Vikan - 11.07.1991, Side 25
„Nakinn líkami minn kemur
ekki upp um neitt í fari mínu
og ég hef ekkert aö fela,“
sagði hún þegar menn gengu
á hana með nærgöngular
spurningar. ( dag er hún orðin
hluti af ímynd Revlon snyrti-
varanna og hún veit að hún
þarf að standa sig í stykkinu.
„Auðvitað auglýsi ég ekki
fyrirtækið óstudd og af eigin
rammleik," hefur hún sagt og
bætti við: „Þetta byggist líka á
vinnu frábærra förðunarmeist-
ara og Ijósmyndara. Myndirnar
af mér eru mjög ólíkar því
andliti sem ég sé stundum í
speglinum nývöknuð á morgn-
ana. Minn hluti af starfinu er
þvi að halda mig frá allri
óreglu og óhollum mat. Ég gef
mig hundrað prósent í starfið
enda bíða örugglega þúsundir
stúlkna eftir því ef það losnar.“
Þaö segir sig því sjálft að
hún reykir ekki, drekkur ekki
sterkt vín og neytir ekki ann-
arra óhollra efna, þar með eru
talin sætindi, dýrafita og matur
með rotvarnarefnum. Að vísu
hefur hún fengið magasár af
vinnuálagi en hún er undir
Cindy Crawford hefur næstum
32 milljónir króna i mánaðarlaun.
stööugu eftirliti lækna og hún
hefur einsett sér að verða ekki
þyngri en 54 kíló en það er
þyngd hennar núna.
Þegar stjarna hennar fer að
fölna í fyrirsætustarfinu ætlar
hún að vera búin að afla sér
svo mikilla tekna að hún geti
haft það náðugt það sem eftir
er ævinnar.
ISABELLA
ROSSELINI
Þótt hún sé dóttir sænsku
leikkonunnar Ingrid Bergman
og ítalska leikstjórans Robert-
os Rosselini var hún ekki upp-
götvuð sem fyrirsæta fyrr en
hún var orðin þrítug. Það eru
átta ár síðan og enn þann dag
í dag er hún ein af frægustu
fyrirsætum heimsins. Þótt
henni finnist hún alls ekki vera
neitt falleg hefur hún mikinn
áhuga á fegrunarmálum og
viðurkennir að hún eyði mikl-
um fjármunum í að halda sér í
góðu formi með jógaiðkunum
og heilsurækt. Það segir sig
kannski sjálft að hún hefur
leikið í kvikmyndum enda bjó
hún með leikstjóranum David
Lynch til skamms tíma. Hún
hefur þó miklu hærri tekjur af
fyrirsætustörfum en kvik-
myndaleik.
Hún er tvískilin og var ein-
stæð móðir þegar hún var
uppgötvuð sem fyrirsæta. Þá
hafði hún satt aö segja ekki
mikla trú á sjálfri sér - en fyrir-
tækið Lancóme hefur tröllatrú
á henni og sér ekki eftir því að
borga henni há laun. Þar vita
menn sem er að ef þeir lækka
launin við hana eru önnur fjár-
sterk snyrtivörufyrirtæki tilbúin
að borga henni svimandi upp-
hæöir. Hún er hins vegar ekk-
ert á förum frá Lancóme því
að þar kann hún mjög vel við
sig.
Hún er í senn ósköp hvers-
dagsleg og heimsmanneskju-
leg, í góöu jafnvægi og hraust.
Og hún sker sig úr fjöldanum
samtímis því að geta látið sig
hverfa inn í hann. Þetta eru
mjög sjaldgæfir eiginleikar.
Hún er hreinskilin og opinská
og þótt Lancóme hafi for-
gangsréttinn að henni hefur
hún áskilið sér rétt til að leika í
kvikmyndum ef henni bjóðast
hlutverk sem henni líst vel á.
Starfsœvi þeirra er að
vísu ekki löng en þœr
bestu verða flugríkar ó
stuttum tíma. Þœr hafa
jafnvel ólíka hó
mönaðarlaun og sumir
vinna sér inn ó heilli
œvi. En starfið krefst líka
mikils af þeim. Þœr
þurfa að þeytast
heimshornanna 6 milli
ef svo ber undir, útlitið
verður alltaf að vera
óaðfinnanlegt og
rólegt einkalíf verður
að bíða betri tíma.
◄ Isabella Rosselinl
á fræga foreldra.
14. TBL. 1991 VIKAN 25