Vikan - 05.03.1992, Blaðsíða 15
í Japan er lítið um
útlendinga og allra
fyrst fannst mér
mjög erfitt að vera
þar. Ég fór
upphaflega til að
dansa og bjó rétt
fyrir utan Tókýó.
Fyrsta daginn sem
ég fór út í búð störðu
allir á mig eins og
naut á nývirki.
Við urðum einnig
áþreifanlega vör við
fordómana í fyrra
þegar við Alonzo
komum hingað
saman ... Það er
ofboðslega grunnt á
þessum fordómum
hérna...
fara. Allir þögðu og ég var al-
veg að fara yfir um, svo ég bað
Alonzo um að koma. Ég komst
síðan í kynni við flokk Gault-
iers og ferðaðist með honum
um gjörvallt Japan. Alonzo
vann sér markað fyrir fötin sín
þar og sýnir nú þar fjórum
sinnum á ári.“
MAGNAÐIR
FORDÓMAR
Alonzo er frá Equador í Suður-
Ameríku og Edda minnist á
áberandi kynþáttahatur frá
fólki á götum Reykjavíkur.
„Unglingar öskra „Go
home, nigger!" á hann á göt-
um úti. Hann er að vísu ekki
svertingi en fremur dökkur
miðað við landann. Hann
verður líka fyrir áreitni á
skemmtistöðum og svona
hróp eru mjög áberandi þegar
gengið er upp Laugaveginn að
nóttu til. Þessir krakkar virðast
alveg ofboðslegir kynþáttahat-
arar og þetta kannast allir við
sem umgangast þeldökkt fólk
hérna heima.
Við urðum einnig áþreifan-
lega vör við fordómana í fyrra
þegar við Alonzo komum hing-
að saman. Þegar ég er ein á
ferð slepp ég yfirleitt við tösku-
skoðun en í það skiptið var
ekki nóg með að leitað væri í
töskum heldur var leitað á okk-
ur líka. Við vorum tekin inn í
sitt hvort herbergið og látin
dúsa þar í marga klukkutíma.
Allt var tekið í sundur - jafnvel
augnskuggar voru tættir úr
kassanum til að aðgæta hvort
ég hefði límt eitthvað undir þá.
Greitt var í gegnum hárið á
mér til að athuga hvort ég
hefði límt eitthvað í hárið. Við
urðum auðvitað alveg ævareið
og lögðum máliö fyrir lögfræð-
ing. Tollskoðarar sögðu fíkni-
efnalögregluna hafa bent þeim
á Alonzo en fíkniefnalögreglan
neitaði því. Málinu lyktaði
þannig að tollverðir neyddust
til að biðja okkur afsökunar.
Það er ofboðslega grunnt á
þessum fordómum hérna og
við erum ömurlega skammt á
veg komin hvað það varðar að
bera virðingu fyrir einstakling-
um sem skera sig úr. Hér eru
nefnilega í raun og veru engin
vandræði með útlendinga.
Ekki taka þeir vinnu frá íslend-
ingum, ekki fylla þeir heilu fá-
tækrahverfin og ég er alveg
viss um að þeir sem selja dóp
hér á íslandi eru ekki svartir,"
segir Edda og kveður fast að.
AÐ FÓRNA ÖRYGGINU
FYRIR FRELSIÐ
Framtíðin? „Ég hefði viljað
dansa miklu meira en allt í
sambandi við dans er einstak-
lega illa borgað. Ég hef dans-
að á tónlistarmyndböndum
sem birst hafa á MTV en ég fæ
sama fyrir fjórtán tíma vinnu
þar og fyrir tveggja tíma vinnu
Edda er dansari og
fyrirsæta. Alonso er
frá Equador og starfar
sem fatahönnuður.
5. TBL.1992 VIKAN 15