Vikan - 05.03.1992, Page 23
en hún miðar að því meðal
annars að notfæra sér kraft
andstæðingsins til að sigrast á
honum. Viðar Guðjohnsen tók
blaðamann Vikunnar í karp-
húsið til að sýna fram á hvern-
ig þetta má gera en til dæmis
má nota hraða andstæðings
sem hyggst slá fórnarlamb sitt
til þess að toga hann áfram og
snúa niður. Að því komst sá er
þetta ritar eftir að hafa ráðist á
Viðar. Aikido er nýtt fyrirbæri á
íslandi en hefur engu að síður
náð miklum vinsældum.
Nú förum við í taiji. Leikfimin
byggist, eins og áður segir, á
fornri kínverskri bardagaað-
ferð en með tilliti til lítt víg-
hyggjandi frumbyggja á Fróni
hefur verið hægt á öllum hreyf-
ingum, þær gerðar yfirvegað
og með skýrri hugsun. Á þenn-
an hátt verður íþróttin morgun-
tæk enda hugsað sem morg-
unleikfimi þó að kennsla hér á
landi fari einnig fram siðdegis.
Sigurjón segir taiji
leyna á sér, þrátt
fyrir að flestar
hreyfingar séu
hægar gefi
íþróttin þeim
sem hana
betra
vald á
jafnvægi
og teygjum
auk þess sem
hún skapi ákveðið mótvægi
við harðari tegundir íþrótta
fyrir almenning.
Líkt og títt er um austur-
lenskar íþróttir byggist þessi
einnig á hugsun, einbeitingu
og svolítilli hugleiðslu þar sem
reynt er aö útiloka eril hvers-
dagsins frá iðkuninni. Leikfim-
in er sögð mjög góð fyrir
barnshafandi konur sem með-
al annars eiga það til að ganga
með grindarbotnsvöðvana sí-
spennta og getur það torveld-
að fæðingu. Taiji miðar að því
að fólk öðlist stjórn á sjálfu sér,
vöðvum og ýmsum fleiri líffær-
um.
ENGIN HÆTTA
Á FERÐUM
Öllum greinunum tilheyra ýmis
stílbrigði sem þjálfarar stöðv-
arinnar kunna og þar er auk
þess hægt að stunda tækja-
þjálfun en stöðin er búin World
Class æfingjatækjum fyrir iðk-
endur á öllum stigum. Þeir fé-
lagar, Sigurjón og Viðar, segja
greinarnar miða að því að
sýna fram á sams; il listiðkun-
ar og íþrótta fremur en að farið
sé inn á hina hörðu bardaga-
línu, eins og þeir kalla það.
Enginn er því í bráðri hættu þó
hann heimsæki stöðina, ef svo
væri hefðu stafir þessir heldur
ef til vill aldrei komist á blað. □
FULLNÆGING
BRJÓSTIN
OG KYNLIFIÐ
B&B HEIMSÆKIR
RÓMEÓ OG JÚLÍU
BREYTILEG
KYNLÍFSHEGÐUN
HVERNIG MÓTAST
KYNLIFSSKODANIR?
GETULEYSI
KVENNA
ÞRÓAÐRI
KYNMÖK
^SIEJ
Á SÖLU
STAÐU
ÁSKRIFTARSÍMI
813122