Vikan


Vikan - 11.06.1992, Qupperneq 13

Vikan - 11.06.1992, Qupperneq 13
TEXTl: HJALTIJÓN SVEINSSON / MYNDIR: MAGNÚS HJÖRLEIFSSON aö staöu r sem somi er VEITINGAHÚS MÁNAÐARINS: # Smjörsteiktur búri á portvínssósu. „Einhver mesti happafundur seinni ára i hafinu. Sérstak- lega góöur f iskur, þéttur i sér eins og skötusel- ur og humar. Hvítur og fallegur." Hvitvínssoðinn langhali á kjörvilssósu (illgresi úr garðinum). „Langhalinn er mjög góður fiskur, einn af þeim betri. Hann er vandmeðfarn- ari en búrl til dæmis því að hann er lausari í sér. Hann er náfrændi þorsksins og líkist honum að ýmsu leyti.“ Rúnar sýður fisk þannig að hann hefur tilbúið fisksoð sem hann hitar upp og sýður með kryddi. Hann lætur siðan fiskinn ofan í sjóðandi vatnið, tekur pottinn um leið af hellunni og lætur standa í fimm mfnútur. Rúnar Marvinsson veit- ingamaður hefur ekki farið troðnar slóðir á því sviði þar sem hann hefur haslað sér völl - í frumskógi veitingahúsanna. Því ráku margir upp stór augu þegar hann opnaði veitingahúsið sitt Við Tjörnina fyrir sex árum ásamt eiginkonu sinni, Sigríði Auðunsdóttur. Frá upphafi var það bjargföst ákvörðun hans að bjóða fyrst og síðast upp á fiskrétti en slíkt hafði ekki tíðk- ast áður í þessum mæli. Húsnæðið þótti heldur ekkert sérstaklega spennandi, í gömlu og frekar hrörlegu húsi við Kirkjustræti í Fteykjavík, uppi á annarri hæð. Rúnar vissi hvað hann var að gera. Hann bauö í fyrsta lagi upp á fiskrétti sem ekki áttu sína líka í borginni og í annan stað valdi hann þann kost að láta húsnæðið halda sinni upprunalegu mynd. Húsakynnin buðu upp á það að vera svolítið öðruvísi en nútímafólk á að venjast. Þetta er gamalt hús og því hæfa húsmunir sem heyra til liðnum tíma, húsgögn frá því á fjórða og fimmta áratugnum og ýmis húsbúnaður frá fyrstu árum aldarinnar, jafnvel eldri. Hefur Sigríður séð um þá hlið máls- ins að sögn Rúnars. Meira að segja ómar um sali tónlist frá fimmta og sjötta áratugnum, tónlist sem gæti allt eins komiö úr fyrrum bækistöð Ríkisút- varpsins, „gömlu gufunni" í Landsímahúsinu, í gegnum ævagamalt viðtækið sem stendur úti í einu horninu. Taktar af vinsældalistum líð- andi stundar myndu ekki hæfa þessum stað, þeir spilltu ein- ► Þau gerðu Hótel Búðirfeikn- avinsælar en opnuðu Við Tjörn- ina fyrir 6 árum. F.v. Rúnar Mar- vinsson, Gunnar Rúnarsson og Sigríður Auðuns- dóttir. faldlega því sérstaka and- rúmslofti sem þarna ríkir. ÓVENJULEGUR MATSEÐILL Við Tjörnina hefur nú fest sig rækilega i sessi og þar er jafn- an setið við hvert borð i há- deginu og á kvöldin, virka daga sem um helgar. Reyk- víkingar og gestir þeirra kunna vel að meta þessa tilbreytni við hversdagsleikann og maturinn svíkur engan þó að margir kunni að reka upp stór augu þegar þeir renna þeim í fyrsta skipti yfir matseðilinn og rekast á uppástungur um for- rétti eins og ristuð þorskhrogn og fisktartar og aðalrétti á borð við tindabikkju, kryddlegnar gellur að hætti hússins, kola með gráðaosti og glóðaða lúðu meö camenbert og skel- fisksósu. Verðið er yfirleitt á milli 700 og 800 krónur á for- réttum, 1400-1700 á aðalrétt- um og 600-700 á eftirréttum. Rétt dagsins er hægt að fá i hádeginu ásamt súpu. Verðið hefur verið það sama í nokkur 12.TBL.1992 VIKAN 13
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.