Vikan - 05.03.1992, Side 48
JÓNA RÚNA
frjálsa vilja meö því aö gera svo miklar tilraunir sem
þú bendir á til aö skipuleggja þig frá a til ö og svipta
þig öllum rétti og dómgreind til að vega og meta
sjálfur hvað þér er fyrir bestu í þaö og það skiptið.
Ekkert er athugavert við að skiptast bróðurlega á
skoðunum vegna ýmissa mála. Einmitt það ætti að
vera ákjósanlegt í samskiptum barns og foreldris.
Best væri að þar við sæti, sérstaklega þegar börnin
eru komin að fullorðinsárum og eru að auki orðin
sjálfráða. Ýttu því sektarkenndinni frá þér og bentu
þeim áfram á að þú óskir ekki eftir afskiptum þeirra
nema þig langi til þess og þú óskir þess sérstak-
lega. Þú ætlir hvort sem er sjálfur að taka afleiðing-
um af öllum framkvæmdum þínum, stórum sem
smáum.
LÍFSHLUTVERKIÐ VELJUM VIÐ SJÁLF
Hvað varðar það að þú eigir að verða hagfræðingur
er þetta að segja: Það er engin sérstök ástæða til að
ætla að nokkur manneskja geti nákvæmlega sett
sig inn í langanir okkar og drauma. Vart eru foreldr-
ar þínir nein undantekning frá því. Málið er, elsku-
legi Pétur, aö ef þú átt að fá notiö þín sem ábyrgur
einstaklingur og verða sáttur við þitt lífshlutverk þá
velur þú sjálfur nákvæmlega eftir eigin geðþótta.
Trúlega er farsælast fyrir flesta að velja starfslega
möguleika sem mest miðað við meðfædda hæfi-
leika og vitsmuni. Þú ert, sýnist mér, allra skynsam-
asti strákur og ekkert kemur fram í bréfi þínu sem
gefur tilefni til að vanmeta möguleika þína á að þú
getir einn og óstuddur valið þér að ævistarfi það
sem hugur þinn og hæfileikar bjóða upp á. Ef hag-
fræðin hentar þér ekki skaltu sem fyrst finna út hvað
annað freistar þín hvað væntanlegt val á lífshlut-
verki áhrærir, hvort sem það er myndlist eða eitt-
hvað annað. Þú kemur hvort sem er til með að vinna
starfið en ekki aðrir fyrir þig. Þar eru ágætir foreldrar
þínir engin sérstök undantekning.
Það gleður mig að þér skuli ganga skólanám vel.
Eins er ekkert athugavert við að hvíla sig frá námi ef
við erum viss um að það henti okkur þaö augnablik-
ið. Hitt er svo annað mál að við búum í þjóðfélagi
sem gerir kröfur um menntun væntanlegra starfs-
krafta á hinum ýmsu starfssviðum. meira að segja
verkamennirnir verða að sækja alls kyns námskeið
ef svo ber undir til að eignast betri starfsmöguleika
og auka líkur á fleiri krónum í vasann.
DULHYGGJA OG KUKL
Þú talar um að þú hafir mikinn áhuga fyrir alls kyns
dulhyggju. Eins og þú veist er mislitur sauður í
marglitum hópi þeirra sem þannig þjónustu
ástunda. Það er því miður svo í andlegum efnum
sem öðrum og kannski öllu grófari og efniskenndari
að ekki er allt sem sýnist. Þú tiltekur spákonur sér-
staklega sem þann hóp sem þú hefur sótt í vegna
áhuga þíns á því leyndardómsfulla í tilverunni.
Vissulega eru spádómsgáfur þeirra sem yfir þeim
búa heillandi og mjög mikil freisting fyrir þá sem af
einhverjum sökum geta ekki fengið frið í sálu sinni
nema eiga kost á einhverjum vísbendingum um
framtíðarmöguleika sína og þeirra sem hugsanlega
kunna að tengjast þeim núna eða í nánustu framtíö.
Vegna ótæpilegrar þarfar okkar margra til að sjá
í gegnum aðrar og duldar leiðir framtíðarinnar verð-
um við að átta okkur á þeirri staðreynd að gáfur,
sem tengjast sálrænum hæfileikum fólks, eru mjög
breytilegar eftir atvikum. Sumar eru reyndar það
óverulegar að vart tekur að nefna þær. Engum
Vinsamlega handskrifið bréf til Jónu Rúnu
og látið fylgja fullt nafn og kennitölu,
ásamt dulnefni. Svörin byggjast á innsæi
Jónu Rúnu og rithandarlestri og því miður
er alls ekki hægt að fá þau í einkabréfi.
Utanáskriftin er:
Jóna Rúna Kvaran, Kambsvegi 25, 104
Reykjavík.^^j.
_____V*\l
myndi detta í hug að blása neitt sérstaklega upp
sönghæfileika manns sem hefur sungið sömu rödd-
ina í kór árum saman og engan átt möguleikann á
einsöngssveiflum þó virkilega hafi munað um við-
komandi ásamt mörgum öðrum í kórnum.
Næmt fólk á mismunandi stigum er til og það í
miklum mæli. Sjaldgæfar eru þó sálrænar afburða-
gáfur og venjulega liggja þær í leynum hjá eiganda
sínum og eru sjaldan í hugskoti þess sem hreykir
sér hátt og húrrar sig heimskulega upp yfir annað
fólk í þessum viðkvæmu en mögulega jákvæðu
efnum. Spákonur nútímans þurfa til dæmis alls ekki
að búa yfir dulargáfum neins konar. Mörgum virðist
duga ágætlega að vera bara góðir mannþekkjarar,
vel greindir og grandvarir einstaklingar sem eiga og
vilja sem betur fer oftast aö bera fulla ábyrgð á
hugsanlegum framtíðarfrásögnum sem þær upp-
lýsa skjólstæðinga sína um og þær telja mikilvægar
fyrir viðkomandi að nota sér ef þannig stendur á.
FORSPÁRHÆFILEIKI SJALDGÆFUR
Forspárhæfileiki á því stigi sem til dæmis Nostra-
damus var gæddur og Edgar Cayce eru og verða
ávallt sjaldgæfir. Þeir eru á einhvern hátt einstæðir
en kunna þó að búa í öðrum og okkur öllu nærtæk-
ari einstaklingum ef betur er að gáð, jafnvel eins og
einum íslenskum að auki. Af því að þú ert ekki
sáttur við afrakstur ferða þinna til spákvenna sam-
félagsins - og telur meira að segja að sumt af því
sem þær upplýstu þig um hefði betur hvílt í huga
höfundar síns öllum að meinlausu - er þetta að
segja:
Það er mikið og alvarlegt mál að grípa með
mannþekkingu, dulargáfum eða öðrum leiðbeinandi
leiðum inn í líf samferðafólks síns. Enginn ætti að
gefa sig út fyrir slíkt sem ekki reynist ábyrgur gjörða
sinna og gerir sér fulla grein fyrir hættum þeim sem
viðkomandi getur skapað með óvarkárni og óráð-
vendni í þessum efnum sem og öðrum sem varða
heill þeirra sem leiðsögn og framtíðarspár kjósa að
fá frá vegvísum í þessum annars ágætu efnum
sjálfum sér til góðs og annarrar uppön/unar.
VIÐKVÆMT FÓLK OG
PERSÓNULEIKALÍTIÐ
Börn, unglingar og fólk sem er viðkvæmt og per-
sónuleikalítið ætti alls ekki að fara á fund hvorki
spáfólks eða annarra sem gefa sig út fyrir hvers
kyns vísi á vit þess leyndardómsfulla nema hafa
kynnt sér í gegnum að minnsta kosti tíu einstakl-
inga, sem viðkomandi treystir, hvers er að vænta.
Við verðum að gera okkur fulla grein fyrir því að í
öllum stéttum samfélagsins er til fólk sem er óvand-
að og svikult. Engin sérstök ástæða ertil að ætla að
þannig afsiðun geti ekki komið fram hjá svokölluð-
um spávísum framtíðarinnar.
Enginn sem hefur hárlos eða óttast skalla og tek-
ur það nærri sér óskar eftir ráðleggingum garðyrkju-
ráðunauta til úrbóta. Viðkomandi garðyrkjusérfræð-
ingur getur þó hafa sannað hæfni sína á ökrum
náttúrunnar og farnast vel. Mannshöfuðið og hár
þess er ekki sama og jarðvegurinn og gróður hans.
Sem sagt, elsku drengurinn minn, viljir þú fá sál-
rænar leiðbeiningar og mögulegar spár vegna fram-
tíðar þinnar skaltu muna að heldur er ósennilegt að
fólk sem þannig hæfileika hefur og gæti reynst starfi
sínu vaxið sé það fólk sem gefur sig út fyrir þannig
þjónustu. Aldrei er of varlega farið í þessum vand-
meðförnu en áhugaverðu efnum þrátt fyrir að innan
um og saman við það sem býðst sé margt gott og
gagnlegt á ferðinni sem mögulega getur verið feng-
ur í að kynnast og upplifa.
ÓSKiLYRTUR KÆRLEIKUR EÐA GRÆÐGI
Ef við erum óviss og hrædd er tiltölulega auövelt
fyrir hvern sem er að veikja enn frekar tiltrú okkar á
sjálf okkur. Sérstaklega á þetta við ef viðkomandi
hefur ekki snefil af óskilyrtum kærleik í brjósti sér
heldur er rekinn áfram af öðrum og mun veigaminni
hvötum, hugsanlega afsiðuðum að auki. Spákonur
geta því verið gulls ígildi ef þannig stendur á en í
þeim efnum er fagurgalinn mikill en fuglarnir, sem
kvaka af mannúð og mildi, fáir. Kannski eru fleiri
sem tista af græðgi og sérhyggju hvers konar.
Mundu að þú átt eins og aðrir að nota dómgreind
þína til að vega og meta kirfilega allt það sem aðrir
kunna að segja þér. Það er alveg sama þó viðkom-
andi kunni að búa yfir ófreskisgáfum einhvers
konar. Best er að hafa í huga, þegar kemur að því
að treysta öðrum fyrir innra lífi sínu, að enginn getur
reynst öðrum mikilvægur nema sá hinn sami geri
miklar og göfugmannlegar kröfur til sjálfs sin og
leggi sig í líma - burtséð frá öllum sérgáfum - um
að rækta og göfga sitt eigið innra líf. Sá áttar sig
sem afleiðing af því á að við lifum jafnframt efnisleg-
um lögmálum í heimi sem vissulega er háður and-
legum lögmálum og öll brot á þeim snúast gegn
þeim sem þau brýtur.
STYRKUR ER SJALDAN KYNGREINDUR
Hvað varðar spurningu þína um hvort þú værir eitt-
hvað betur settur heima ef þú værir stelpa er þetta
að segja: Óhætt er að fullyrða að ef foreldrar eru
þannig innstilltir á annað borð að virða ekki vilja
barna sinna er engin sérstök ástæða til að ætla að
þeir séu eitthvað liprari við stelpur. Eins erfráleitt að
láta sér detta í hug að stúlka, sem virðir manngildi
sitt og hefur viðurkennt sjálfa sig, sé eitthvað frekar
en strákur tilbúin að lúta vilja foreldra sinna ef hann
er andsnúinn hennar.
Það er ekki fritt við að þú hafir pinulitlar ranghug-
myndir um okkur stelpurnar. Við erum eins og þið
ýmist veiklundaðar eða sterkar og engin ástæða til
að sættast á annað. Þó þið séuð oftar en ekki líkam-
lega sterkari en við má meira að segja jafnvel stór-
efast um að svo sé, frá öllum flötum séð. Eins og þú
veist getur allt gerst í slagsmálum og vöðvafjallið
auðveldlega orðið undir hrífuskaftinu. Þegar kemur
að andlegum styrk einstaklinga er það nú oft svo að
þeir sem virðast veiklaðir og óverulegir andlega
fljótt á litið geta reynst nokkurs konar andlegir jötnar
þegar á reynir. Sjálfskipað ofurmennið getur aftur á
móti eins og lekið niður við minnsta áreiti og aðrar
álíka geðsviptingar. Satt best að segja væri því
heldur ósennilegt að þér gengi nokkuð betur í sam-
skiptum þínum við þína þó þú værir stelpa. Annað-
hvort erum við með innri styrk og afl eða alls ekki.
Skiptir þá heldur litlu máli hvort við erum strákar eða
stelpur, gömul eða ung, öskukarlar eða höfðingjar.
LÍFSLEIÐI OG GUÐSNEISTINN
Við verðum aldrei neins virði bara af því að við erum
annað hvort kynið heldur miklu frekar vegna þess
að við erum manneskjur sem viljum halda vörð um
það besta sem guð gaf okkur og það er lífið sjálft.
Lífsleiði er eitthvað sem við getum öll fundið fyrir á
ákveðnum augnablikum í lífi okkar og segir satt
best að segja ekkert endilega til um styrk þann sem
við kunnum að búa yfir þrátt fyrir tímabundna lægö.
Mundu bara aö þú ert sextán ársf'Sg átt þitt líf
sjálfur. Það hefur enginn, hvorki skyldur eða óskyld- ?
ur, nokkurn rétt til að svipta þig vilja þínum eða ráð-
stafa honum fyrir þig. Hann átt þú sjálfur og átt að
nota hann sjálfum þér til framdráttar og öðrum til
góðs, vonandi þar sem þig langar til en ekki aðra
fyrir þína hönd.
Eða eins og kúgaði strákurinn sagði eitt sinn af
eðlilegum ástæðum í ágætu boði vina sinna: „Elsk-
urnar mínar, það er eins og allir vilji stjórna mér
og planta mér hér og þar í tilveruna. Málið er
bara að ég er fullfær um að taka allar þær
ákvarðanir um llf mitt sem henta mér best. Af
því að ég ætla jafnframt að taka sjálfur alla
ábyrgð á afleiðingum þeirra er engin sérstök
ástæða fyrir fjölda manns að vera að með-
höndla mig eins og mér hafi gengið eitthvað illa
að vaxa upp úr fermingarfötunum yfir í fullorð-
insgallann."
Guð gefi þér fullan styrk og staðfasta trú á að allir
þínir draumar, sem eru heilbrigðir og sannir, verði
að veruleika án tillits til hvað öðrum finnst um þá.
Med vinsemd, Jóna Rúna.
48 VIKAN 5. TBL. 1992