Vikan - 11.06.1992, Blaðsíða 47
HEIMIR
KARLSSON
Frh. af bls. 24
halda fram á ritvöllinn, sér eflaust í því ein-
hverja ögrun enda styður hann sig ábúðar-
mikill fram á olnbogana, fætur á gólfi, hnúar
undir höku. „Já, ég ætla að fara að skrifa við-
talsbók þar sem ég tala við nokkra íþrótta-
menn og fer um val mitt í bókina fyrst og fremst
eftir lífshlaupi mannanna, að þeir hafi ekki farið
hefðbundnar leiðir í lífinu. Ég er til dæmis bú-
inn að fá nokkra landskunna íþróttamenn til að
opna hug sinn."
STENDUR OF TÆPT
Senn líður að lokum þessa spjalls en á Heimi
hvílir þjóðerniskennd og sjálfsbjargarviðleitni
sem mara. Hann vill gera eitthvað í málunum,
hrista upp í samlöndum sínum.
„Þetta stendur alltof tæpt hjá okkur. Ég sé
ekkert því til fyrirstöðu að selja erlendum aðil-
um hlut [ íslenskum fyrirtækjum svo framar-
lega sem við íslendingar höfum síðasta orðið.
Mér finnst til að mynda hræsni að vilja ekki
taka meiri peninga af ameríska hernum, leigja
honum landiö dýrara verði. Við erum að fá
peninga fyrir veru hersins hér, bara alltof litla
peninga. Þannig lít ég að minnsta kosti á það
mál þó að nú megi segja að of seint sé í rass-
inn gripið. Kaninn hefur dregið mjög úr útgjöld-
um tll hernaðarmála," segir Heimir og heldur
áfram: „Við verðum að hugsa til framtíðar og
bera höfuðið hátt.
Ég tel mig vera mikinn íslending og ég vil að
við hugsum í sameiningu um hag þessa lands.
Framsýni og áræði eru nauðsynlegir eiginleik-
ar í íslensku þjóðfélagi og þá eigum við að
nota til þess að renna fleiri stoðum undir at-
vinnulífið sem er of einhæft. Þó að ekki veiðist
ákveðið margir fiskar úr sjónum megum við
ekki virðast ramba á barmi glötunar," segir
Heimir og þessi orð mælir hann í föðurlegum
tón sem leiðir okkur aftur á byrjunarreit.
ÞEKKING Á SAMLÍFI
Hann er að eignast barn með konunni sem
hann er sannfærður um að hann muni kvæn-
ast í náinni framtíð. Dagsetningin hefur ekki
verið ákveðin, hann hefur ekki farið á hnén enn
sem komið er en hefur tröllatrú á hjónabandinu
þrátt fyrir að slitnað hafi upp úr sl iku hjá honum
áður. „Það getur komið upp úr kafinu að fólk
eigi bara ekkert sameiginlegt. Ég hef þá trú að
fólk sé almennt séð ekki tilbúið að giftast fyrr
en það hefur kynnst öllum þessum venjulegu
hliðum á samlífinu, þegar það veit hvað það er
að borga skatta, borga af lánum, eiga íbúð,
vinna og jafnvel hvað það er að eiga börn. Þá
fyrst tel ég fólk tilbúið að bindast þessum
tryggðarböndum.
I mínu tilfelli var einfaldlega um það að ræða
að við vorum of ung þegar við festum ráð okk-
ar og þroskuðumst síðan sitt í hvora áttina,"
segir Heimir en lítur sannfærður og staðfastur
fram fyrir sig og segist ekki í nokkrum vafa um
þá framtíð sem hann, Rúna og nýburinn eigi
fyrir höndum. „Nú verður fjölskyldan númer
eitt; börnin, konan og ég.“ □
Listræn verslun
fyrir konur
með fágaðan smekk
TED LAPIDUS Ckristian Dior Biioux
-PARIS—
BARRIE KNITWEAR ACCESSOIRES
Laugavegi 61 • Reykjavík • Sími: 13930