Vikan


Vikan - 11.06.1992, Page 9

Vikan - 11.06.1992, Page 9
EDDA ÞÓRARINSDÓTTIR LEIKKONA OG SONURINN í SORORICIDE DAUÐAROKK OC StGUMMUtVÍSUR fyrra var Eddu sagt upp í leikhúsinu ásamt hópi leikhúsfólks. Þá fór hún í ,q skóla. Og sonur hennar er í hljómsveit. Tónlistin er kennd við dauða. Hún er rokk. Dauða- CD rokk. Jedúddamía, myndi einhver segja. En Edda? Nei, hún tek- 3S ur að sér fjármálin fyrir dauða- ■O rokksveitina Sororicide. Hún 13 styður son sinn heilshugar þó klassík verði frekar fyrir valinu Z þegar hún velur tónlistina sjálf heima í stofu. Edda Þórarins- dóttir leikkona féllst á að spjalla um skólann, dauða- ^ rokkið, nýju vinnuna sína og z pínulitið um brottreksturinn. Hún getur ekki samþykkt að ^ það sé eitthvað voðalegt þó að Fróöi sonur hennar spili < dauðarokk á gítarinn sinn og umgangist fólk, jafnaldra og ^ eldra, sem sumt er með hár ^ niður í mitti. Fróði er sautján ára, sonur Eddu og Finns Torfa Stefánssonar og fyrir þeim er þetta tónlist. Kannski ekki þeirra uppáhald en tónlist engu að síður. Og það þykir þeim bera að virða. Við kom- um nánar að því síðar. Eins og aðeins var vikið að Hljómsveitin Sororicide tlytur svokallað dauðarokk. Fróði leikur þar á gítar. hér að framan var Eddu Þórar- insdóttur vikið úr starfi sínu sem leikari við Þjóðleikhúsið. „Það er alltaf erfitt að missa vinnuna, sérstaklega þegar um svo sérhæfða vinnu og menntun er að ræða sem leik- listin er. Ef manni er til dæmis sagt upp á skrifstofu eða í N banka þá er hægt að finna sér svipað starf á annarri skrif- stofu eða í öðrum banka en í leiklistinni gegnir öðru máli. Á íslandi eru aðeins þrjú at- vinnuleikhús og eitt þeirra er á Akureyri," sagði Edda. KALDUR KLAKINN „Eftir því sem leikarar eldast minnka hlutverkin og þeim fækkar. Það er lítil virðing við fólk sem hefur gefið leikhúsinu bestu ár ævi sinnar að kasta því út á kaldan klaka en margir í hópnum höfðu starfað við Þjóðleikhúsið i yfir tuttugu ár. Sjálf hef ég verið að snúa mér meira að leikstjórn og ég setti meðal annars Bréf frá Sylvíu á svið fyrir Þjóðleikhúsið. Ég hef líka verið að gera þætti bæði í sjónvarpi og útvarpi, meðal annars Sigurðarvísur Þórar- inssonar sem sýndar voru um páskana," segir Edda og þrátt fyrir að biturðar eða beiskju sé leitað í málrómi hennar meðan hún talar um brottreksturinn og það sem slíku fylgir verður einskis vart. Hún hefur tekið nýja stefnu. „Ég ákvað að fara í skóla og er nú að læra bókmenntafræði við Háskólann. Til að vinna eitthvað með var ég við þátta- gerðina sem ég minntist á. Reyndar þóttist ég hafa tekið of mikið fyrir á misserinu fyrir áramót þegár ég sá hilla undir prófin. Þau gengu þó vel en ég tók minna eftir áramót," segir Edda og annað sem henni fannst merkilegt við háskóla- námið var að þegar hún kom þar inn var hún ekki sá öldung- ur sem hún hélt sig verða i skólanum. Þarna var margt fólk miklu eldra en hún. Nú hefur hún tekið við starfi sem formaður Félags íslenskra leikara. Því sér hún varla fram á að geta haldið áfram bók- menntafræðinámi, í bili að minnsta kosti. I nýju starfi telur hún sig hafa nóg að gera við að komast inn i ýmis mál leikara á íslandi. Frh. á næstu opnu eru meðal áhugamálanna 12. TBL. 1992 VIKAN 9

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.