Vikan - 11.06.1992, Blaðsíða 65
VIÐBURÐARÍKf SUMAR FRANI UNDAN HJÁ SÍÐAN SKEIN SÓL
SPILAR MEÐAL ANNARS Á READING TÓNLISTAR-
HÁTÍÐINNI ÁSAMT STÓRSVEITINNT JÚPÍTERS OG
VERÐUR MEÐ MUN ÍBURÐARMEIRI DAGSKRÁ UM
ALLT LAND EN VERIÐ HEFUR UNDANFARIN ÁR
að láta fleiri sólir sjá sig
þessa dagana en „gula
dýrið" eins og einhver
kallaði þá einu sönnu. Hin eina
sanna popp-sól, Síðan skein
sól, er líka komin á fulla ferð
eftir gott frí og trommaraskipti
og ætlar að gera víðreist um
landið ísland. í lok ágúst spila
svo Sólin og stórsveitin Júpít-
ers á Reading tónlistarhátíð-
inni og er það í fyrsta sinn sem
íslenskar sveitir koma fram á
þessari hátíð. Aðalnúmerið
þar verður hin óhemju vinsæla
dúndurrokksveit Nirvana.
í tengslum við utanför Sólar-
innar er áætlað að gefa út
smáskífu (12 tommu skífu) í
Bretlandi og er það efni sem
þeir félagar Helgi Björnsson,
Jakob Magnússon, Eyjólfur
Jóhannsson og nýi trommar-
inn, Hafþór Guðmundsson
(áður í Eldfuglinum), hafa verið
að semja að undanförnu en
Ingólfur Sigurðsson, fyrrver-
andi trommari Sólarinnar,
sneri sér alfarið að hljómsveit-
inni Orgils um síðustu áramót.
Einnig hafa meðlimir sveitar-
innar lagt grunn að nýrri breið-
skífu sem kemur væntanlega
út á þessu ári.
HARÐARI TÓNN OG
ÁTAK MEÐ
UMFERÐARRÁÐI
Vissar áherslubreytingar hafa
orðið í tónlist Síðan skein sól
að undanförnu. Á sviði hefur
krafturinn og hráleikinn verið
aðalsmerki hennar og komist
betur til skila en á plötunum.
Nú er ætlunin að koma þess-
um hráleika á plastið líka. „Við
höfum í rauninni leyft okkur að
gera hvað sem er í tónlist,
rokk, popp, kassag ítartónlist
og ballöður. Okkur finnst þörf
á að krafturinn fái að komast
almennilega til skila," segir
Helgi Björnsson.
Þessa dagana og næstu
þrjá mánuði verður áherslan
lögð á fósturjörðina og
„skrímslinu hefur verið
startað", eins og Helgi orðar
það. Spilað verður um hverja
helgi I allt sumar og er Síðan
skein sól (ásamt hljómsveitinni
Galíleó) þátttakandi í átaki
fjölda aðila, er nefnist „Kom-
um heil heiml' Að þessu
átaki standa meðal annars
Umferðarráð, Áfengisvarna-
ráð, Slysavarnafélagið, Sam-
tök lamaðra og fatlaðra, lög-
reglan, slökkvilið og fjölmiðlar
svo einhverjir séu nefndir.
„Við komum til með að spila
út um allt. Þetta verður brjálað
rokkprógramm og í þetta sinn
leggjum við mun meiri metnað
í þetta en við höfum gert, ger-
um meira „show" úr þessu,
betri lýsingu, aukna leikmynd
og meiri fagmennsku."
TÍMI KOMINN TIL
HUGARFARS-
BREYTINGAR
Helgi segir að þetta verði allt
miðnæturtónleikar en eins og
flestir vita urðu nokkrar deilur
um slík fyrirbæri á sínum tíma
þar sem ekki þurfti að greiða
virðisaukaskatt af tónleikum
en hins vegar af dansleikjum.
„Við borgum okkar virðisauka-
skatt eins og okkur ber skylda
til en það er kominn tími til
þess að breyta vissu hugarfari
sem er við lýði; rokktónlist er
rokktónlist og fólk dansar við
hana en þetta eru líka tónleik-
ar þar sem við spilum okkar
eigið efni fyrst og fremst. Við
erum á móti því að einhverjir
embættismenn úti í bæ geti
sagt að ef fólk situr á rassinum
sé það að hlusta á tónleika en
ef það stendur og dillar
mjöðmunum sé ekki verið að
hlusta á tónleika. Þetta er í
raun hlægilegt. Við viljum
reyna að breyta þessu hugar-
fari."
Síðan skein sól verður með
eitt lag f kvikmynd Júlíusar
Kemp, Veggfóður, sem verður
frumsýnd nú í sumar og henni
samfara verður plata. Tvö lög
verða einnig á sumarsafnplötu
Skífunnar. „Okkur langaði til
þess að gefa út tólftommu
sjálfir hérna heima í sumar en
það bara gefst ekki tími til
þess. Vegavinnan verður
númer eitt og við hlökkum mik-
ið til að hitta vini og kunningja
úti á landsbyggðinni," sagði
Helgi Björnsson að lokum.
NÝJAR HLJÓMPLÖTUR
Hinn aldni
blusari
Pinetop
Perkins er í
góðu formi
á nýrri
plötu sinni
og nýtur
undirleiks
frá Vinum
Dóra og
Chicago
Beau.
PINETOP PERKINS:
WITH CHICAGO BEAU
AND THE BLUE
ICE BAND
ALVÖRU BLÚS
Allt frá því að Vinir Dóra (The
Blue lce Band) komu fyrst
fram hérlendis á tónleikum
með John Mayall á Borginni
fyrir um þremur árum (27.2
'89) hefur leiðin legið upp á
við. Vinir Dóra eru orðnir að
blúsveldi, ekki bara hérlendis
heldur líka erlendis. Og nú er
komin út plata með einum virt-
asta blúsmanni samtíðarinnar,
píanóleikaranum Pinetop
Perkins (rétt nafn hans er Joe
Willie Perkins) en hann verður
áttræður á næsta ári. Nafnið
Pinetop fékk hann að láni frá
öðrum blúsara, Pinetop Smith.
Þarna spila Vinir Dóra undir;
Halldór Bragason (gítar/rödd-
un), Guðmundur Pétursson
(gítar), Haraldur Þorsteinsson
(bassi) og Ásgeir Óskarsson
(trommur). Þá kemur annar
Chicago blúsari, munnhörpu-
leikarinn Chicago Beau, við
sögu á plötunni.
Það eru tíu lög á plötunni,
þar af fjögur eftir Pinetop og
sex þeirra voru tekin upp á
Púlsinum í nóvember í fyrra.
Þetta er allt saman alvöru
blús, spilaöur af svífandi létt-
leika eins og heyrist í lögunum
Kidney Stew, Yonders Wall,
Whiskey Headed Woman og
Got My Mojo Working. Hljóð
færaleikurinn í heild sinni er
pottþéttur enda engir aukvisar
hér á ferð. Gamli maðurinn er
stórskemmtilegur og ekki spill-
► Fimmta
plata hljóm-
sveltarlnnar
James frá
Manchester
hljómar betur
og betur með
hverri
hlustun.
ir bandið né Chicago Beau
fyrir.
STJÖRNUGJÖF: *★**
JAMES:
SEVEN
SJÖ SANNFÆRANDI
Margt gott kemur i poppinu frá
Englandi og undanfarin ár hef-
ur Manchester gjarnan verið í
sviðljósinu sökum þess hve
margar gæðasveitir hafa kom-
ið þaðan. Ein þessara sveita
er James sem hefur verið
starfandi í níu ár og er Seven
fimmta plata sveitarinnar. í
James eru sjö menn innan-
borðs, söngvari, trompetleik-
ari, trommari, bassisti, hljóm-
borðsleikari og tveir gítar-
leikarar. Það er Tim Booth
söngvari sem leiðir sveitina,
semur alla texta hennar og
með rödd sinni skapar hann
henni þá sérstöðu sem hún
hefur.
Á Seven er aö finna margar
prýðilegar lagasmíðar, falleg-
ar poppmelódíur á borð við
Ring the Bells sem undirrituð-
um finnst eitt besta lag plöt-
unnar. Fast á hæla því koma
Born of Frustration, titillagið
Seven og Bring a Gun sem er
kraftmikill poppsmellur með
vel útsettum trompetleik.
Stríðsádeilan Mother er í
rólegu deildinni og þar nýtur
fiðlan sín vel en annar gítar-
leikaranna strýkur strengi
hennar. Seven er sannfærandi
poppplata sem hljómar betur
og betur með hverri hlustun.
STJÖRNUGJÖF: ★★★★
UMSJÓN: GUNNAR H. ÁRSÆLSSON