Vikan


Vikan - 14.05.1992, Qupperneq 44

Vikan - 14.05.1992, Qupperneq 44
urinn þar sem viðtal- ið fór fram, að rue de Babylone nína gáuíá bíða svolitla stund eftir því að komast að. Staðurinn er lítill eins og þú sérð og hingað kemur ávallt margt fólk, bæði til að fá sér þennan góða mat og ekki síður til að forvitnast því sú hæstráöandi er mjög sérstök." í þann mund heyrist hvina í þeirri stuttu, sem kemur hlaup- andi með tvo diska í hendi. Hún beinir orðum sínum til matargestanna sem eru í óða- önn að gæða sér á réttunum: „Viljiö þið drífa ykkur, það bíð- ur fólk eftir borði. Ég er orðin þreytt á því að vera alltaf að skamma ykkur - svona, flýtið ykkur að koma þessu í andlitið á ykkur. Finnst ykkur maturinn vondur eða hvað?“ Þegar hún hefur losað sig við diskana gengur hún að barnum og snýr sér að brún- um og sólarlampalegnum manni með gleraugu: „Heyrðu, góði minn, þú ert of brúnn, ég vil enga svertingja hér inni. Þú hlýtur að hafa ver- ið á skíðum." ÚR HJÚKRUNí LISTAHÁSKÓLA „Ég er búin að vera hér í um tuttugu ár en ég trúi því varla því mér finnst eins og ég hafi komið hingað í gær. Ég ætlaði aldrei aö fara hingað til aö setj- ast að heldur aðeins til að læra svolítið í frönsku - mig langaði líka í listaskóla," segir Nína þegar hún er spurð um tildrög þess að hún settist að í París. „Ég hafði lært hjúkrun heima og starfað við það áður en ég hélt utan. Ég fór strax aö sækja frönskutíma og þar kynntist ég stúlku sem tjáði mér að í borginni væri atvinnu- miðlun fyrir hjúkrunarkonur. Ég var ekki lengi aö hugsa mig um því þarna gæti mér gefist tækifæri til þess að fjármagna dvöl mína. Ég var heppin, fékk strax starf við heimahjúkrun og hafnaöi hjá efnaðri en aldr- aðri barónessu. Ég vann hjá henni á nóttunni þannig að dagana hafði ég fyrir mig. Mér sóttist frönskunámið ágætlega og þó ég þyrfti talsvert að hafa fyrir því var ég líka farin að sækja tíma í teikningu áður en varði. Ég eignaðist fljótt ágæta kunningja í báðum skólunum og kynntist fjölmörgu og ólíku fólki. Eitt sinn spurði vinkona mín mig hvað ég ætlaðist fyrir eftir að ég hefði náð mér á strik í frönskunni. Ég sagði henni að mig langaði til að læra meira f myndlist. Hún hvatti mig til þess að fara þá í almennilegan skóla. Eftir nokkra umhugsun afréð ég að reyna við inntökupróf í lista- háskólann, þó svo ég væri að drepast úr minnimáttarkennd og ætti alls ekki von á því aö komast inn. Ég náði prófinu og það kom mér mjög á óvart. Tíminn leið mjög hratt og fyrr en varði lauk ég skólanum. Ég hafði nægileg laun af hjúkrun- inni til að framfleyta mér. Ég bjó líka í prýðilegri íbúð á góð- um stað í borginni. Ég hugsaði með mér að best væri að vera hér áfram einhvern tíma svo fremi aö ég héldi húsnæðinu og vinnunni. Síðan hafa liðið mörg ár.“ Sú stutta kemur nú kjagandi með matinn - skötu handa Nínu og kálfakjöt handa blaðamanni. Viö tökum til ó- spilltra málanna því ekki má tefja of lengi við boröið. EINS OG AÐ FARA f PRÓF - Færðu heimþrá eöa eru slik tilfinningabönd brostin á tuttugu árum? „Ég finn þaö í auknum mæli nú orðið að ég er útlendingur hér og rætur mínar eru heima á íslandi. Ég verö að viður- kenna að ég hef fengið meiri heimþrá eftir því sem árin hafa liðið. Það má kannski segja að ástæðan sé sú að ég vilji ekki viðurkenna að ég eigi ekki eftir að fara heim því að hér er vett- vangur minn bæði innan heim- ilis og utan. Ég fer i frí til ís- lands á hverju sumri og dvel þar í sex vikur til þess að halda tengslunum og fá útrás fyrir ættjarðarástina." - Og þú sýnir líka verk þín heima til áð halda sambandinu opnu? „Aðeins hef ég sýnt þar á síðustu árum. f fyrra var ég með sýningu í Slunkaríki á ísafirði. Það er svo skemmti- legt fólk sem hefur umsjón með galleríinu þar. Árið þar áður sýndi ég á Kjarvalsstöð- um. Mér hefur yfirleitt verið tekið nokkuð vel heima og gengið prýðilega að selja myndirnar mínar - svo vel reyndar að stundum fæ ég á
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.