Vikan - 11.06.1992, Blaðsíða 64
TEXTI: GUNNAR H. ÁRSÆLSSON / MYNDIR: HUGO GLENDINNING OG GUNNAR H. ÁRSÆLSSON
tlEIMSTÓNUST OG POPPTÓNLIST
A LISTAHATIÐ 1992
SÚDANINN
GADIRSALIM
OTEL ISLANDI
ENN EINN HVAL-
REKINN Á SVIÐI
HEIMSTÓNLISTAR
Á undanförnum árum hefur
heimstónlist svokölluð verið í
mikilli sókn. Við íslendingar
erum ekki eftirbátar annarra í
þeim efnum og heimstónlist
hefur notið æ meiri hylli hér-
lendis. Hingað hafa komið
margir merkir tónlistarmenn á
þessu sviði, mætti nefna sax-
snillinginn Manu Dibango, gít-
arleikarann snjalla Ali Farka
Toure sem er frá Malí likt og
hinn frábæri Salif Keita en
hann var einmitt gestur síð-
ustu Listahátíðar.
Straumurinn heldur áfram.
Hingað kemur sá súdanski
Abdel Gadir Salim ásamt
hljómsveit og heldur tónleika á
Hótel (slandi næstkomandi
mánudagskvöld, 15. júní.
Abdel er tónskáld, söngvari og
oudleikari, en oud er arabísk
lúta. Hann er frá vesturhluta
Súdan, nánar tiltekið frá eyði-
merkurhéraðinu Kordofan og
hefur verið mjög ötull við
kassettuútgáfu (en það er
vinsælasta formið á tónlistar-
útgáfu á þessu svæði) síðan
1969. Tónlistarhefð sú sem
Abdel byggir á er frá heima-
héraði hans sem er að stærst-
um hluta byggt hirðingjum
sem játa múhameðstrú. Tón-
listin er sungin á mállýskum
innfæddra og byggir Abdel
hana að mestu leyti á sínum
eigin útsetningum á þjóðleg-
um laglínum. Hann útseturfyr-
ir nútímahljóðfæri; fiðlur,
bassa, saxófóna, slagverk,
gítar og náttúrlega oud. Þessi
blanda hefur farið eins og eld-
ur í sinu um arabíska menn-
ingarheiminn á undanförnum
áratug og hvarvetna vakið
mikla hrifningu.
Stjarna Abdel Gadir á Vest-
urlöndum reis árið 1986. Þá
fór hann ásamt hljómsveit
sinni til London og spilaði þar
á tónleikum til styrktar bág-
stöddum í þriðja heiminum.
Tveimur árum síðar var hann
aftur í London og hljóðrítaöi þá
plötuna Abdel Gadir Salim All
Stars & The Mardoun Kings
Play Songs of Love sem var
gefin út á síðasta ári. Sú plata
fékk verðlaunin „Top World
Music Album of Europe" í
ágúst f fyrra. Koma Abdel
hingað er liður i tónleikaferð
hans um Evrópu sem stendur
yfir í júní og júlí en eftirspurn
eftir honum á tónleika hefur
ekki linnt frá því umrædd plata
kom út. Þetta er því mikill hval-
reki fyrir aðdáendur heimstón-
listar.
OG VINSÆLUSTU POPPSVEITIR LANDSINS
I LAUGARDALSHÖLL
4r K . " ■ • < Hljóm-
sveitin Tod- mobile er
I meðal þelrra sveita sem spila á risa-
* \ popptónleik-
um i Laugar-
dalshöll
næstkom- andi þriðju- dagskvöld. (Mynd:G.H.Á)
RISAPOPP-
TÓNLEIKAR í
LAUGARDALSHÖLL
Daginn eftir tónleika Abdels
eða 16. júní gangast kvik-
myndafélagið Art Film og
Listahátíð fyrir risapopptón-
leikum í Laugardalshöll þar
sem fram koma öll stærstu
nöfnin í íslensku poppi; Tod-
mobile, Sálin hans Jóns míns,
Ný dönsk, Síðan skein sól og
Bubbi Morthens en hann er
nýkominn frá Kúbu þar sem
hann hefur dvalið að undan-
förnu við upptökur. Ekki er úti-
lokað aö fleiri hljómsveitir
verði með. Tónleikarnir verða
hluti af kvikmynd sem Art Film
stendur að og verður tekin í
júní og júlí. Þeir verða mikil-
vægur hluti af myndinni sem
ber vinnuheitið „Stuttur frakki"
og verður viðbúnaður mikill
enda getur myndin ekki án
tónleikanna verið og þeir ekki
án áhorfenda. Því verður miða-
verði stillt í hóf þannig að
sem flestir komist. Aðstand-
endur Art Film segja að þetta
verði með veglegustu popp-
tónleikum sem haldnir hafa
verið hér á landi. Allir í Höllina!
64 VIKAN 12. TBL. 1992