Vikan - 14.05.1992, Page 39
PARISARTISKAN
faztc umtcc <z$
tíá&ufiátfanútá,
LJÓSMYNDIR
Gísli Egill Hrafnsson stundar Ijósmynda-
nám ( París. Hann vann um skeið sem
Ijósmyndari á dagblaðinu Tímanum auk
þess sem hann hefur tekið myndir fyrir
ýmis tímarit. Gísli hefurtekið þátt í ýmsum
samsýningum á íslandi og vann fyrstu
verðlaun á alþjóðlegri Ijósmyndasýningu
Félags áhugaljósmyndara í Norræna hús-
inu árið 1983.
STÍLL OG FÖRÐUN
Inga Elsa Bergþórsdóttir: Hún er 23 ára
snyrti- og förðunarfræðingur frá skóla
Christian Chauveau í París. Hún stundar
nú nám í grafískri hönnun þar í borg. Inga
annaðist stíl og förðun á þeim myndum
sem hér birtast.
Starf stílistans felst meðal annars í því
að velja fatnað og velja saman flíkur. Þetta
þarf að ákvarðast í náinni samvinnu við
Ijósmyndarann en saman „hanna“ þau útlit og yfirbragð mynd-
anna. Stílistinn þarf jafnframt að gæta þess að ekkert fari úr-
skeiðis á tökustað og gæta þess að minnstu smáatriði séu eins
HÁRGREIÐSLA
Sigga Stína á heiðurinn af hárgreiðslunni.
Hún hefur starfað hjá Báru Kemp hár-
greiðslumeistara og sótt alþjóðlegar hár-
tískusýningar í París á hennar vegum.
Síðast var slík sýning haldin I febrúar sl.
en þá var kynnt nýjasta línan í hártískunni,
„California". Þar er lögð áhersla á kven-
legar, léttar og bylgjulagaðar útfærslur fyrir
hár í öllum siddum. Þessi lína endurspegl-
ast í hárgreiðslu fyrirsætanna á myndunum sem hér birtast.
og ráð er fyrir gert.
FYRIRSÆTUR
Ágústa Erna Hilmarsdóttir: Hún þreifaði fyrir sér sem fyrirsæta
í París síðastliðinn vetur og hyggst starfa þar sem slík í náinni
framtíð.
Ágústa Garðarsdóttir: Hún hefur starfað í sex ár sem fyrirsæta
í háborg tískunnar.
Bryndís Gísladóttir: Hún hefur dvalið í París síðastliðin sjö ár.
Þar af hefur hún unnið í fimm ár sem fyrirsæta.
Hún stundar frönskunám við Sor-
bonneháskóla i París um þessar mundir og vinnur við fyrirsætu-
störf þar í borg jafnhliða.
FATAHÖN NUÐUR
Helga Björnsson hefur hannað bæði föt
og skartgripi þá sem birtast hér á nokkrum
myndanna. Hún hefur starfað sem fata-
hönnuður I París um 20 ára skeið. Nú er
hún aðalteiknarinn hjá tískuhúsi Louis Fér-
aud þar sem hún hefur um árabil hannað
„haute couture", sérsaumaðan módelfatn-
að. Hún hefur nokkrum sinnum hannað
búninga fyrir Þjóðleikhúsið og nú síðast
hannaði hún skreytingar sem prýða nú Borgarkringluna.
LAUGAVEGI 30-SIMI 624225
SENDUM I POSTKROFU
AUSTURSTRÆTI 8
SIMI 14266