Vikan - 05.03.1992, Side 60
TEXTI: HJALTIJÓN SVEINSSON \ MYNDIR: BINNI
EÐALVININ ELD
í EIKARTllNNUfl
VIKAN R/íÐIR VIÐ JON ARMANNSSON VÍNBÓNDA í FRAKKLANDI
Jón Armannsson og
Guðlaug Baldursdóttir
reka vfnbýli í einu besta
vínræktarhéraði heims, Bor-
deaux í Frakklandi. Þessi tull-
yrðing hljómar kannski svolítið
undarlega þar eð Frónbúar
hata til þessa ekki verið í mikl-
um tengslum við þessa æva-
gömlu atvinnugrein. Land
þeirra hjóna er um tíu hektarar
að stærð og þar af eru sjö und-
ir vfnvið. Býlið, sem ber nafnið
CHATEAU DE RIONS, keyptu
þau árið 1988 og hafa búið þar
síðan. Þau hafa samt verið
með annan fótinn á Islandi
vegna barna sinna sem eru í
skóla hér heima enn sem
komið er. Frá því í maí og
fram á haust, þegar uppskeru
lýkur, eru þau bæði við störf á
búi sínu en Guðlaug heldur
heim með börnin þegar skól-
inn byrjar að hausti. Þau
leggja mikið upp úr þvf að
börnin gangi í íslenskan skóla
á meðan þau eru að ná undir-
stöðunni. Blaðamaður Vikunn-
ar hitti Jón og Guðlaugu f byrj-
un þorra en þá var þess
skammt að bíða að hann héldi
utan til nokkurra vikna dvalar
til að sinna vfngerðinni. Góðir
grannar þeirra og starfsmenn
fylgjast vel með öllu á meðan
þau eru hér á norðurhjara.
Til skamms tíma hefur verið
unnt að fá vfn frá þeim hjónum
hér á landi bæði í verslunum
ÁTVR - eða tvö þeirra - auk
þess sem tvær gerðir til við-
bótar er unnt að fá á nokkrum
betri veitingahúsum höfuð-
borgarinnar, þar á meðal f
Setrinu á Holiday Inn. Vínin
eru seld undir merkinu CHAT-
EAU DE RIONS þvf þau eru
að sjálfsögðu kennd við stað-
inn þaðan sem þau eiga upp-
runa sinn að rekja.
DRAUMURINN RÆTTIST
Víngerð hefur verið áhugamál
Jóns síðustu tvo áratugina að
minnsta kosti og upp úr 1980
var hann farinn að halda til í
Bordeaux-héraði f Frakklandi
hvenær sem hann gat. Hann
kynnti sér fræðin rækilega,
fylgdist vel með öllu á upp-
skerutímanum og síðan í
víngerðarhúsunum þess á
milli. Brátt hóf hann skipulega
leit að stað þar sem fjölskyld-
an gæti sest að og hafið eigin
framleiðslu. Staðinn fann hann
loks, nú er kominn góður
skriður á málin og draumurinn
hefur ræst. Jón hefur meira að
segja hlotið verðlaun fyrir
bæði rauðvín og hvftvín sem
hann býr til á sinn sérstaka
hátt. Það fer ekki milli mála að
víngerðin á hug Jóns allan og
Guðlaug tekur þátt í þessu
líka af lífi og sál. Hún býður
blaðamanni upp á dýrindis
hádegisverð á franska vísu og
ekki spillir það bragðinu að
smálúðunni, sem hún berfram
með feiknagóðri humarsósu,
að með matnum er drukkið
verðlaunahvítvfnið hans Jóns,
CHATEAU DE RIONS SPECI-
AL RESERVE - af árgangnum
1990, en það var mjög gott ár.
- Og auðvitað er rætt um
vfnið og vfngerðina yfir matn-
um á meðan élið dynur á borð-
stofuglugganum þeirra sunn-
anmegin f Fossvogsdalnum.
Blaðamaður þarf að spyrja
margs og það er eins og Jón
sjái hvaða spurning er að
vakna á vörum hins fyrrnefnda
þegar hann fer að ræða um
hina ýmsu þætti f starfi hans
og um staðhætti í Bordeaux.
„Þetta er mjög umfangsmik-
iö starf. Auðvitað hef ég mik-
inn áhuga á vínviðnum og við-
gangi hans enda er óg búinn
að eyða mikilli vinnu í að koma
honum í gott stand. Mestan
áhuga hef ég samt á sjálfri
víngerðinni, hún hefur löngum
verið mér einkar hugleikin. I
fyrstu varð hún áhugamál mitt
og þróaðist út! það að ég jók
smám saman við þekkingu
mína þangað til ég var farinn
að vera með annan fótinn úti í
Bordeaux nokkrum árum áður
en við fórum að halda þar til og
hófum eigin framleiðslu. Þriðji
þátturinn er markaðssetningin
og spurningin um það hvernig
hin fullunna vara kemur fyrir. “
„KARAKTER"
OG EIGIN STÍLL
„Við getum ekki ræktað aðrar
berjategundir en
þær sem bundn-
ar eru við Borde-
aux-hérað. Við
ræktum sex eða
sjö tegundir,
bæði rauð og
hvft. Hvert vfn er
sfðan samsett úr
fleiri en einni
tegund. ( Bor-
deaux-héraðinu
eru kannski fimm
til sex tegundir
sem mynda efni-
viðinn í rauðvín-
in. Við gerum
tvenns konar
rauðvín sem eru
mismunandi
60 VIKAN 5. TBL. 1992