Vikan - 14.05.1992, Page 77
VIKAN KYNNIR HLJÓMSVEITINA INFERNO 5
Sveitin var stofnuö 1984 og
var upphaflega gerningasveit,
en eins og er má kalla hana
allistahóp. Gerningar útheimtu
gífurlega vinnu við útvegun
leikmuna sem oft voru af
Þeim byltingarbræörum
og andans stórmenn-
um Byron lávarði og
Percy Bysshe Shelley hefði
þótt sem væru þeir komnir
heim í gamla hópinn sinn eftir
eina kvöldstund með lífsbó-
hemunum og hippunum í In-
ferno 5. I þessu opinskáa við-
tali um feril sinn, trúmál og
stjórnarandstöðu sannar In-
ferno 5 hópurinn að þeir eiga
hvergi sinn Kka síðan róman-
tiska stefnan leið undir lok.
Nafn listhópsins er fengið
að láni frá Dante, allir fást þeir
félagar við listir og listiðn og
lífsstíll þeirra hefði áreiðan-
lega getað orðið Alighieri
Dante sjálfum innblástur að
lýsingunni á leiðinni gegnum
hreinsunareldinn.
Sveitina skipa Óskar Thor-
arensen, Örn Ingólfsson, Þorri
Jóhannsson, Ómar Stefáns-
son, Indriði Einarsson, Guðjón
Rúdólf Guðmundsson og
stundum Jóhann „Motorhead"
Richard.
Það liggur beinast við að
byrja á upphafinu og fer því
stefnuyfirlýsing sveitarinnar
hér á eftir:
Þar eð við aðhyllumst hug-
víkkunarheiðni I klikkuðum
kringumstæðum borgar og ný-
náttúru nefnum við Inferno 5
eftir fimmta helvíti I einu af tíu
helvítum Dantes, en I fimmta
helvíti dvelja villutrúarmenn.
Samkvæmt okkar skilningi er
villutrú táknræn fyrir frjálsa
hugsun, ótakmarkað hugar-
flug og ímyndunarafl.
þyngri endanum. Kostnaður
við gerningana var orðinn ær-
inn því liðsmenn vildu sífellt
bæta á sig blómum, það tók
heila viku að setja upp sviðs-
myndina og þrjá daga að taka
hana niður aftur. Þar eð einnig
er erfitt að finna húsnæði sem
tekur allt að átta metra háa
sviðsmynd var sú lýðræðis-
lega ákvörðun tekin að starfa
jöfnum höndum að gerninga-
bransanum og tónlistinni.
SMÆKKUÐ MYND AF
SÓLKERFINU
„Upphaflega ætluðum við að
búa til leynireglu til að halda í
unglingsárafílinginn," segir
Óskar, „en úr félaginu spratt
síðan Inferno 5. Þetta er eigin-
lega fótboltaleynifélag en það
er dæmigert fyrir karlmenn að
rotta sig saman og búa til
leynifélag. Þá geta þeir hringst
á og rætt leynifélagsmál. Þeg-
ar menn komast ekki inn í
Oddfellow eða Frímúrara
verður krókur að koma á móti
bragði,“ bætir hann við. Þorri
getur þess að hópurinn dýrki
fótbolta enda minni fótbolti á
allt í senn, heila, jörð, sól og
alheiminn. „Við erum hluti af
náttúrunni en stöndum ekki
fyrir utan hana eins og í ein-
gyðistrúarbrögðunum," segir
Þorri. „Fótboltinn er því tákn-
rænn fyrir jörðina og alheim-
inn, heilann og sólina og öll
erum við hluti af þessu. Hug-
víkkunarheiðingjar trúa því að
mannsheilinn sé aðeins
smækkuð mynd af sólkerfinu."
Hverjir eiga möguleika á því
að ganga í hópinn?
„Við erum sér samfélag inn-
an þjóðfélagsins," svarar hinn
gustmikli Þorri. „Miklu færri en
i vilja komast að. Bakgrunnur
10. TBL 1992 VIKAN 77
TEXTI: ÞÓRDÍS BACHMANN/LJÓSM,: BRAGI ÞÓR JÓSEPSSON