur um 380
milljónir króna í árslaun. Þegar
hún sá fyrst forsíðumynd af
sér utan á tímaritinu Vogue
brá henni heldur betur í brún.
Hún ætlaði varla að þekkja
sjálfa sig. Nefinu hafði verið
breytt og fæðingarbletturinn,
hægra megin fyrir otan
munninn, hafði verið fjarlægð-
ur. Frammámenn í fyrirsætu-
bransanum höfðu að vísu farið
fram á það við hana aö blettur-
inn yrði fjarlægður en hún
sagði þvert nei. Og hún sér
ekki eftir því. Þessi fæðingar-
blettur er aðaleinkenni hennar
núna, þótt fegurð hennar sé
líka umtalsverð og vel það.
Hún hneykslaði margar
þegar nektarmyndir birtust af
henni í Playboy á sínum tíma
en hún segist ekki hafa verið
að gera neitt ósiðsamlegt.
O
%
LU
o
o
co
oz
A sjöunda áratugnum, þegar athygli skemmtanakyn-
slóðarinnar beindist fyrst og fremst að Bretlandi,
varð London allt í einu tískuborg. Þá komu tvær
heimsfrægar fyrirsætur fram á sjónarsviðið; Jean
Shrimpton (sem kölluð var Rækjan) og Twiggy.
Twiggy var grindhoruð og flestum bar saman um að
Rækjan væri fallegri - samt fór það svo að Twiggy
varð langtum frægari. Kannski var Rækjan svolítið
veiklulegri en Twiggy var sérkennilegri og sterkari
persónuleiki og það réð úrslitum. Nú er svo komið
að helstu tísku- og snyrtivörufyrirtæki heimsins hafa
ráðið til sín fyrirsætur sem eru orðnar hluti af ímynd
þeirra. Þær þurfa því að búa yfir vissum persónutöfr-
um auk fegurðarinnar.
► Tékkneska
stúlkan
Paulina
Porizkova
ásamt um-
boðsmanni
sinum frá
Estée
Lauder.
24 VIKAN i4. m. i99i