Vikan - 05.03.1992, Side 49
KROSSGÁTUGERÐ: GUÐJÓN BALDVINSSON
an og þá er Hótel Loftleiðir og
sundlaugin í kjallaranum næst
á dagskrá. Þar er hægt að tara
í gufubað eða Ijós, synda og
horfa á sjónvarpið um leið. Oft
hitti ég útlendinga og get þá
notað tungumálakunnáttu
mína og sagt þeim ævisögu
mína eöa eins mikið af henni
og ég kemst yfir.
Þegar upp er komið er
píanóleikari hússins farinn að
leika og liggur beinast við að
setjast í leðursófann og panta
sér te og Bailys, hlusta og láta
hugann reika. Ef fólk vill velja
sér lag þá er hægt að fara til
hans og biðja um lagið Til eru
fræ og þá getur maður grátið
ofurlítið í leðursófanum og
glaðst yfir því að vera lifandi
þrátt fyrir allt.
Næst ætla ég aö segja ykk-
ur frá því sem hægt er að gera
skemmtilegt og kostar ekki
peninga. Mun ég reyna að
vera ekki heldur mjög kynferð-
isleg í það skiptið, þótt mér
hafi dottið það rétt í hug. Af
skiljanlegum ástæðum.
HAUST
Við erum haustlaufin
sem leika
í golunni
fagurrauð
með litla ósýnilega vængi
glettast
og láta sig engu varða
þótt veturinn sé i nánd.
Við áttum okkar sumar
áttum okkar vor
en núna erum við
rauðglóandi
af ástríðu haustsins.
AAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAA
ÆVINTÝRI VERULEIKANS
▼▼VVVTVVTTTVTVTTVTTVVVVVV
GAMANAÐGERA
Ef ég ætti að telja upp
það sem mér finnst
gaman að gera - og
sleppi ég þá öllu kynferðislegu
í bili, tek það ef til vill seinna
fyrir - já, þá kostar það flest
peninga.
Morgunverður á Hótel Holti
þar sem óteljandi tegundir af
mat standa til boða. Ávextir,
ostar, brauð, kökur, heitir réttir
og hvað eina. Þar sem kampa-
vínsflaskan stendur við hliðina
á lýsisflöskunni og staup fylgja
báðum veigum.
Þegar búið er að borða er
gaman að ganga út á Berg-
staðastrætið og koma við á
Blómaverkstæði Binna og
kaupa blóm handa þeim sem
ég elska.
Þá er líka gaman að fara í
verslunina Bezt á Skólavörðu-
stíg og kaupa eitthvert blúndu-
dót, en um það bil sem ég varð
fertug fór að bera á miklum
áhuga á blúndum og knipling-
um hjá mér og er ég helst á
því að það sé eitthvað kyn-
ferðislegt viö þennan áhuga.
Kannski held ég þetta bara
af því að í veislu, sem ég var í
ekki alls fyrir löngu, hitti ég
gamlan mann. Ég sæki alltaf
veislur sem bankar halda þeg-
ar þeir eiga afmæli, eru að
opna eða loka eins og þessi
veisla var tilkomin þar sem ég
hitti gamla manninn. Hann
sagði að ég væri á svo góðum
aldri. Til að skapa og njóta
ásta. Fjörutíu og tveggja
ára...
Ég sem ætlaði ekki að vera í
þessum kynferðislegu hug-
leiðingum á meðan ég skrifa
en eins og rithöfundar hafa
svo oft sagt - persónurnar
tóku af mér völdin, ég réð ekki
við neitt.
Ef ég held áfram að telja
upp það sem mér finnst gam-
/ þjÖB KVB-AJ- A/áT/VI' JJAAÓ SVB/ TXuFti SKoRH- za/CmÍ B'dÐiB 7o'aj- V£RK
,7/ Mm V 1 0 1
&BÍNf\
/ ViMD PRiKm 70LUR_ OTTiþT R'JKÓ H'ATTuR. L.FMJÖ » \ t > y
SCtKuR. Rómia FjóRi'R 3 i/ > i/ tUu- SK-sr.
A/E. 5 SViPftÐ LoKAoRÐ > Z v/ * V
6flUGr OFwAf^ DRtiFU{ 5- > >
SToÐVÍ ÚTUM 01' Ð i r > > /r */■
/ z 3 y 5 <o 0 ftGiíi to
Lausnarorð í síðasta blaði 1 -6: SKÁRAR
5.TBL. 1992 VIKAN 49
ANNA S. BJÖRNSDÓTTIR SKRIFAR