Vikan - 14.05.1992, Blaðsíða 65
VtÐSKIPTAKORT LESENDA VIKUNNAR:
NYJAR HLJÓMPLÖTUR
BRUCE SPRINGSTEEN:
LUCKY TOWN/HUMAN
TOUCH
IVÖFALDUR PAKKI
Þaö er sennilega ekki nein til-
viljun aö bandaríska rokkgoö-
iö Bruce Springsteen er kall-
aöur The Boss. Hann hefur
einfaldlega veriö í fremstu röö
allt frá því að The River kom út
árið 1980 en óhætt er að full-
yröa aö Born in the U.S.A frá
1984 sé vinsælasta platan
hans til þessa. Þess má geta
að á næsta ári eru tuttugu ár
frá því aö Brúsi sendi frá sér
fyrstu plötuna.
Kappinn hefur greinilega
veriö oröinn rokkþyrstur en
þaö eru fimm ár frá því aö
hann sendi síðast frá sér
plötu, Tunnel of Love. Hann
geröi fyrst plötuna Lucky Town
sem inniheldur tíu lög en gat
ekki hætt og hljóöritaði aðra
plötu, Human Touch, en á
henni eru fjórtán lög. Sem
sagt, tvöfaldur pakki frá Boss-
anum Brúsa.
Lucky Town er rólegri í tíö-
inni en Human Touch. Fleiri
ballöður eru á henni og ekki
svo slæmar, til dæmis eru lög-
in If I Should Fall Behind, The
Big Muddy og Book of Dreams
fyrirmyndarlagasmíöar.
Keyrslulögin eru frekar klass-
ísk Springsteen-lög og nægir
þar aö nefna Better Days, Loc-
al Hero. Human Touch er hins
vegar hrein og klár rokkplata
og þar þenur Brúsi Telecaster
gítarinn sinn (og raddböndin)
eins og honum er einum lagiö,
aö lögunum With Every Wish
og I Wish I Was Blind undan-
skildum, hiö fyrra geysifalleg
ballaða þar sem hinn þekkti
trompetleikari Mark Isham
kemur viö sögu með sinn sér-
stæöa stfl.
Textar Brúsa eru á mann-
legu nótunum og jarðbundnir;
ástin, endurminningar, firring
nútímamannsins, spilafíkn,
Persaflóastríðið svo eitthvaö
sé nefnt. Textana skilja allir
því hann er ekkert aö flækja
málin.
STJÖRNUGJÖF (LUCKY
TOWN): ★★★
STJÖRNUGJÖF (HUMAN
TOUCH): ★★★★
XTC: NONSUCH
Frá borginni Swindon á Eng-
landi kemur hljómsveitin XTC
(stofnuö 1977) meö háðfugl-
inn Andy Partridge (gitar/
söngur) í fararbroddi. Aðrir
meölimir eru þeir Colin Mould-
ing (bassi/söngur) og Dave
Gregory (gítar/söngur). Upp-
runalegur trommari, Terry
Chambers, var meö til 1982
en síðan hafa gestatrommarar
unnið meö sveitinni.
XTC hefur gefið út tólf breiö-
skífur (aö vísu tvær undir
nafninu The Dukes of Strat-
osphere), Nonsuch er sú
tólfta. Flestar hafa verið frá-
bærar, svo sem Black Sea
(’80), Drums and Wires (79)
og platan á undan Nonsuch,
Oranges and Lemons frá
1989. Sú plata er heilsteypt
poppverk og inniheldur hvert
gæöalagið á fætur ööru.
Sú er einnig raunin meö
Nonsuch en inn á milli eru
lagasmíðar sem undirritaöur
heföi geymt, til dæmis Omn-
ibus, Humble Daisy og Holly
up on Poppy. En þeir félagar
brillera í lögum á borö viö My
Bird Performs, War Dance
(bæöi eftir C. Moulding en A.
Partridge semur flest lögin og
textana), Rook, Then She
Appeared og The Smartest
Monkeys, þar sem er gert
kaldhæðnislegt grín aö aö-
lögunarhæfni „gáfaðasta ap-
ans" (mannsins). Nonsuch er
ekki alveg eins góö og Orang-
es and Lemons en er þrátt fyrir
þaö hin besta hljómsmíð.
STJÖRNUGJÖF: ★★★★
XTC.
F.v. Dave
Gregory,
Colin
Moulding
og Andy
Partridge.
O
>
70
>'
70
CO
þ
co
co
o
HflRGREIÐSLUSTOFfl HÖLLU MflGHÚSDÓTTUR
HIÐLEITI7 • SÍMl G85562
Hárgreiðslustofa
Bleikjukvísl 8, Sími 673722
Veitum 15% afslátt við afhendingu þessa korts!
REYKJAVÍKURVEGI 6A HAFNARFIROI ■ SÍMI 652620 ■ HEIMASÍMI 52030
Hreinsum allan venjulegan fatnaö með bestu vélum sem
fáanlegar eru í dag. Tökum í þvott fyrir fyrirtæki. Hreinsum
einnig gluggatjöld, svefnpoka, gólfmottur, tjöld o.fl.
Þjáist þú af —
vöðvabólgu, bakverk, brjósklosi, þvagleka,
gigt, tognun eða viltu bara grennast.
Trimm-form geturhjálpað
Bjóðum einn prufutíma.
SNYRTISTOFA ÁRBÆJAR
ROFABÆ 39
SÍMI 68 93 10
10. TBL. 1992 VIKAN 65