Vikan - 11.07.1991, Page 26
FYRIRSÆTA LEYSIR
FRÁ SKJÓÐIINNI
OG DREGUR EKKERT UNDAN
Heilbrigðar, þrítugar konur ala
ekki allar með sér drauma um
að líta út fyrir að vera fimmtán
ára eöa tvítugar. Þær vilja
bara líta vel út og bera aldur-
inn vel. En þegar vel sköpuð
kona er þrítug hefur hún náð
fullum þroska og fegurðin er
komin í hámark. Þetta vita
sérfræðingarnir hjá Helenu
Rubinstein og þess vegna
völdu þeir Rosemary
McGrotha til að auglýsa snyrti-
vörur fyrirtækisins með útliti
sínu.
Hún er bandarískur ríkis-
borgari af skoskum, írskum og
frönskum ættum. Fortíð henn-
ar er ósköp venjuleg og tíð-
indalítil. Hún erekki af frægum
ættum eins og Isabella Ross-
elini, hún ólst ekki upp austan
járntjalds eins og Pauline
Porizkova og hún hefur ekki
vakið á sér athygli með ást-
arævintýrum með frægum
mönnum eða nektarmyndum í
Playboy eins og Cindy
Crawford. Satt að segja er hún
dæmigerð, amerísk fyrirsæta
og byrjaði snemma aö sitja
fyrir.
Það er heilmargt í fari Rose-
Mary McGrotha sem Helena
Rubinstein kann að meta.
Andlitið skartar klassískri
fegurð, hún hefur fas breskrar
hefðarkonu og svipurinn er
leyndardómsfullur. Hún lítur út
eins og hún þurfi ekki að gera
neitt sérstakt til þess að halda
sér fallegri en raunin er önnur.
Hún tekur starf sitt mjög alvar-
lega. Til dæmis hefur hún unn-
ið með sama Ijósmyndaranum
siðan 1985 og hann fylgdi
með í kaupunum þegar hún
gerði samning við Helenu
Rubinstein. Hún sló í gegn,
eins og svo margar frægar
fyrirsætur, þegar andlitsmynd
af henni birtist á forsíðu Vog-
ue. Reyndar hafa andlit nokk-
urra íslenskra stúlkna sést á
forsíðu þess virta tímarits svo
að íslensk stúlka á kannski
einhvern tíma eftir að feta í
fótspor frægustu fyrirsæta
heimsins og vinna sér inn heil-
an milljarð króna á aðeins
þrem árum.
Og til að gefa enn betri inn-
sýn í líf heimsfrægrar fyrir-
sætu birtum við hér brot úr við-
tali við Rosemary McGrotha -
einmitt úrtímaritinu Vogue.
Hvernig heldurðu þér í
svona góðu formi?
Til aö byrja með annast ég
líkama minn vel. Ég geng mik-
ið og syndi oft. En undirstaðan
að líkamshreystinni er jóga.
Jógaæfingarnar hafa kennt
mér að anda rétt, slaka um-
svifalaust á og fjarlægja öll
þreytumerki. Þegar ég bjó fyrst
í New York fór ég á jóga-
námskeið í New York há-
skólanum og síðan hefur þetta
verið mér lífsnauðsynlegt.
Hefurðu gert eigin aga-
áætlun til að halda húð þinni
ailtaf svona aðlaðandi?
Já, auðvitað! Ég sef heilmik-
ið. Að minnsta kosti átta
stundir á sólárhring, hvað sem
ég þarf að gera. Ég fæ líka
eins mikið og ég get út úr öll-
um hléum meðan ég vinn til að
njóta hvíldarinnar. Svefninn er
vernd mín gegn streitu. Og ef
svo vill til að ég á frídag finnst
mér oft gott að eyða honum í
rólegheitum heima hjá mér og
vera aftur ég sjálf. Ég hef trú á
þessum augnablikum sem
hjálpa mér aö fást við lífið.
Sjálfsvirðing er mjög áríðandi.
Annar vani, sem ég hef haft
síðan ég var táningur, er að
drekka mikið af ölkelduvatni á
hverjum degi. Aldrei minna en
þrjá lítra til að hreinsa líkam-
ann og fá fallegri húð. Og svo
fer ég í drottningarhunangskúr
af og til; eitt hylki á dag (heilan
mánuð. I því er mikið af öllum
B-vítamínunum.
Þú ert stöðugt á ferðalög-
um og á mismunandi vinnu-
stöðum. Hvernig heldurðu
þér fallegri þegar þú lendir
einhvers staðar hinum meg-
in á hnettinum?
í flugvélum hugsa ég fyrst
og fremst um að koma í veg
fyrir aö húðin þorni upp. Alltaf
þegar ég ferðast vernda ég
húðina og varirnar skipulega
með mjög vökvadreifandi geli,
Performance H20 frá Helenu
Rubinstein. Þegar ég lendi ber
ég aftur á mig Performance
H20, Index 4 eða jafnvel 7 til
að lengja vökvadreifinguna og
vegna ómótstæðilegrar þæg-
indatilfinningarinnar sem það
færir mér.
Hvaða venjur hefurðu við
umönnun húðarinnar og
förðun?
Á hverjum morgni, þegar ég
vakna, gusa ég vatni, svona
tíu sinnum, framan í mig. Það
örvar húðina verulega. Þarfyr-
ir utan nota ég meðhöndlunar-
krem reglulega. Núna nota ég
Intercell. Yfir daginn nota ég
mjög náttúrulegt, matt meik.
Ég nota grunninn Contact Fin-
ish No 12 sem ég geri mattan
með lausa púðrinu Perfect
Powder Transparent.
Liturinn kringum augun
breytist eftir því sem líður á
daginn. Um hádegisbil nota ég
reyklitaða augnskuggann
Tender Taupe og Volumatic
Mascara (bláan eða gráan) til
að þétta augnhárin en láta þau
þó líta eðlilega út um leið. Á
kvöldin hef ég þetta mun
dramatískara og meira tæl-
andi; Smokey Grey augn-
skugga á augnlokin og svo
set ég svartan Volumatic
Mascara á tvisvar til aö gera
augun enn leyndardómsfyllri.
Á varirnar nota ég eðlilega liti;
Sandstone eða Desert Spice,
tvo rósaviðarliti úr línunni Hel-
ena Rubinstein Rouge For-
ever.
Hvernig ferðu að því að
halda hárinu svona þykku,
líflegu og fjaðurmögnuðu?
Ég læt klippa á mér hárið
minnst einu sinni í mánuði.
Það styrkir það og heldur því
mátulega síðu. Fyrir mynda-
tökur þvæ ég það daglega
með mjúku sjampói. Og kerfis-
bundið nota ég hárnæringar-
krem eftir þvottinn (Kerastase
Nutritive) og þegar ég hef tíma
læt ég það í olíumeðferð sem
gerir það mjúkt og skínandi.
Hvers vegna ákvaðst þú
að gerast ímynd fyrir fyrir-
tæki eins og Helenu Rubin-
stein?
Þótt ég vilji vera eðlilegt
barn míns tíma eru glæsileiki
og fágun ómissandi fyrir lífsstíl
minn og umhverfi. Ég vil veita
mér svolítinn daglegan munað
á minn hátt. Ég veit að Helena
Rubinstein fullnægir þessum
skilyrðum og mér finnst ég
samræmast þeirri nútímalegu
ímynd sem fyrirtækið leggur
áherslu á.
Hvernig telurðu sambandi
þfnu við fyrirtækið háttað?
Enn önnur hlið á mér er
ástríða mín fyrir snyrtivörum!
Eins og allar konur er ég
stundum óánægð með sjálfa
mig. Ég splæsi því fegrunar-
vörum frá fyrirtækinu á sjálfa
mig og um leið líður mér betur!
Hvernig heldurðu að
Ijósmyndarinn Denis Piel
fari að því að ná fram hug-
hrifum og áferð þess sem
hann myndar fyrir Helenu
Rubinstein?
Denis er illa við „svindl“-
fyrirsætur. Hann snuðrar um-
svifalaust uþþi allt sem er
óekta í þessari eða hinni stell-
ingunni. Hann kann vel að
meta konur sem búa yfir vissri
heiðríkju. Þannig vill hann
hafa mig og sú ímynd fellur vel
að persónuleika mínum.
26 VIKAN 14. TBL. 1991
ÞÝÐING: ÞORSTEINN EGGERTSSON