Vikan - 14.05.1992, Blaðsíða 25
ann 12. apríl síðastlið-
inn var hinn umtalaði
Euro Disney-skemmti-
garður í nágrenni Earísar opn-
aður. Þangað eru aðeins um
30 kílómetrar og er unnt að
komast þangað á auðveldan
hátt með neðanjarðarlestum
borgarinnar. Þrátt fyrir að
garðurinn sé aðeins í seiling-
artjarlægð frá heimsborginni
kjósa margir að gista innan
hans ætli þeir að njóta lífsins í
Euro Disney og skoða allt sem
þar er að finna. Til fróðleiks
má geta þess að garðurinn er
á stærð við 1/5 hluta Parísar-
borgar eða um 40 hektarar.
Innan svæðisins eru sex hótel
sem taka 5200 gesti og segir
það sína sögu um stærðina.
Fram til ársins 1995 er gert ráð
fyrir að hótelrýmið verði aukið
verulega og herbergjum fjölg-
að um 13.000. Fólk getur einn-
ig fengið að tjalda inni í sjálf-
um skemmtigarðinum eða gist
í húsbílum á sérstöku svæði
sem ber nafnið „Camp David
Croccet". - Það er meira að
segja hægt að taka golfsettið
með sér inn á svæðiö því þar
nefndu eiga reyndar rætur sín-
ar að rekja til germanskra
ævintýra sem birtust til dæmis
í safni hinna þýsku Grimms-
bræðra. Gosi, sem Walt Disn-
ey dubbaði upp á sínum tíma,
er þarna líka en hann rekur
uppruna sinn til Ítalíu þar sem
sú saga var upphaflega rituð
af ítalanum Carlo Lorenzini. -
Euro Disney er því evrópskara
en margur heldur og við það
bætist svo að í hluta garðsins,
sem nefnist „Discoveryland"
eða „land uppfinninganna",
gætir áhrifa frá höfundum vís-
indaskáldsagna á borð við Jul-
es Verne (Leyndardómar
Snæfellsjökuls).
Höll Þyrnirósar, sem er 43
metrar á hæð, er miðdepill
svæðisins og hefur henni verið
valinn staður í miðri undraver-
öld Walt Disneys, með öllum
þeim fígúrum og fyrirbærum
sem viö þekkjum svo vel úr
Andrés-blöðunum annars veg-
ar og ennfremur hinum mikla
Loftskipið
„Hyperlon"
var smiðað i
anda vfsinda-
skáldsögu
Jules Verne.
er að finna 18 holu völl í um-
hverfi sem golfáhugamenn
eiga ekki að venjast á golf-
völlunum heima hjá sér.
í Euro Disney getur aö líta
gamalkunnar persónur úr
Disney-ævintýrunum með
sjálfan Mikka mús hvarvetna í
broddi fylkingar. Þar er meðal
annarra er að finna persónur
eins og Andrés önd og Guffa,
Mjallhvíti og dvergana sjö og
Þyrnirós, en þær tvær síðast-
fjölda teikni- og ævintýra-
mynda sem nánast öll börn
hafa séð síðustu fjóra áratug-
ina.
í skemmtigarðinum eru
einnig svæði sem bjóða gest-
um upp á annars konar ævin-
týri, eins og villta vestrið og
gullleitarævintýrið (Frontier-
land), Róbinson Krúsó og
spænska sjóræningja (Advent-
ureland).
Euro Disney hefur að
geyma margt svipað og við
þekkjum úr fyrirbærum á borð
við Tívolí. Því er hægt að fara
í svifbrautum á fleygiferð um
fjöll og firnindi ævintýralands-
ins - og jafnvel á milli stjarn-
kerfa, ferðast með flughermi
um himinhvolfið, horfa úr sér
augun í 360 gráða panorama
kvikmyndahúsi, sigla með
hjólaskipum um fjót sem leiða
mann um söguslóðir Marks
Twain og svona mætti lengi
telja.
Á hverju svæði er að finna
veitingahús og verslanir af
ýmsum toga sem tengjast að
sjálfsögðu því sviði sem við á
hverju sinni. Nefna má bari í
villta vestrinu þar sem „kan
kan" dansmeyjar stíga fá-
klæddar á svið, hamborgara-
staði að hætti Andrésar andar
og svo framvegis - en sjón er
sögu ríkari.
Það gefur hugmynd um um-
fang Euro Disney að þar vinna
um tólf þúsund starfsmenn og
á þeim eftir að fjölga mikið í
samræmi við stækkun svæð-
isins á næstu árum. Allir eru
þeir klæddir í stíl við þetta
sérstaka umhverfi og hafa
meira að segja gengið í Disn-
ey-skólann þar sem sagt er
fyrir um vinnureglur, klæða-
burð, hárklippingu og fleira í
þeim dúr því allir verða aö
vera steyptir nokkurn veginn f
sama mót hvort sem þeim lík-
ar það betur eða verr. Starfs-
menn geta allir bjargað sér á
ensku ef því er að skipta enda
er gert ráð fyrir gestum hvað-
anæva úr heiminum. Fyrsta
árið er búist við ellefu milljón-
um gesta.
Aðgangseyrir inn í Euro
Disney er um 2400 krónur fyrir
fullorðna og 1500 fyrir börn.
Hótelin á svæðinu geta tæpast
talist í ódýrari kantinum og er
verðið fyrir manninn frá 7000
(Hotel Santa Fe) upp í 21.000
krónur (Disneyland Hotel). □
► ICamp
Davld
Croccet
fjölskyldu-
búðunum er
ýmlslegt
hægt að gera
sér tll
skemmtunar.
▲ Þessi
mynd var
tekín í
jómtrúrferð
hjólaskipsins
um sögu-
slóðir Mark
Twain.
► Götur
Villta vest-
ursins Ifta út
alveg eins og
f bfó-
myndunum.