Vikan - 14.05.1992, Síða 23
Gamli og nýi tíminn mætast þar sem verslunarmiðstöðin Forum des
Halles hefur verið reist í návígi við mannvirki frá liðnum öldum.
M Utan við
Pompidou-
nýlistasafn-
ið, sem
dregur að
sér milljón-
ir gesta ár-
lega.
Verslanir í París bera dám af
þessu enda er þar unnt aö
finna sérhæfðar sölubúðir
hvort sem er á sviði matar eða
drykkjar, kvenfatatísku eða
snyrtivara - víns eða osta,
kjöts eða fisks, málaralistar
eða höggmyndalistar, forn-
minja eða frímerkja og svona
mætti lengi telja.
í kveri Jónasar er meðal
annars getið um götur þær í
miðborginni þar sem finna má
sérverslanir á ofangreindum
sviðum og kennir margra
grasa. Það ber aftur á móti að
hafa í huga að Islendingar
færu mjög líklega eitthvað
annað ætluðu þeir „að versla",
eins og það heitir, því að París
er dýr og reyndar í mörgum til-
vikum afar dýr. Sé aftur á móti
um þaö að ræða að eignast
góðan grip og jafnvel fágætan
á því verði sem upp er sett þá
er París auðvitað rétti staður-
inn.
VEITINGAHÚS
Engin borg hefur upp á að
bjóöa jafnmarga og mismun-
andi veitingastaði að sögn.
Þeir skipta þúsundum og þar á
meöal má finna heimsþekkt
veitingahús sem borið hafa
hróður franskrar matargerðar-
listar um langan aldur. Inn á
þau vinsælustu er ekki unnt að
komast nema að hafa pantaö
borð með löngum fyrirvara og
má þá gera ráð fyrir að þriggja
rétta máltíðin kosti allt að
10.000 krónur. Fjölmargir
ágætir matsölustaðir bjóða
samt upp á Ijúffenga rétti fyrir
miklu minna verð og mætti
nefna töluna 100 franka eða
um 1000 krönur í því sam-
bandi, jafnvel niður i 35. Ef
lesendur vilja fræðast nánar
um veitingahúsamenninguna i
París er aftur bent á Parísar-
kver Jónasar. Þar eru tveir
aðalkaflarnir um hótel og veit-
ingastaði þessarar ágætu
borgar og fjölmargir staöir sér-
staklega tilgreindir. í Berlitz-
kverinu er sömuleiðis mælt
meö ákveðnum veitingastöð-
um í mismunandi verðflokk-
um.
DÆGRADVÖL
Á hvaða árstíma sem er geta
ferðamenn notið skemmtunar
i París, allan sólarhringinn ef
því er að skipta. Frægust er
borgin fyrir þá iðju fólks að
sitja á veitingahúsum eða úti á
gangstéttum framan við þau
og virða fyrir sér vegfarendur.
Allflest kaffihúsin eru á jarð-
hæð og ná gluggarnir gjarnan
frá götunni og upp í loft. Við
Frh. á bls. 75
CLEANSER / L0TI0N
C0LLECTI0N