Vikan - 14.05.1992, Blaðsíða 52
Henning
Carlsen var
heiöurs-
gestur
kvikmynda-
hátíðarinnar.
Elín Pálma-
dóttir á tali
við Stellan
Olson
leikstjóra.
augað. Þegar ég kom til Suður-Afríku í
fyrsta sinn var það til þess að gera kynn-
ingarmynd fyrir fyrirtæki. Þá ákvað ég að
gera kvikmyndina Dilemma í samvinnu
við Nadine Gordemer. Við þóttumst vera
að gera aðra kynningarmynd - ef við
hefðum sagt frá því aö við værum að gera
mynd um aðskilnaðarstefnuna hefðum
við öll verið fangelsuð. Ég gerði mér ekki.
grein fyrir þessari hættu en allir leikararnir
í myndinni vissu það. Mörg þeirra neydd-
ust til að yfirgefa landið eftir að myndin
var frumsýnd.
Einn aðalleikarinn í myndinni, Zakes
Mokae, fór til Bandaríkjanna þar sem
hann hefur búið og starfaö síðan. Hann er
orðinn þekktur núna (leikur lækni í kvik-
myndinni The Doctor sem er sýnd núna í
Bíóhöllinni). Tónlistafmaðurinn Gideon
Nxomalo lék sjálfan sig í Dilemma og
hann sneri ekki aftur til Suður-Afríku.
Hann sá ekki myndina fyrr en 23 árum
síðar í Kaupmannahöfn. Ég var mjög
taugatrekkur á þeirri sýningu, bjóst við að
hann myndi fussa yfir myndinni og jafnvel
spyrja hvort þetta væri allur afraksturinn
af því sem hann þurfti að yfirgefa land sitt
fyrir. En hann var ánægður og sáttur við
kvikmyndina.
Þar til fyrir tveimur árum mátti ég ekki
.<oma til Suður-Afríku. Samt er ég ekkert
betri en aðrir í sambandi við kynþáttafor-
dóma. Þaö voru þrjár manneskjur að
labba hér inn á kaffihúsið og ég tók eftir
því að ein þeirra var svört. Það er af því
að innra með okkur öllum býr það sem ég
kalla „svínhundurinn". Þegar við höldum
fastar um peningaveskið, þegar viö erum
erlendis þá er svínhundurinn aö verki. Við
verðum öll að vara okkur á svínhundun-
um okkar.“
Henning Carlsen er nú að undirbúa
kvikmyndatöku í Los Angeles. „Ég er bú-
inn að skrifa handrit með Buck Henry sem
er þekktur handritahöfundur og leikari.
Við unnum handritið upp úr skáldsögunni
Jailbird eftir Kurt Vonnegut. Ég býst við og
vona að við getum hafið tökur í septem-
ber næstkomandi því ég er með annað
verkefni á prjónunum sem ég vil ekki tala
strax um. Ég get aðeins sagt að það ger-
ist einhvers staðar á Norðurlöndunum!"
STELLAN OLSON OG
SÖREN SKJÆR
Sú kvikmynd sem dómnefnd leikara, kvik-
myndagerðarmanna og tónlistarmanna
kaus bestu mynd Norrænu kvikmynda-
hátíðarinnar 1992 var danska kvikmyndin
Den store badedag (Baöstrandarferðin
mikla). Handritið byggir á skáldsögu eftir
þekktan danskan rithöfund, Palle Fischer,
og er skrifað af leikstjóranum Stellan Ol-
son og kvikmyndatökumanninum Sören
Skjær. Sagan gerist um 1930 og fjallar
um ungan dreng sem bókstaflega dáir
föður sinn, sem hefur ferðast um allan
heiminn, veit allt og er svo stór og sterkur.
Þeir feðgar skipuleggja í sameiningu ferð
með nágrönnunum á baðströnd og í þeirrí
ferð fellur faöirinn ofan af stallinum.
Leikstjórinn Stellan Olson er sænskur,
frá Skáni, stór og myndarlegur með sítt,
hvítt hár og skegg. Hann hefur sett upp
leikrit á sviði, gert kvikmyndir og þykir
ágætur rithöfundur. Fyrsta kvikmynd
hans, Close to the Wind, var verðlaunuð
sem besta fyrsta kvikmynd árið 1969 og
mynd hans, Sven Klang’s Combo, er talin
ein besta djasskvikmynd sem nokkurn
tíma hefur verið gerð.
„Ég byrjaöi að gera myndir um tvítugt,
þá vann ég átta millímetra kvikmynda-
tökuvél í samkeppni í einhverju tímariti."
segir Olson. „Þá hvarflaði ekki aö mér að
leggja þetta fyrir mig, ég lærði sögu í há-
skólanum og fór að kenna. Svo þegar
sænski kvikmyndaskólinn byrjaði settist
ég aftur á skólabekk. Eftir einn vetur gafst
ég upp, kennararnir voru verri en ég, þeir
komu fram við okkur eins og smábörn! Ég
lærði þetta bara smám saman."
Á síðustu árum hefur Olson gert mikið
af barnaefni fyrir sjónvarp. Hann á sjálfur
fjögur börn og segir þau vera alveg eins
kröfuharða áhorfendur og hina fullorðnu.
„Svo kom að því aö ég vildi hvíla mig á
barnaefni og ákvað að gera aftur kvik-
mynd fyrir fullorðin börn! Ástæðan fyrir
því að ég valdi skáldsögu Palle Fischer
var sú aö konan mín var aö lesa bókina
og hún hló svo mikið að ég fór aö stelast
í hana. Ég hafði síðan samband við Sö-
ren Skjær sem er handritahöfundur og
kvikmyndatökumaður. Við höfðum áður
átt gott samstarf og viö settumst niður og
sömdum saman handritið."
Kaupmannahafnarbúinn Sören Skjær
er ólíkur samstarfsmanni sínum, minni og
dökkur á brún og brá og ákaflega ófram-
færinn.
„Ég er sonur leikkonu og ákvað mjög
ungur aö koma aldrei nálægt bransanum.
Ég lærði því bifvélavirkjun og vann við
hana í nokkur ár en gafst svo upp. Ég
byrjaði á því að keyra kagga fyrir Kana
sem voru að gera kvikmyndir í Danmörku
og kynntist mörgu skemmtilegu fólki. Einn
af þeim kvikmyndagerðarmönnum sem
ég kynntist hreinlega skipaöi mér að læra
kvikmyndatöku, svo ég hlýddi því! Ég fór
aldrei í neinn skóla, ég veit ekki einu sinni
hvort þeir voru til þá. Alla vega byrjaði ég
bara á byrjuninni og lærði að kvikmynda.
Seinna kom að því að ég fór að skrifa
handrit og gera eigin myndir."
Afraksturinn af samstarfi þeirra félaga,
kvikmyndin Den store badedag, dró að
sér þrjú hundruð þúsund áhorfendur í
Danmörku, hún hefur þegar veriö seld til
28 landa og í Rúðuborg fengu þeirfélagar
eina milljón íslenskra króna, sem fylgir
verðlaunum dómnefndarinnar.
„Ég er að vinna að sjónvarpsþáttaröð í
Svíþjóð," segir Olson. “Þetta er gaman-
söm saga um sænsk-tyrkneska fjölskyldu
en viðfangsefnið er alvarlegt, hvernig mis-
munandi menningarstraumar geta haft
mikil áhrif á fjölskyldulífið. Ég er mjög
sáttur við að vinna fyrir sjónvarp. Þaö er
Ur eistnesku myndinni „Aðeins fyrir
brjálæðinga".
Stellan Skarsgard fékk verðlaun fyrir leik
sinn í „God afton herr Wallenberg".
skoðun mín að kvikmyndagerð á Norður-
löndum eigi sjónvarpi sérstaklega mikið
að þakka og við ættum ekki að gleyma
því. Svo er ég að byrja að vinna að hand-
riti sem byggist á æskuminningum
mínum.“
Sören er ekki alveg sammála sam-
starfsmanni sínum. „Mér leiðist
sjónvarp," segir hann. „Það er allt of mikið
af auglýsingum sem fylgja sjónvarpi. Ég
er að vinna stuttmynd, svo er ég að skrifa
handrit með Erik Clausen, sem leikur
föðurinn í Baðstrandarferðinni. Þá er ég
aö fara að vinna að mynd um tónskáldiö
Carl Nilsen. Næsta ár verður mjög spenn-
andi.“ □
52 VIKAN 10. TBL.1992