Vikan - 14.05.1992, Page 66
SVARLYKILL
1. Vandamál pars geta komiö upp á yfirboröiö
í rúminu. Oft er það afleiöing minnkandi tjá-
skipta (C,E,F,I) eöa ólíkra þarfa (B,D,H,J).
Gefðu þér 2 stig fyrir B,C,D,E,F,H,I og J. Ekki
gefa þér neitt stig fyrir A ef þiö notið kynlíf til aö
verða enn betri vinir eftir aö deilumál hefur ver-
iö rætt og leyst. Geföu þér hins vegar 2 stig fyr-
ir A ef þiö leysið deilumál með kynlífi og þá án
þess að ræða vandamálið.
2. Ásakanir um ótryggð geta oft skotið upp
kollinum þegar fólk er undir miklu álagi. Gefðu
þér 2 stig fyrir A eða B, jafnvel þótt þú sért
„saklausi" aðilinn.
3. Það að geta ekki lengur fengið fullnægingu
með félaga sínum er vísir um bresti í sam-
bandinu. Það að hafa aldrei (hvorki í þessu
sambandi né öðrum) verið fær um að fá full-
nægingu segir hins vegar ekki til um gæði
sambandsins. Gefðu þér 2 stig fyrir B eöa G.
Sú tilfinning að vera neitað um að njóta kynlífs
eða sú þörf að afneita því að einhverju sé
ábótavant í kynlífinu er merki um hversu ein-
angruð þér finnst þú vera frá félaga þínum.
Gefðu þér 2 stig fyrir C eða E. Kynlíf verður
sjaldnast fullkomið en gott kynlíf (þar sem báð-
ir aðilar eru ánægðir) er góðs viti.
4. Leiði, óbeit og/eða biturð eru þess oft vald-
andi að fólk reynir að komast hjá kynmökum
við félaga sinn. Gefðu þér 2 stig fyrir A eða B.
Hræðsla og/eða magnleysi getur oft legið að
þaki því að geta ekki sagt „nei". Það er merki
um að ekki sé allt með felldu þegar kynlíf með
félaganum er orðið kvöð. Gefðu þér 2 stig fyrir
E.
5. Eðlilegt er að það dragi úr tíðni kynmaka í
langvarandi samþöndum. Vandamál geta ver-
ið í uppsiglingu ef þú vilt alltaf meira kynlíf en
félagi þinn. Gefðu þér 2 stig fyrir A.
6. Draumórar geta verið mjög ánægjulegir.
Njóttu drauma þinna svo framarlega sem þeir
hindra ekki eða koma í stað raunverulegs kyn-
lífs með félaga þínum. Gefðu þér 2 stig fyrir C
eða D.
7. Þú færð 2 stig fyrir A eða B. Hér er ekki verið
aö fella dóm á sjálfsfróun sem slíka heldur
frekar á þá vöntun er leiðir til hennar - þaö er
að hafa glatað trúnni á fullnægjandi kynlíf með
félaga sínum.
8. Sambönd slitna ekki endilega í öllum tilvik-
um þrátt fyrir hliðarspor en þörf fyrir að halda
framhjá bendir til þess að ekki sé allt með
felldu. Gefðu þér 2 stig fyrir B,C,D eða E.
9. Samræmdur áhugi beggja aðila er lykillinn
aö góðu kynlífi, sé mikill munur þar á getur þaö
leitt til ágreinings. Gefðu þér 2 stig fyrir A eða
C.
10. Líkamleg andstyggð og/eða leiði í sam-
bandi getur verið afleiðing stórfelldra, síend-
urtekinna vonbrigða. Þú færö 2 stig fyrir alla liði
nema E.
11. Kynlíf, eitt og sér, er ekki nægur grundvöll-
ur til að byggja samband á. Líkamleg tengsl
geta ekki fyllt tilfinningalegt tómarúm. Gefðu
þér 2 stig fyrir A.
12. Þaö er merki um vaxandi árekstra innra
með þér ef þú berð ósamræmanlegar tilfinn-
ingar til félaga þíns. Þú færð 2 stig fyrir
A,B,C,D og E.
13. Þú horfirfram á stórkostleg vandamál ef þú
getur ekki hugsað þér kynlíf með félaga
þínum. Þú færð 2 stig fyrir A; 1 stig fyrir B.
14. Skortur á tjáskiptum gerir sambandið mjög
brothætt. Gefðu þér 2 stig fyrir A eða B.
NIÐURSTAÐA
Teldu saman stigin þín og lestu viðeigandi
dálk.
0 STIG
Þú hefur ekki fengið eitt einasta stig en ekki
kætast um of þrátt fyrir það. Kynferðisleg sam-
þönd eru svo margþætt að það er útilokaö að
þau séu laus við öll vandamál. Hugsanlegt er
að þú sért að afneita þvi að eitthvaö geti verið
að og getur það í sjálfu sér leitt til vandamála.
Taktu prófið aftur þegar þú ert tilbúin að gera
það í fullri hreinskilni.
1 - 8 STIG
Allt bendir til að samband þitt sé byggt á traust-
um grunni þar sem tekist er á við þau vanda-
mál sem upp koma og þau yfirleitt leyst. Not-
aðu þennan tíma, þegar ástarlíf þitt og tilfinn-
ingar eru í lagi, til að hugsa um sambandiö og
reyna þannig aö koma í veg fyrir vandamál í
framtíðinni.
9-20 STIG
Þessi tiltölulega hái stigafjöldi bendir til þess
að kynlíf með félaga þínum sé þér fremur kvöö
en ánægja. Það lítur út fyrir að þetta samband
fullnægi ekki þörfum þínum, tilfinningalegum
né andlegum. Það er krefjandi þörf á því að þú
ræðir við félaga þinn og reynir að finna lausn á
þessum vandamálum, sem virðast aðkallandi
en þó yfirstíganleg.
21 STIG EÐA FLEIRI
Vandamálin í þessu sambandi eru yfirþyrm-
andi og þarfnast tafarlausrar lausnar. Þessi hái
stigafjöldi bendir til mikillar óhamingju, auk
þess sem öll tjáskipti við félaga þinn virðast
miklum vandkvæðum þundin þegar best lætur.
Þú gætir þurft á utanaðkomandi aöstoð að
halda.
66 VIKAN 10. TBL.1992