Vikan - 05.03.1992, Blaðsíða 51
TEXTI: HALLGERÐUR HADAL
HUGARÓRAR HALLGERÐAR
BUXNABRAS
aö er engu líkara en allir
hérna I Hrafnanesinu
séu meö jóösótt eöa al-
menn örvitaeinkenni. Ég finn
líka svo greinilega aö þetta
ofdekraöa lið er i því aö fara á
bak við mann. Pælið í því,
Baddi bróðir, þessi tveggja
metra padda, er búinn aö
leggja allt fatakyns undir sig.
Reyndar ekki lífstykkiö hennar
ömmu sem pabbi notar (eins
og allir vita) þegar hann fílar
sig sautján. Meira aö segja er
nýi toppurinn minn horfinn og
gömlu sokkaböndin mín líka.
Hann hefur örugglega gefið
nýju ryksugunni helminginn af
Chanel Five dragtinni sem
mútta píndi út úr pabba meö
rosalegum látum um daginn.
Þaö sáust svo greinilega hans
puttaför á afgangnum. Hugsiö
ykkur hvað þessi dóni er inni-
lega ósmekklegur. Njálgurinn
tekur eignanámi jakkann en
skilur pilsiö eftir eins og það sé
hægt aö nota dragtina þegar
efri partinn vantar. Ég meina
merkiö er á jakkanum, þaö sjá
allir. Gamla peran er búin aö
fara um allt Hrafnanesiö aö
leita að jakkanum eins og
hann hafi farið labbandi að
heiman eöa eitthvaö.
Ég kann sko á svona njálga
enda hef ég sæmilega góðar
tekjur af því aö plotta ráö til aö
pikka þá og pína nokkuö
þægilega þetta af og til, ef þeir
eru með einhvern derring.
Baddi er einmitt þessi tegund
sem engin sæmileg mann-
eskja getur treyst, svo rosalega
er hann spilltur og ömurlega
ofdekraöur. Ég þurfti einmitt í
gær að fá geðsjúkar Levis
gallabuxur fyrir bekkjarpartíiö
um helgina svo ég bara tók
sparibuxurnar hans og setti
þær í þvottavélina, stillti á níu-
tíu gráður, kallaði á gaurinn og
sagðist bara rólega setja allt I
gang ef hann léti mig ekki meö
það sama fá átta þúsund kall.
Rosalega varö njólinn móð-
ursjúkur. Hann gargaði svo
ömurlega aö mamma sagöi aö
ég myndi örugglega sjá hann
liðast í sundur og látast innan
tíu mínútna ef ég hætti ekki á
stundinni „þessu klúöri út í
bæ“. Baddi brjálaðist þegar
hann heyrði allt í einu hljóð í
vélinni og sá náttúrlega að þaö
borgaöi sig aö redda þessu
meö peningana enda mátti
hann bara þakka fyrir aö ég
skyldi sleppa honum svona
svakalega billlega. Rosalega
eru þetta annars góðar galla-
buxur þó enginn vilji tala við
mig og ég geti svo sem vel
viðurkennt aö bestu buxurnar
hans passa á sæmilega stóra
dúkku núna vegna þess að
það bara gekk ekki aö stoppa
vélina. Stressið var svo rosa-
legt aö liðið bara dreifði sér
snögglega og drasliö sauö
meö þaö sama.
Við skulum bara athuga þaö
að þegar ég ráðlagði Jóu vin-
konu aö ganga stanslaust á
nærbuxunum um húsiö í tvo
daga í röö, þegar gamla settið
ætlaðist til að hún færi á ball í
buxunum sem hún haföi notaö
rúmlega einu sinni áöur, gekk
allt upp. Glæta. Jóa fékk
tvennar Levis. Gamla geitin
var viss um aö á næsta leiti
væri lungnabólga enda sást
svo greinilega hvað Jóa varð
rosalegur spítalamatur á
fyrsta tímanum. Vonandi verö
ég uppgötvuð fljótlega. □
VIÐSKIPTAKORT LESENDA VIKUNNAR:
hárstíll
Hjallabraut 33 • 220 Hafnarfirði
Sími: 653680
Björk Sigurjónsdóttir
hárgreiðslumeistari
OPIÐ MÁNUD. - FIMMTUD. 13-18,
FÖSTUD. 10-18, LAUGARD. 9.40-13
VEITUM 10% AFSLÁTT VIÐ AFHENDINGU ÞESSA KORTS
TÉGE-HÁRSNYRTING
GRETTISGÖTU 9,101 REYKJAVfK S. 12274
klippingar
permanett
Irtun
djúpnæring
hárlagning
hárkollur
viðbótarhár
7orfi Geirmundsson
hárgreiðslu- og hárskerameistari
ráðgjöf vegna hárvandamála og sjúkdóma
Hársnyrtistofan
Hár-Tískan
DALSHRAUNI 13, 220 HAFNARFIRÐI
SÍMI 50507
HÁRSNYRTISTOFAN
s
GRArtDAVEGI 47 0 626162
Hársnyrting fyrir dömur og herra
Veitum
10% afslátt
við afhendingu
þessa korts!
OPIÐ A LAUGARDÖGUM
SÉRSTAKT VERÐ PYRIR CLLILlPEYRISÞEGA
Hrafnhildur Konrádsdóttir hárgreidslumeistari
Helena Hólm hárgreiðslumeistari
Asgerður Felixdóttir hárgreiðslunemi
S/Mí 13314
<unstc
X
RAKARA- <St //ARfRE/ÐS/OfSTDFA
HVERFISGÖTU 62 -101 REYKJAVlK
5. TBL.1992 VIKAN 51