Vikan - 05.03.1992, Blaðsíða 22
TEXTI OG MYNDIR: JÓHANN GUÐNI REYNISSON
Nú eru íslenskir karlar
jafnt sem konur, færar
sem vanfærar, farin
að stunda kínverskar bar-
dagaíþróttir af miklum eld-
móði. Það sem hér um ræðir
er ein tegund leikfimi af aust-
urlenskum uppruna, taijiquan,
sem færð hefur verið í tækara
form fyrir fólk sem eigi hyggst
höggva mann og annan heldur
öðlast vald yfir sjálfu sér, sjálfs-
aga, líkamlegan styrk og
teygjanleika ásamt ýmsum
fleiri eftirsóknarverðum eigin-
leikum. Vikan leit inn í Gallerí
sport, Mörkinni 8 í Reykjavík,
en þar er þessi þjálfunaraðferð
kennd ásamt fleirum.
Gallerí sport hóf starfsemi
sína síðastliðið sumar og er í
eigu Sigurjóns Gunnsteins-
sonar og Viðars Guðjohnsen.
Þeir starfa báðir við þjálfun,
Sigurjón við karate en Viðar
AUSTURLENSKAR
ÍÞRÓTTAGREINAR
- KENNDAR ÍSLENDINGUM
*
sið hafa verið mjög góðar og til
dæmis er hundraðasti íslend-
ingurinn að renna í gegnum
kínversku leikfimina (sem við
köllum hér eftir taiji). Nám-
skeiðin miðast öll við þrjá
mánuði því að þjálfunin miðast
við ýmis stig þjálfunar og segir
Sigurjón ekki taka því að æfa
styttri tíma í senn, hyggist fólk
á annað borð ná einhverjum
tæknitökum. Til að stunda hin-
ar hefðbundnu bardagaíþrótt-
ir, karate, taikwando og júdó,
þurfa áhugasamir að festa
kaup á sérstökum galla en
sami gallinn gagnast í hverri
og einni.
RÉÐST Á VIÐAR
Þarna má einnig leggja stund
á sjálfsvarnaríþróttina aikido
22 VIKAN 5. TBL. 1992
við júdó. Báðir eru svartabelt-
ishafar í íþrótt sinni og þess
má til gamans geta að Viðar
keppti á ólympíuleikum 1976
og fór sem þjálfari til sömu
leika árið 1980. Auk þeirra
þjálfar svartabeltishafinn
Michael Jörgensen nemendur
í bardagaíþróttinni taikwando,
Marteinn Þórðarson hefur
aikido á sinni könnu og kín-
verska stúlkan Chen Min hefur
kínversku leikfimina, tajiquan,
í sinni umsjá en hún er beltis-
laus enda engin þörf á slíku í
hennar grein, ekki einu sinni
strigaskóm.
Þeir Sigurjón og Viðar segja
viðtökur ættmenna víkinga við
æfingastöð að austurlenskum