Vikan - 11.06.1992, Blaðsíða 80
RISAFLASKA OG
RÚMBUTAKTUR
Þegar gestirnir voru komnir upp
á jökulinn blöstu viö þeim út-
grafnir hellar í ísinn. Þeir þjónuöu
hlutverki vínbara, þar sem guða-
veigarnar voru í formi líkjörsins
góöa sem náttúrlega var borinn
fram á ís. Suörænir ávextir
skreyttu ísbarina og mynduöu
skemmtilega andstæðu viö hvítt
umhverfið. Starfsmenn Jökla-
feröa létu ekki þar viö sitja heldur
höfðu jafnframt búið til risastóra
Cointreau-flösku úr ís og þar viö
bættist glas sem byggt haföi ver-
ið úr gegnfrosnum ískjörnum.
Síöustu daga höföu verið flutt-
ar vistir í tonnavís, matur og vín
sem annar nauösynlegur búnaö-
ur, upp á jökulinn en veislan fór
fram neöan viö nýrisinn skála
Jöklaferða. Eftir ræöuhöld,
fjöruga rúmbutakta hljómsveitar-
innar sem kom líka frá Þýska-
landi, flugeldasýningu og lystauk-
andi drykkinn gestgjafanna hófst
boröhaldið. Boöiö var upp á kalt
sjávarréttahlaöborö sem Hótel
Höfn haföi haft veg og vanda af.
Gestirnir gátu síðan notið matar-
ins viö sérstaklega útbúin ísborö.
NÝR KOSTUR FYRIR
FERÐAMENN
Uppi í Vatnajökli þennan dag ríkti
í raun eins og draumkennt á-
stand. Þetta gat tæpast verið
raunveruleikinn. Feröamanna-
þjónusta nútímans býöur hins
vegar upp á þetta og aö því er
virðist getur ríkt nánast fullkomn-
un í þessum efnum ef kunnátta,
vandvirkni og áreiðanleiki ná að
smella saman. í þessu tilviki var
slíku fyrir að fara.
Skipulagiö vegna komu hóps-
ins og dagskrárinnar hér á landi
hvíldi mest á herðum Goöa
Sveinssonar hjá feröaskrifstof-
unni Úrval-Útsýn. Aöspuröur
sagöi hann aö þetta væri ein
leiðin til þess aö lengja feröa-
mannatímann í báöa enda, auka
fjölbreytnina og undirstrika sér-
stööu íslands. Hann sagöi aö
þetta væri fimmta veislan í vor,
þó svo að engin þeirra heföi
komist í hálfkvisti við þessa.
Þarna vinna saman flugfélag og
feröaskrifstofur í nánu samstarfi
viö heimamenn á borö viö Jökla-
feröir og Hótel Höfn.
Árangurinn var frábær. Ingvar
Karlsson, forstjóri Karls J. Karls-
sonar hf. sem hefur umboð fyrir
Cointreau hér á landi, tjáöi blaöa-
manni aö jafnvel væri fyrirhugaö
aö sams konar hópur frá Spáni
sækti jökulinn heim og vafalítiö
sigldu fleiri í kjölfariö. Hann
kvaðst mjög ánægöur meö
hvernig til heföi tekist og sagöist
þess fullviss aö þótt fyrirtæki af
þessu tagi kostaði gestgjafana í
► Þeir sáu
um aö
halda
stemmning-
unni á full-
um dampi
meö fjörug-
um lögum í
ýmsum
töktum. Sá
þeldökki
myndaöi
skemmti-
lega and-
stæöu viö
hvítt um-
hverfiö.
▼ Þaö var
séö til þess
aö ungir
sem aldnir
kæmust
alla leiö.
► Réttirnir
á sjávar-
réttahlaö-
boröinu
brögöuöust
vel og var
skolaö niö-
ur meö gosi
eöa góöu
vfni frá
Bordeaux.
Þýskalandi milljónir væri um að
ræða fjárfestingu sem ætti eftir
aö skila sér margfalt.
ÁNÆGÐIR GESTIR
Blaöamaöur Vikunnar vatt sér aö
nokkrum gestanna og spurði þá
álits á líðandi stund. Þeim bar öll-
um saman um aö þetta væri
skemmtilegt framtak og meö ólík-
indum hvaö búið væri aö gera
þarna uppi í jöklinum. Þeir kváðu
dagskrána vera stífa þann sólar-
hring sem þeir dveldu á íslandi
Þýsk
blaðakona
á Vatna-
jökli. Hún
var hæstá-
nægö meö
feröina en
kvaöst ekki
vera viss
um aö hún
heföi þrek
til aö sækja
heim
Ömmu Lú
um kvöldiö.
en þetta væri á sig leggjandi
vegna þess aö ævintýri af þessu
tagi ættu þeir örugglega aldrei
eftir aö upplifa aftur.
Dvölinni á jöklinum lauk um
fimmleytiö og þá þegar var hafist
handa viö aö koma fólkinu í rút-
urnar og síöan á flugvöllinn. Til
gamans má geta þess aö hópur-
inn var allur mættur á skemmti-
staðinn Ömmu Lú fyrir miönætti.
Haldið var til Þýskalands upp úr
hádegi á laugardeginum. Mjög
stutt baö þaö. □
80 VIKAN 12. TBL. 1992