Vikan


Vikan - 11.06.1992, Blaðsíða 34

Vikan - 11.06.1992, Blaðsíða 34
◄ Stefán Sigurðs- son, fram- kvæmda- stjóri, með meistara- kokkunum Jóni Árel- íussyni <t-v.) og Sturlu Birg- issyni. < Pörin sjö, sem i vetur héldu brúðkaups- veislur sín- ar í Perl- unni og eiga þar skildi á bautasteini, héldu til gróður- setningar i Öskjuhlíð um leið og frost yfirgaf jörð. nokkur vel valin orö og síðan er skálaö fyrir brúöhjónunum. Allt gerist þetta eftir fyrirfram ákveðinni dagskrá sem veit- ingamenn Perlunnar stjórna. Aö þessu loknu er brúðhjón- unum afhentur gullsleginn skjöldur meö nöfnum þeirra og dagsetningu sem síöan er komiö fyrir á stuðlaberginu. Einnig er þeim afhent greni- tré til gróðursetningar en trénu er ætlaö aö vera tákn um ein- ingu hjónabandsins og í at- höfn gróðursetningar felst tákn sem hlutunum er háttað á boröi. Enn í dag viðgengst sá siö- ur aö faðir brúöarinnar býöur gestum til brúðkaups dóttur sinnar og fariö er í flestu eftir þeim siðum sem viðgengist hafa um margra alda skeið. Misjafnlega hagar fólk þó þessum veislum sínum en nú á tímum aukinnar þjónustu hafa komið fram aöilar sem eru boðnir og búnir til að taka slík veisluhöld alfariö aö sér. Og þjónusta slíkra aöila er vitaskuld álíka litskrúðug og þeir eru margir. Þegar Vikan hleraði aöferöir veitinga- og framreiöslufólks í Perlunni varð ekki auðum höndum heima setið heldur af staö farið, ekki síst vegna þess aö nú ganga fljótlega í garð bræðurnir þrír, júní, júlí og ágúst, en þeir hafa notið hvað mestrar hylli þess hamingju- fólks sem kosið hefur að ganga í það heilaga. Hér fer á eftir sýnishorn af því sem í boði er og ráðleggjum við skötuhjúum í hjónabandshug- leiðingum og aöstandendum þeirra, sérstaklega foreldrum tilvonandi brúðar, að hyggja að þeim möguleikum sem fyrir hendi eru á þessum markaði. En snúum okkur þá að Perl- unni. ffiSaw GRENITRÉ AÐ GJÖF Töluverð dagskrá fer í gang þegar samþykki liggur fyrir, ef svo má að orði komast. Þá er píanóleikarinn sestur við flygil- inn þar sem hann bíður komu brúðhjónanna. Þegar væng- hurðin tekur að snúast af því tilefni hljómar brúðarmarsinn í hvelfingunni og þau nýgiftu ganga í salinn. Þar er þá fyrir gestaskarinn sem að sjálfsögðu er tilbúinn með kampavínsglas eða eitthvað léttara í hendi enda skal nú skálað, þó ekki fyrr en þrúðhjónin hafa gengið að fyrrnefndum bautasteini. Faðir brúðarinnar stígur fram, segir A. Halldór Skaftason, rekstrar- stjóri Perl- unnar, skál- ar við pörin i hæstu hæðum. ◄ Hlað- borð mat- reiðslu- og bakara- meistara Perlunnar þykir með afbrigðum girnilegt enda hlaðið gómsætum réttum við allra hæfi. um þá aðhlynningu sem rætur trésins, jafnt og hjónabands- ins, krefjast. Trénu er komið fyrir í sérstökum reit sem Perl- an hefur fengið úthlutað í Öskjuhlíð og því fylgir sá boö- skapur að hjónin skuli í fram- tíðinni taka þátt í rótfestu þess og uppvexti. Til þess þarf að rækta það og virða líkt og hjónabandið þannig að það eigi þeirra ævidaga auðið sem því ber; þar til aðskilnaðar- máttur almættisins rýfur tryggðarbönd. Svo skemmtilega vildi til þegar Vikuna bar að þessum tilvonandi skrúðgarði brúð- hjónanna að gróðursetning stóð fyrir dyrum hjá þeim hjón- um sem undanfarinn vetur hafa látið gefa sig saman og haldið veislu sína í Perlunni. Greinilegt var að þau Thelma og Jón Otti, Elísabet og Kristján, Elín og Torfi, Þor- björg og Óskar Páll, Bryndís og Guðmundur og Anna og Axel höfðu gaman af tiltækinu. Þetta eru brúðhjónin sex sem mættu í Perluna og þáðu kampavín í kristalsglösum að brúðhjónasið áður en haldið var út til gróðursetningar sem fór fram á líflegan hátt í Öskju- hlíðinni sunnanverðri. Sjö- undu hjónin, Eva Mjöll og Kristinn, komust ekki þar sem þau eru stödd í Kenya en Kristinn starfar þar á vegum Sameinuðu þjóðanna. AF SKYNSEMI OG ÁST Hverfum nú aftur til veislunnar þar sem allt er komið í fullan gang í veislusalnum á fimmtu hæðinni. Eftir að gestir hafa lokið við fordrykkinn og fengið sér sæti ganga brúðhjónin að allsnægtaborði gestgjafans þar sem vegleg fimm hæða brúðarferfan bíður þeirra. Að góðum og gegnum sið skera þau hvorf öðru sneið af tert- unni og þar með hefst almennt borðhald. Á þennan hátt er veislan leidd áfram, hvert atriði hennar af öðru, allt er fyrirfram skipulagt og æft. Því getur verið gott að láta aðra annast viðburðinn með glæsibrag þannig að allir njóti þessarar gleðistundar á hnökralausan og ánægjulegan hátt. Vitaskuld kosta herleg- heitin sitt en ef borin er virðing fyrir hjónabandinu og til þess stofnað af ást og skynsemi verður eftirminnileg stund al- veg þess virði, hvar og hve- nær sem hún er haldin og hversu mikið sem hún kostar; hamingjan er fyllilega alls hins besta verð og hún getur jafn- vel verið ókeypis. □ 34 VIKAN 12. TBL. 1992
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.